Skessuhorn - 18.05.2022, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022 23
Pennagrein
Dagana 25. til 27. maí nk. verð
ur haldin alþjóðleg ráðstefna í
Snorrastofu í Reykholti um banda
ríska heimspekinginn og rithöf
undinn Henry David Thoreau. Ber
hún yfirskriftina „Thoreau and the
Nick of Time“. Viðburðurinn hef
ur verið á dagskrá Snorrastofu frá
vorinu 2020, en ítrekað verið fre
stað vegna farsóttarinnar.
Thoreau er einn þekktasti rithöf
undur og heimspekingur Banda
ríkjanna fyrr og síðar. Hann var
áhugasamur um Snorra Sturluson
og vitnaði ítrekað til hans í verkum
sínum, aðallega dagbókum. Thor
eau er annars hvað þekktastur fyrir
bókina Walden, sem er lykilverk á
sviði náttúruheimspeki og náttúru
verndar. Kom bókin út á vegum
bókaútgáfunnar Dimmu árið 2017
í einstaklega vandaðri þýðingu
Elísabetar Gunnarsdóttur og Hild
ar Hákonardóttur. Þá er Thoreau
ekki síður þekktur fyrir kenningar
sínar um borgaralega óhlýðni og í
því sambandi var hann fyrirmynd
manna eins og Mahatma Gandhi
og Martin Luther King.
Ráðstefnan er undirbúin í sam
vinnu The Thoreau Society,
stærstu samtök Bandaríkjanna um
einstakan rithöfund. Fer hún fram
í tveimur málstofum, í Hátíðarsal
og bókhlöðu. Fyrirlesarar verða 37
talsins og koma þeir og aðrir gestir
frá tíu löndum. Margir af fremstu
Thoreausérfræðingum heimsins
taka þátt.
Ráðstefnan er opin öllum og er
aðgangur ókeypis. Sjá nánar á www.
snorrastofa.is. Uppbyggingarsjóð
ur Vesturlands er meðal þeirra sem
styðja viðburðinn.
-fréttatilkynning
Ráðstefna um
Henry David Thoreau í Snorrastofu
Í síðustu viku var undirrituð
viljayfirlýsing um uppbyggingu
græns iðngarðs byggðum á
hringrásarhugsun á Grundartanga
í Hvalfjarðarsveit. Að þessu kröft
uga verki standa Þróunarfélag
Grundartanga, fimm sveitarfélög,
Faxaflóahafnir og 15 öflug fyrir
tæki. Verndari verkefnisins er Guð
laugur Þór Þórðarson, umhverfis,
orku og loftslagsráðherra.
Munar um minna
Í dag eru um 20 stór og smá iðn
og þjónustufyrirtæki á Grundar
tanga sem veita yfir 1.100 manns
atvinnu. Rekja má um 2.000 afleidd
störf til starfsemi svæðisins. Þessi
samsteypa eru langstærstu vinnu
veitendur Hvalfjarðarsveitar og
Akraness. Tvö stærstu fyrirtækin,
Norður ál og Elkem Ísland, greiða
laun og kaupa þjónustu fyrir rúm
lega 23 milljarða króna á ári. Munar
nú um minna.
Atvinnusvæðið var byggt upp í
sameiningu kröftugra fyrirtækja og
framsýnna sveitarfélaga. Til frek
ari framfaraskrefa var Þróunarfé
lag Grundartanga stofnað 2016. Að
því standa Hvalfjarðarsveit, Borgar
byggð, Skorradalshreppur, Akra
neskaupstaður, Reykjavíkurborg og
Faxaflóahafnir. Það sameinar krafta
sveitarfélaganna, Faxaflóahafna og
fyrirtækja til að skapa öflugt sóknar
svæði og þróa vaxtarmöguleika.
Þróunarfélagið
til framfara
Þróunarfélagið hefur síðasta árið
unnið að þróun Grundartanga
svæðisins sem græns iðngarðs með
hringrásarhugsun að leiðarljósi.
Í því felst að mótuð verði sjálf
bærniumgjörð fyrir svæðið og upp
bygging hringrásarhagkerfis með
fjölnýtingu auðlinda að leiðarljósi.
Uppbygging græns iðngarðs
styður við sjálfbærni með inn
leiðingu félagslegra, efnahagslegra
og umhverfisvæn sjónarmið í
skipulagi, stýringu og framkvæmd.
Ávinningur verkefnisins er í takt
við stefnu stjórnvalda og sveitarfé
laga um að þróa hringrásarhagkerfi
og styður við aðgerðaráætlun í loft
lagsmálum.
