Skessuhorn - 18.05.2022, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022 27
Gamla myndin
Í tilefni þess að á næsta ári fagnar Skessuhorn 25
ára starfsafmæli sínu hefur ritstjórn blaðsins aðeins
verið að grúska ofan í gömlum myndakössum sem
geyma myndir fyrir og í kringum síðustu aldamót.
Mynd vikunnar er frá árinu 2004 og er tekin á
Bjarteyjarsandi í Hvalfjarðarsveit en þangað fer
leikskólinn Garðasel á Akranesi á hverju ári í
Lambaferð. Fyrirsætan sem þarna er á fjórða ári
heitir Arna Berg Steinarsdóttir og fagnar 22 ára
afmæli sínu í sumar.
Skallagrímur leikur í fjórðu
deildinni í fótbolta þriðja árið í röð
í sumar en liðið féll úr þeirri þriðju
árið 2019. Liðið endaði í fimmta
sæti í B riðli fjórðu deildar í fyrra,
vann fjóra leiki, gerði þrjú jafntefli
og tapaði sjö. Sölvi G. Gylfason er
þjálfari liðsins eins og síðastliðin
tvö ár og við heyrðum í Sölva með
sumarið sem framundan er.
Sölvi segir að undirbúnings
tímabilið hafi gengið ágætlega, þeir
hafi spilað marga æfingaleiki og
tekið þátt í Lengjubikarnum. Spila
mennskan hefði oft á tíðum ver
ið góð og auðvitað komið augna
blik þar sem hlutirnir hefðu mátt
fara betur, en það jákvæða var að fá
sem flesta leiki yfir veturinn til að
vera sem mest tilbúnir fyrir sum
arið. Hafa orðið miklar breytingar
á liðinu frá síðasta tímabili? „Já og
nei, það hafa komið inn margir nýir
leikmenn en að sama skapi höfum
við náð að halda nokkrum lykil
mönnum frá síðustu sumrum. Við
höldum áfram hinu góða samstarfi
við 2. flokk ÍA og höfum fengið öfl
uga leikmenn frá þeim. Það munu
tveir erlendir leikmenn spila með
okkur í sumar; Alexis Alexandrenne
frá Frakklandi sem er sóknar
sinnaður miðjumaður og Sergio
Fuendes, kantmaður frá Spáni. Þá
fengum við markmanninn Bjarka
Rúnar Ívarsson, kantmanninn Dav
íð Frey Bjarnason og kant/miðju
manninn Elís Dofra G. Gylfa
son frá Kára. Auk þess fengum við
miðjumanninn öfluga Sigurjón
Loga Bergþórsson frá Sindra. Við
bindum miklar vonir við þessa leik
menn og teljum að þeir styrki liðið
mjög fyrir komandi sumar.“
Fer ekki
í sögubækurnar
Nú töpuðuð þið um miðjan apr
íl fyrir Reyni Hellissandi 51 í
Mjólkurbikarnum sem síðan töp
uðu í næstu umferð 016 fyrir ÍR
sem leika í 2. deild. Hvað hefur
gerst síðan þá og hvað segir þetta
um ykkar styrkleika? „Sá leikur fer
sennilega ekki sögubækurnar hjá
Skallagrími en það vantaði marga
leikmenn í þeim leik en að sama
skapi verður að hrósa Reynismönn
um fyrir mun meiri baráttu og vilja
í þeim Vesturlandsslag og þeir áttu
sigurinn skilinn. Það voru margir
ungir leikmenn sem spiluðu og
fengu góða reynslu. Ég held að sá
leikur segi ekki mikið um okkar
styrkleika þar sem það vantaði tals
vert marga hjá okkur og við vor
um að spila á ungu liði en ásamt því
höfum við fengið inn marga nýja
leikmenn sem hafa styrkt hópinn.
Staðan í dag er sú að við erum með
sterkari hóp núna þegar Íslands
mótið er að hefjast heldur en þegar
við spiluðum bikarleikinn og það
vantaði marga.“
Allir á völlinn!
Sölvi segir að þeim lítist vel á riðil
inn þeirra í sumar, það séu sterk lið
í honum og ljóst að þeir þurfi að
mæta tilbúnir í hvern einasta leik.
En hver eru markmið sumarsins?
