Skessuhorn - 18.05.2022, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 202230
Hvert er uppáhalds
bústarfið?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Kaupfélagi Borgfirðinga)
Helga Rósa Pálsdóttir
,,Horfa á Ámunda gefa hestin
um mínum.“
Guðrún Sigurðardóttir
,,Útreiðar.“
Svanur Pálsson
,,Hirða skepnur og gefa.“
Guðjón Steinarsson
,,Heyja.“
Björn Jónsson
,,Fara í leitir.“
Íþróttamaður vikunnar
Í þessum lið leggjum við fyrir tíu
spurningar til íþróttamanna úr
alls konar íþróttum á öllum aldri á
Vesturlandi. Íþróttamaður vikunn
ar að þessu sinni er knattspyrnu
maðurinn Anel frá Ólafsvík.
Nafn: Anel Crnac
Fjölskylduhagir? Foreldrar mín
ir koma frá Bosníu og búa í Ólafs
vík ásamt systur minni. Ég bý með
þeim yfir sumarið en fer aftur í
bæinn þegar skólinn byrjar.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Fótbolti og box.
Hvernig er venjulegur dagur hjá
þér um þessar mundir? Vakna
klukkan 9, mæti í vinnuna og vinn
til klukkan 17. Eftir vinnu fer ég
á æfingu og svo beint í pottinn.
Mjöög óspennandi dagar um þess
ar mundir.
Hverjir eru þínir helstu kost
ir og gallar? Keppniskapið í mér
er kosturinn og gallinn við mig.
Hann hjálpar mér í íþróttum en
get stundum verið tapsár þegar ég
er að spila UNO með vinum.
Hversu oft æfir þú í viku? Fimm til
sex sinnum.
Hver er þín fyrirmynd í íþróttum?
Zlatan Ibrahimovic hefur alltaf
verið mikil fyrirmynd.
Af hverju valdir þú knattspyrnu?
Byrjaði að æfa þegar ég var í 2.
bekk af því að vinir mínir drógu
mig á æfingu með þeim.
Hver er fyndnastur af þeim sem þú
þekkir? Konráð Ragnarsson.
Hvað er skemmtilegast og leiðin
legast við þína íþrótt? Skemmtileg
ast að vinna leiki, leiðinlegasta við
íþróttina er að spila í roki og rign
ingu.
Keppnisskapið kostur og galli
Síðasta laugardag hélt Badminton
félag Akraness lokahóf sitt en fyrr
um daginn var innanfélagsmót þar
sem iðkendur félagsins kepptu og
einnig gátu foreldrar eða aðstand
endur krakkanna tekið þátt með
þeim í keppni í tvíliða og eða
tvenndarleik þar sem hart var
barist. Síðan var boðið upp á pizzu
og drykki og krakkarnir verðlaun
aðir fyrir tímabilið. Að endingu var
happdrætti og því margir sem fóru
ánægðir heim eftir vel heppnaðan
vetur hjá Badmintonfélagi Akra
ness.
vaks
ÍA fékk Sindra í heimsókn í 2.
umferð Mjólkurbikars kvenna í
knattspyrnu á laugardaginn og fór
leikurinn fram í blíðskaparveðri á
Akranesvelli. Ylfa Laxdal Unnars
dóttir kom heimakonum yfir á
tíundu mínútu og þannig var stað
an í hálfleik. Unnur Ýr Haralds
dóttir kom síðan ÍA í góða stöðu
strax í byrjun seinni hálfleiks og
það var ekki fyrr en undir lok leiks
ins sem gestirnir minnkuðu mun
inn með marki frá Samiru Sulem
an, lokatölur leiksins 21 fyrir ÍA
og þær því komnar í 16liða úrslit
Mjólkurbikarsins.
Næsti leikur ÍA er úrslitaleikur í
C deild Lengjubikarsins gegn Völs
ungi. Hann verður næsta fimmtu
dag á Sauðárkróksvelli og hefst
klukkan 19.
Mæta KR í 16 liða
úrslitum
Dregið var í hádeginu í gær í
16liða úrslit Mjólkurbikars
kvenna. Skagakonur sem leika í
2. deild voru í pottinum og fengu
heimaleik gegn KR sem vermir
botnsætið í Bestu deild kvenna.
Hin liðin sem drógust saman
eru eftirfarandi: Tindastóll
Valur, SelfossAfturelding, ÍH/
FHStjarnan, Þór/KAAugna
blik/Haukar, Þróttur R.Víking
ur R, KeflavíkÍBV og Fjarða
byggð/Höttur/LeiknirBreiða
blik.
16liða úrslitin fara fram dag
ana 27. til 29. maí næstkomandi
en liðin í Bestu deild kvenna
komu nú inn í keppnina ásamt
þeim sex liðum sem unnu sína
leiki í 2. umferð. Leikur ÍA og
KR verður laugardaginn 28. maí
á Akranesvelli og hefst klukkan
13.
vaks
Landsbankamót Íþróttabandalags
Reykjanesbæjar (ÍRB) fór fram í
Keflavík um liðna helgi og tóku
þar þátt 29 einstaklingar á veg
um Sundfélags Akraness. Tóku þar
meðal annars þátt 8 ára sundmenn
sem stungu sér til sunds í fyrsta
skipti á móti. Einnig var keppt
í flokkum 12 ára og yngri, 13 ára
og eldri og 1517 ára. Í piltaflokki
1517 ára var slegið nýtt Akra
nesmet en það var Einar Margeir
Ágústsson sem synti 50 metra flug
sund á 27,12 sekúndum. Fyrra met
átti Ágúst Júlíusson á 27,25 sek
úndum frá árinu 2006. Gekk mótið
heilt yfir vel hjá ungu sundfólki
Akraneskaupstaðar. sþ Yngstu iðkendurnir voru ánægðir með lokahófið. Ljósm. vaks
Lokahóf hjá Badminton-
félagi Akraness
Sundfólk frá Akranesi tók
þátt í sundmóti í Keflavík
Skagakonur komnar í 16-liða úrslit
í Mjólkurbikarnum
Skagakonur stilltu sér upp fyrir leikinn gegn Sindra. Ljósm. kfía