Af hverju
Grundartangi?
Grænn iðngarður á Grundartanga
hefur alla burði til að geta orðið
leiðandi á heimsvísu með áherslu á
sjálfbærni, fjölnýtingu auðlinda og
innviða í gegnum hringrásarhag
kerfi. Þar liggja mörg tækifæri í
að minnka áhrif loftslagsbreytinga,
auka skynsama hráefnanotkun,
koma á fjölnýtingarverkefnum og
bæta frekar endurheimt auðlinda.
Í fyrsta lagi nær Grundartanga
svæðið yfir landssvæði með sam
eiginlegt aðalskipulag. Það auð
veldar framþróun svæðisins. Í ann
an stað kemur rafmagn til svæðisins
frá endurnýjanlegum auðlindum. Í
þriðja lagi eru afurðir Grundartanga
ýmist endurvinnanlegar eða lífræn
ar og falla vel að hringrásarhugsun.
Aukaafurðir svæðisins eru vel nýttar
í efna og byggingariðnað. Í fjórða
lagi skiptir miklu að helstu þátt
takendur hringrásargarðsins eru
jákvæðir gagnvart verkefninu og
geta lagt til þess með margvísleg
um hætti.
Margþættur árangur
fólks og fyrirtækja
Ávinningur þessarar vegferðar mun
skila sér m.a. í spennandi umhverfi
fyrirtækja sem hafa hug á að nýta
tækifæri í sjálfbærni og taka þátt í
uppbyggingu svæðisins til framtíð
ar. Auk þess er þróunin í samræmi
við aðgerðaráætlanir yfirvalda í
loftslagsmálum og stefnu í átt að
hringrásarhagkerfi.
Fyrir þátttakendur í
hringrásarhagkerfi svæðisins liggur
ávinningur til skemmri tíma í meiri
hagsæld, auknum tekjum, sparnaði
og lægri framleiðslukostnaði.
Umhverfisáhrif lágmörkuð, auð
lindanotkun minnkar sem og los
un óæskilegra efna. Auk betri nýt
ingu hráefna svo sem vatns, orku og
annarra efna.
Minni mengun - Meiri
nýtni
Grænum iðngarði er ætlað að minnka
losun mengunar og gróðurhúsaloft
tegunda, um leið og úrgangur lág
markast sakir aukinnar hringrásar.
Það þýðir betri stýringu umhverfis,
félagslegra og fjárhagslegrar áhættu.
Aukin heldur ætti þetta að opna á
aðra markaði, og möguleika fjölgun
vörutegunda og þjónustu sem laðar
að nýja viðskiptavini.
Við grænan iðngarð byggðan
á hringrásarhugsun fjölgar störf
um með aukinni áherslu á heilsu og
öryggi starfsfólks.
Til lengri tíma bætir það ímynd
með jákvæðri umfjöllun. Öflugir
starfskraftar laðast að og nýir fjár
festar. Þá dregur úr rekstrar og
ímyndar og orðsporsáhættu. Þessi
vegferð er einnig líkleg til að auka
aðgengi að styrkjum og grænni fjár
mögnun. Eftir standa samkeppnis
hæfari fyrirtæki og styrkara samfé
lag.
Viljayfirlýsingin er mikilvæg fyrir
framtíðaruppbyggingu athafnalífs á
Grundartanga. Hún veit á gott fyrir
íbúa nærliggjandi sveitarfélaga sem
og framtíðarkynslóðir.
Björgvin Helgason.
Höf. er oddviti Hvalfjarðarsveit-
ar og varaformaður Þróunarfélags
Grundartanga.
Ólafur Adolfsson.
Höf. er formaður Þróunarfélags
Grundartanga og bæjarfulltrúi á
Akranesi.
Grænn iðngarður
rís á
Grundartanga
Sigrún Helgadóttir framkvæmdastjóri Norðuráls staðfestir vilja til þátttöku í
uppbyggingu á grænum iðngarði.
Stjórn Þróunarfélag Grundartanga. Frá hægri: Ólafur Adolfsson stjórnarformaður Þróunarfélagsins, Gunnar Tryggvason
hafnarstjóri Faxaflóahafna, Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akra-
neskaupstaðar, Guðlaugur Þór Þórðarson ráðherra verndari verkefnisins, Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri Borgarbyggð-
ar, Árni Hjörleifsson oddviti Skorradalshrepps, Þorsteinn Gunnarsson borgarritari Reykjavíkur.
Það er við hæfi að sérstakur verndari verkefnisins sé Guðlaugur Þór Þórðarson
umhverfis-, orku og loftlagsráðherra.