„Markmið sumarsins er að ná einu
af fyrstu tveimur sætunum í riðlin
um en KSÍ samþykkti að fjölga um
eina deild sem tekur gildi á næsta
ári og ef við náum fyrstu tveimur
sætunum náum við að halda okk
ur í henni. Annars er markmiðið
fyrst og fremst að æfa vel og spila
góðan fótbolta ásamt því að vera
Skallagrími til sóma innan sem
utan vallar. Eitthvað að lokum? „Ég
vil hvetja alla til að mæta á völlinn í
sumar. Áfram Skallagrímur!“ vaks
Reynir Hellissandi leikur í A riðli 4.
deildar í sumar en í fyrra tók liðið
þátt í fyrsta skipti á Íslandsmótinu
í knattspyrnu. Þar endaði Reynir
í sjötta sæti í C riðli með tólf stig
í 16 leikjum, vann þrjá leiki, gerði
þrjú jafntefli og tapaði tíu. Brynj
ar Kristmundsson tók við af Kára
Viðarssyni sem þjálfari liðsins fyr
ir þetta tímabil og er hann einnig
aðstoðarþjálfari Víkings Ólafsvík
ur sem leikur í 2. deild. Skessuhorn
heyrði hljóðið í hinum nýja þjálf
ara og spurði hann fyrst hvernig
undirbúningstímabilið hefði geng
ið. Brynjar segir að heilt yfir hafi
hann bara verið nokkuð sáttur með
veturinn en ef horft væri einung
is í úrslit leikjanna þá væri hægt
að tala um vondan og erfiðan vet
ur. Hins vegar hafi alltaf verið stíg
andi í frammistöðunni og því klár
lega hægt að taka það inn í sumarið.
Hafa orðið miklar breytingar
á liðinu frá síðasta tímabili?
„Kjarninn í hópnum er enn til stað
ar, einhverjir hafa sagt þetta gott og
ný andlit mætt í staðinn. Breytingar
á milli leikja hafa hins vegar verið
of miklar oft á tíðum. Ég hef heldur
betur fengið að kynnast heiðarleik
anum í 4. deildinni þar sem fótbolt
inn er einungis áhugamál og menn
mæta þegar þeir komast. Það hefur
verið skemmtileg áskorun og sett
mig upp á tærnar.“
Elska að sjá strákana
taka smá áhættu
Nú hefur þú tekið við þjálfun
liðsins af Kára Viðarssyni. Ein
hverjar áherslubreytingar sem
koma með þér og er eitthvað sam
starf milli ykkar og Víkings Ólafs
víkur? „Ég hef lagt mikla áherslu
á það að menn hafi trú og hug
rekki til þess að spila góðan og
skemmtilegan fótbolta. Ég elska að
sjá strákana taka smá áhættu. Láta
boltann stjórna hraðanum á leikn
um og fækka tilviljunum. Það hef
ur tekið smá tíma en strákarnir hafa
tekið mjög miklum framförum í
því. Við höfum fengið þrjá stráka
á 2. flokks aldri til okkar á láni frá
Víkingi. Við erum ekki með starf
andi 2. flokk hérna á Snæfellsnesi
þannig að það er frábært tækifæri
fyrir þá að koma yfir í Reyni til þess
að fá örvunina í því að spila fót
boltaleiki. Stökkið á milli 3. flokks
og að spila í 2. deildinni með Vík
ing er ansi stórt og er þetta frábært
milliskref fyrir þá.“
Að safna stigum
Aðspurður segir Brynjar að hon
um lítist bara þokkalega á þeirra
riðil í 4. deildinni í sumar. „Þetta
er sterkur riðill, Hvíti Riddarinn
virðist vera nokkuð afgerandi lið
í þessum riðli og held ég að hin
liðin séu nokkuð áþekk. Ég hef
fulla trú á því að við getum gefið
þessum liðum almennilegan leik.“
En hver eru markmið sumarsins?
„Fyrst og fremst að reyna að safna
eins mörgum stigum og mögulegt
er, að reyna að bæta okkur sem lið
í hverri viku og skemmta fólkinu
með góðum fótbolta.“ Brynjar seg
ir að lokum að hann hlakki til að
sjá þeirra fólk á vellinum í sumar:
„Sjónarhornið úr stúkunni er mun
betra en úr bílnum, ég get lofað
ykkur því.“ vaks
Takmarkið að reyna að bæta okkur sem lið
Brynjar ásamt Guðjóni Þórðarsyni þjálfara Víkings Ólafsvíkur. Ljósm. af
Markmiðið að vera Skallagrími til sóma
Sölvi G. Gylfason er þjálfari Skallagríms. Ljósm. vaks