Skessuhorn - 18.05.2022, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022 31
Kári og KFS frá Vestmannaeyj
um áttust við í 3. deild karla í
knattspyrnu á laugardaginn og var
leikurinn í Akraneshöllinni. Fylk
ir Jóhannsson kom Kára yfir á
18. mínútu leiksins og fyrirliðinn
Andri Júlíusson skoraði annað
mark fyrir Kára á 37. mínútu en
áður í leiknum hafði Andri mis
notað vítaspyrnu. Staðan því 20 í
hálfleik og Kári í ansi góðum mál
um.
Það varði þó ekki lengi því Oskar
Wasilewski fékk rautt spjald í byrj
un seinni hálfleiks og Káramenn
manni færri. Korteri seinna fékk
hins vegar Leó Viðarsson sitt ann
að gula spjald hjá gestunum og það
var síðan hinn 17 ára gamli Axel
Freyr Ívarsson sem gulltryggði sig
ur Kára í uppbótartíma, lokatölur
30.
Kári er í þriðja sæti deildarinnar
með fjögur stig eftir tvo leiki eins
og lið Elliða en Dalvík/Reynir og
Víðir eru efst með sex stig. Næsti
leikur Kára er gegn Kormáki/Hvöt
næsta laugardag á Blönduóssvelli
og hefst klukkan 14.
vaks
Ægir og Víkingur Ólafsvík mætt
ust í 2. deild karla í knattspyrnu á
föstudaginn og fór leikurinn fram
á Þorlákshafnarvelli. Brynjar Krist
mundsson stýrði liði Víkings í fjar
veru Guðjóns Þórðarsonar sem
var í leikbanni eftir að hafa feng
ið rautt spjald í fyrstu umferðinni
gegn Völsungi.
Fátt var um fína drætti í leiknum
en Ægismenn voru talsvert betri
aðilinn allan leikinn. Þeir náðu þó
ekki að koma tuðrunni inn fyrir
línuna og markalaust jafntefli var
niðurstaðan.
Næsti leikur Víkings í deildinni
er næsta laugardag gegn toppliði
Njarðvíkur á Ólafsvíkurvelli og
hefst klukkan 14.
vaks
Knattspyrnulið Kára á Akranesi
hefur fengið góðan liðsstyrk fyr
ir komandi átök í 3. deild karla
í knattspyrnu í sumar. Ragnar
Leósson er kominn aftur á Skag
ann og ætlar að taka slaginn með
Kára í annað skiptið á ferlin
um. Ragnar spilaði lykilhlutverk
í liði Fjölnis í fyrra þegar liðið
var hársbreidd frá því að ná sæti
í Bestu deildinni en hann spilaði
21 leik og skoraði í þeim fjögur
mörk.
Þá hafði varnarmaðurinn Oskar
Wasilewski félagaskipti úr Aftur
eldingu í Kára rétt fyrir lok félags
skiptagluggans. Oskar sem er 22
ára hefur undanfarin tímabil leik
ið með Aftureldingu en árin 2018
og 2019 spilaði hann tólf leiki með
Kára í deild og bikar.
vaks
Skagamenn léku tvo leiki í
liðinni viku í Bestu deild karla í
knattspyrnu og var sá fyrri þegar
Valur og ÍA mættust síðastliðinn
miðvikudag á Hlíðarenda. Lítið
markvert gerðist í fyrri hálfleikn
um, hvorugt liðið tók mikla áhættu
og leikurinn lítt fyrir augað. Á 24.
mínútu fengu Skagamenn skyndi
sókn og eftir góða sendingu frá Kaj
Leó í Bartalsstovu fékk Gísli Laxdal
Unnarsson boltann en skaut yfir úr
dauðafæri. Eftir því sem leið á fyrri
hálfleikinn sóttu Valsmenn meira
og uppskáru loks mark á lokamín
útunni. Valsmaðurinn Birkir
Heimisson sendi langa sendingu
upp að endamörkum hægra megin
þar sem Birkir Már Sævarsson lagði
boltann út í vítateig á Patrick Ped
ersen sem skoraði af miklu öryggi,
staðan í hálfleik því 10 fyrir Val.
Í seinni hálfleik var alger ein
stefna að marki Skagamanna og
útkoman eftir því. Árni Snær Ólafs
son varði vel í tvígang áður en Vals
menn skoruðu sitt annað mark eft
ir rúmlega klukkutíma leik. Árni
Snær varði þá frá Pedersen í dauða
færi, boltinn hrökk síðan til Arnórs
Smárasonar sem lagði hann snyrti
lega á Tryggva Hrafn Haraldsson
sem skoraði sitt fyrsta mark í sum
ar. Skagamenn virtust enn vankað
ir því þremur mínútum síðar fengu
þeir á sig þriðja markið. Guðmund
ur Andri Tryggvason jók þá for
skotið enn meir þegar hann skoraði
eftir sendingu frá Arnóri. Fjórða
og síðasta mark leiksins kom á 72.
mínútu en þá átti Alexander Davey
slaka sendingu úr vörninni, beint á
Birki Heimisson sem fann Tryggva
Hrafn sem skrúfaði boltann laglega
í fjærhornið og gulltryggði stórsig
ur Valsmanna, lokatölur 40.
