Skessuhorn - 18.05.2022, Síða 28
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 202228
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
Klifur - tónlist - námskeið - afmæli - hópafjör
Fjölskyldutímar á sunnudögum 11-14
Afþreyingarsetur á Akranesi
smidjuloftid.is
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Pennagrein
Frá stofnun Fjölbrautaskóla Snæ
fellinga árið 2004 hefur verið
unnið samkvæmt hugmyndafræði
dreifnáms þar sem upplýsingatækni
er notuð í verkefnamiðuðu námi.
Nemendur leysa verkefni ýmist
sem einstaklingsverkefni eða sam
vinnuverkefni. Markmið þessar
ar leiðar var að þróa dreifnámsað
ferðir samhliða dagskólakennslu.
Unnið er samkvæmt leiðsagnar
námi þar sem kennarar sinna verk
stjórnar og leiðsagnarhlutverki.
Sömuleiðis er námsmati hagað
þannig að nemendur fá upplýs
ingar um hvað þeir gera vel ásamt
ábendingum um það sem betur má
fara, svokallað leiðsagnarmat. Með
þessum vinnuaðferðum verður
nemandi virkur þátttakandi í eigin
námi og meðvitaður um styrkleika
sína og veikleika.
Innan æ fleiri framhaldsskóla
hefur leiðsagnarnám ýmist verið
tekið upp að hluta eða öllu leyti.
Snemma á þessu ári var haldin fjöl
menn námsstefna um leiðsagnar
nám og fór hún fram í Fjölbrauta
skólanum í Mosfellsbæ. Tve
ir kennarar skólans voru þar með
málstofur þar sem þeir kynntu
kennsluaðferðir sínar og svöruðu
spurningum áhugasamra kennara
annarra skóla.
Notkun upplýsingatækni í
kennslu hefur einnig gert það að
verkum að nærsamfélag skólans
er stærra en ella þar sem nemend
ur þurfa ekki nauðsynlega að vera
í skólahúsnæðinu í Grundarfirði til
að stunda nám sitt og vera í sam
bandi við kennara. Kennslustund
um er skipt í fastar kennslustundir
sem öllum dagskólanemendum ber
skylda til að mæta í og verkefnatíma
þar sem nemendur geta leitað til
kennara eftir þörfum. Þannig geta
nemendur jafnvel hitt, fleiri en einn
kennara í hverjum verkefnatíma.
Vegna sérstöðu í kennsluhátt
um reyndist bæði nemendum og
kennurum FSN tiltölulega auð
velt að færa alla kennslu yfir á ver
aldarvefinn þegar sóttvarnaryfir
völd fyrirskipuðu að loka skyldi öll
um framhaldsskólum tímabund
ið. Stundaskrár héldust óbreyttar
þennan tíma og nemendur mættu
í kennslustundir á Teams, unnu
verkefni samkvæmt fyrirmælum
kennara og fengu þá leiðsögn sem
þeir þurftu.
Eftir að skólahald mátti hefj
ast á ný, var ákveðið með tilliti til
umhverfissjónarmiða og þess að
kennsla á veraldarvefnum gekk vel,
að akstur í skóla yrði fjóra daga vik
unnar. Það þýðir þó ekki að kennsla
sé einungis fjóra daga í viku, held
ur eru verkefnatímar á föstudögum
þar sem ætlast er til að nemendur
leiti leiðsagnar kennara. Til við
bótar við fjórar fastar 50 mínútna
kennslustundir í hverjum fimm
eininga áfanga hefur hver kennari
40 mínútna verkefnatíma í hverj
um hópi. Kennari getur því ver
ið með allt að 2,5 klst. í verkefna
tíma. Þannig geta nemendur feng
ið mun meiri tíma með kennara en
námskrár gera ráð fyrir.
Rannsóknarmiðstöðin, Rann
sóknir og greining, lagði könnun
fyrir framhaldsskólanema á landinu
í nóvember árið 2021. Niðurstöð
ur þeirrar könnunar leiddu í ljós að
nemendur skólans fundu almennt
minna fyrir streitu samhliða far
aldrinum en nemendur annarra
skóla.
Nemendur okkar tala sérstaklega
um gott aðgengi að kennurum og
að samstarf við þá sé á jafningja
grundvelli. Niðurstöður könnun
ar Rannsóknar og greiningar stað
festa þetta. Einnig kom fram að
kennslufyrirkomulagið hafi hentað
vel og nemendur átt auðvelt með
að stunda námið. Auk þess töldu
84% nemenda námið einkennast
af fjölbreytni. Í skólanum eru ekki
lokapróf en styttri próf eru lögð
fyrir á skólatíma. Vinnuálag á nem
endur er nokkuð jafnt yfir skólaárið
þó vissulega geti komið álagspunkt
ar. Allan námsferilinn þurfa nem
endur að skipuleggja vinnu sína og
sinna henni vel. Tileinki þeir sér
þessi vinnubrögð ættu þeir að vera
vel undirbúnir fyrir nám og störf í
nútíma samfélagi.
Erna Guðmundsdóttir og Þiðrik
Örn Viðarsson, íslenskukennarar,
Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson,
enskukennari.
Fjölbrautaskóli Snæfellinga, hvað er
svona merkilegt við hann?