Skessuhorn - 18.05.2022, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 202222
Í Grundarfirði voru tveir list
ar í kjöri í kosningunum á laugar
daginn. Niðurstaðan varð sú að
D listi Sjálfstæðisflokks og óháðra
hlaut 234 atkvæði og L listi Sam
stöðu 216 atkvæði. Meirihlut
inn heldur því velli í Grundarf
irði. Bæjar stjóraefni hans er Björg
Ágústsdóttir.
Á myndinni eru sigurreifir full
trúar D listans á kosninganóttinni:
F.v. Jósef Ólafur Kjartansson for
seti bæjarstjórnar, Sigurður Gísli
Guðjónsson, Sigurhanna Ágústa
Einarsdóttir og Bjarni Sigurbjörns
son.
mm/ Ljósm. tfk.
Eftir að búið var að telja öll atkvæði
í sameinuðu sveitarfélagi Stykkis
hólmsbæjar og Helgafellssveitar
var ljóst að H listi framfarasinna
bar sigur úr býtum. Hlaut hann 408
atkvæði en Ilisti Íbúalistans 338
atkvæði. Hlisti er því í meirihluta í
sameinuðu sveitarfélagi. Oddviti H
listans er Hrafnhildur Hallvarðs
dóttir sem skipaði forystusæti H
listans í Stykkishólmi á síðasta kjör
tímabili. Á kjörskrá voru 934 og
greiddu 761 atkvæði. Auðir seðlar
voru 15, en enginn ógildur.
Jakob Björgvin Jakobsson, sem
verið hefur bæjarstjóri í Stykkis
hólmsbæ frá 2018, verður sveitar
stjóri sameinaðs sveitarfélags.
mm
Síðustu dagar fyrir sumarfrí hafa
verið annasamir í Fjölbrauta
skóla Snæfellinga í Grundarfirði,
en nemendur hafa verið að kynna
lokaverkefni sín undanfarna daga.
Útskriftarnemendur voru að kynna
lokaverkefni sín þriðjudaginn 10.
maí og föstudaginn 13. maí voru
kynningar á lokaverkefnum nem
enda á nýsköpunar og frumkvöðla
braut skólans. Þar kom Karl Guð
mundsson forstjóri Florealis og
hélt stuttan fyrirlestur um mikil
vægi nýsköpunar. Það er því mik
ið um að vera innan veggja skólans
þessa dagana. tfk Ljóst var að D listi Sjálfstæðisflokks
í Snæfellsbæ heldur meirihluta sín
um og fjórum mönnum í bæjar
stjórn eftir að lokatölur lágu fyr
ir. J listi bæjarmálasamtaka Snæ
fellsbæjar fær þrjá fulltrúa í bæjar
stjórn. Munaði 48 atkvæðum á
framboðunum, heldur minni mun
ur en í síðustu kosningum. D listi
hlaut 446 atkvæði eða 52,9% en J
listi 398 eða 47,1%. Auðir seðlar og
ógildir voru 39. Á kjörskrá í Snæ
fellsbæ voru 1.206 og greiddu 883
þeirra atkvæði.
mm
Þessir nemendur á nýsköpunar- og frumkvöðlabraut kynntu sundapp sem þeir
höfðu forritað.
Mikið um að vera í
Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Heiðrún Edda Pálsdóttir gerði ljóðabók í sínu lokaverkefni og kynnti hana með
glæsibrag áður en hún fór svo með nokkur vel valin ljóð.
Ingimar Þrastarson smíðaði nákvæmt líkan af sumarhúsi fjölskyldunnar sinnar í
sínu lokaverkefni.
Benedikt Osterhammer stoltur við líkanið af skólanum en hann áætlaði að um 75
vinnustundir hafi farið í smíðina.
Glaðir fulltrúar meirihlutans á kosninganóttinni, ásamt Kristni Jónassyni bæjarstjóraefni þeirra. Ljósm. af.
Sjálfstæðismenn héldu
meirihluta í Snæfellsbæ
Sigurreifir fulltrúar H listans á kosninganóttinni. Ljósm. sá.
H listi sigurvegari í Stykkishólmi
og Helgafellssveit
D listi Sjálfstæðisflokks og óháðra
sigurvegari í Grundarfirði