ÍA tók síðan á móti KA á sunnu
daginn og varð að sætta sig við
þriðja tap sitt í röð í deildinni.
Norðanmenn komust yfir strax á
elleftu mínútu þegar Árni Snær
Ólafsson kýldi boltann út úr teign
um og hann datt fyrir fætur Dan
íels Hafsteinssonar sem hamr
aði boltann upp í samskeytin á
marki ÍA, glæsilegt mark og stað
an 01. Stuttu síðar kom Eyþór
Aron Wöhler boltanum í netið
fyrir Skagamenn en var réttilega
dæmdur rangstæður. Lítið annað
markvert gerðist í fyrri hálfleik og
gestirnir því með eins marks for
ystu þegar flautað var til hálfleiks.
Skagamenn voru sterkari í byrj
un seinni hálfleiks og það var gegn
gangi leiksins þegar KA menn
skoruðu eftir tæplega tíu mínútna
leik. Elfar Árni Aðalsteinsson fékk
þá sendingu í gegn og setti boltann
undir Árna Snæ í markinu. Aðeins
fimm mínútum síðar fengu heima
menn vítaspyrnu þegar brotið var á
Gísla Laxdal Unnarssyni en mark
vörður KA varði spyrnu Gísla.
Skagamenn misstu móðinn eftir
þetta og það var síðan Jakob Snær
Árnason sem bætti við þriðja marki
KA skömmu fyrir leikslok eftir
klafs í teig Skagamanna, lokastaðan
þriggja marka sigur KA, 03.
Skagamenn hafa nú tapað þrem
ur leikjum í röð í Bestu deildinni
með markatölunni 112 og Jón
Þór Hauksson, þjálfari ÍA, sagði í
viðtali eftir leik að hann væri nátt
úrulega bara hundsvekktur og þeir
væru að fá alltof mörg og ódýr
mörk á sig. ÍA er nú í áttunda sæti
deildarinnar með fimm stig eft
ir sex leiki og mætir næst liði ÍBV
sem situr í tíunda sæti með tvö stig.
Leikurinn verður næsta laugardag
í Vestmannaeyjum og hefst klukk
an 16.
vaks
Skallagrímur lék sinn fyrsta leik í
sumar þegar liðið tók á móti Árbæ
í A riðli 4. deildar í knattspyrnu
karla á mánudaginn og fór leik
urinn fram í blíðskaparveðri á
Skallagrímsvelli í Borgarnesi.
Gestirnir komust yfir á sjöttu mín
útu með marki frá Hjalta Kárasyni
Djurhuus en Davíð Freyr Bjarna
son jafnaði metin fyrir heima
menn eftir rúmlega tuttugu mín
útna leik. Rétt fyrir hálfleik varð
Númi Steinn Hallgrímsson fyrir
því óláni að skora sjálfsmark fyr
ir Árbæ og staðan í hálfleik því 21
fyrir Skallagrími.
Elís Dofri G. Gylfason kom
Sköllunum í 31 á 58. mínútu
en Pape Mamadou Faye hleypti
spennu í leikinn þegar hann skoraði
fyrir Árbæ fjórum mínútum síðar.
Það var síðan Sergio Fuentes Jorda
sem tryggði sigur Skallagríms með
fjórða marki Skallagríms sjö mín
útum fyrir leikslok og lokastaðan
var góður sigur Skallagríms, 42.
Næsti leikur Skallagríms í
deildinni er Vesturlandsslag
ur gegn Reyni Hellisandi þriðju
daginn 24. maí á Ólafsvíkurvelli og
hefst klukkan 20.
vaks
Knattspyrnudeild Víkings í Ólafs
vík hefur samið við spænska leik
manninn Luis Romero um að leika
með liðinu í sumar. Í fréttatilkynn
ingu frá Víkingi segir að hinn 23
ára Luis Romero sé eldfljótur og
fjölhæfur leikmaður sem geti leyst
nokkrar stöður framarlega á vellin
um.
Romero hefur leikið víða á ferl
inum og meðal annars verið í ung
lingaliðum Real Madrid en var
síðast hjá AD Parla sem leikur í
spænsku fimmtu deildinni. Hann
er kominn með leikheimild og var
væntanlegur til landsins um síðustu
helgi.
vaks
Skallagrímur vann Árbæ í 4. deildinni
Það var bongóblíða í Borgarnesi í leiknum á mánudaginn. Ljósm. glh
Spænskur sóknarmaður í Víking
Louis Romero er nýr leikmaður Víkings. Ljósm. Víkingur Ólafsvík
Ragnar Leósson er kominn í Kára.
Ljósm. af FB síðu Kára
Ragnar Leósson genginn til liðs við Kára
Byrjunarlið Kára gegn KFS. Ljósm. Kári
Kári með sigur í
fyrsta heimaleiknum
Markalaust jafntefli
hjá Víkingi Ólafsvík
Skagamenn töpuðu gegn KA
Alexander Dayvey í loftköstunum í leiknum gegn Val. Ljósm. Lárus Árni Wöhler