Skessuhorn - 08.06.2022, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 202214
Það var annatími í Stykkishólms-
höfn á mánudaginn þegar skemmti-
ferðaskipið Ocean Diamond kom
þangað. Skipið er 144 metra langt
og 16 metra breitt. Við hlið þess
á myndinni er Breiðafjarðarferjan
Baldur sem ekki er byrjað að lesta
en sjá má tóma gámaflutningabíla
sem voru á leiðinni að sækja afurð-
ir úr laxeldi á Vestfjörðum. Bald-
ur er tæpir 68,3 metrar á lengdina
og 11,6 metra breiður. Hann tekur
280 farþega auk bíla og siglir eina
ferð á dag fram til 15. júní að Sjó-
mannadeginum 12. júní undantekn-
um, ekki verður siglt á þeim hátíðis-
degi. Sumartíminn er mikill anna-
tími í ferðaþjónustu á svæðinu og
því vandséð að Baldur sé nógu stór
þegar mesta álagið er. gj/ Ljósm. sá.
Byggðaráð Borgarbyggðar tók á
fundi sínum 17. maí síðastliðinn
fyrir skýrslu eldvarnaeftirlits-
manns Slökkviliðs Borgarbyggð-
ar frá deginum áður. Þar er fjall-
að um ástand eldvarna í starfs-
stöð Grunnskóla Borgarfjarðar á
Varmalandi. Við skoðun á húsinu
fundust ágallar sem teljast alvarleg-
ir og fól byggðarráð sveitarstjóra
að láta gera kostnaðar mat á þeim
framkvæmdum sem nauðsynlegt er
talið að ganga í og leggja fyrir fyrsta
fund nýs byggðarráðs. Meðal þess
sem fram kemur í skýrslunni eru
athugasemdir um að flóttaleiðir séu
ekki til staðar eða séu ógreiðfærar,
björgunarop séu ekki fyrir hendi,
merkingum sé ábótavant og að
ganga þyrfti betur frá raflögnum.
Skólastarfi er nú að ljúka á Varma-
landi og munu úrbætur væntanlega
eiga sér stað fyrir næsta skólaár. gj
Líflegt á hafnarsvæðinu
í Stykkishólmi
Skólahúsnæðið á Varmalandi. Ljósm. sþ.
Ágallar á brunavörnum grunn-
skólabyggingar á Varmalandi Málþing og bílasýning fór fram í
Reykholti í Borgarfirði síðastliðinn
laugardag. Á málþinginu var fjall-
að um gamlar bifreiðar, varðveislu-
gildi þeirra og sögulegt samhengi.
Á bílaplaninu við Reykholtskirkju
var svo glæsileg fornbílasýning.
Mátti þar meðal annars sjá vinnu-
vélar, sportbíla, rútur og fjallajeppa
en gestir gátu gengið um og barið
augum gamlar glæsikerrur í tuga-
tali. sþ
Nýr meirihluti Samfylkingar,
Framsóknarflokks, Pírata og Við-
reisnar í Reykjavík var kynntur á
mánudaginn. Í samstarfssáttmála
flokkanna kemur fram skýr vilji
um að hefja gerð umhverfismats
vegna Sundabrautar. Áætlað er að
lagning Sundabrautar muni skila
á bilinu 186-238 milljarða króna
ábata eftir því hvort valin verði brú
eða göng yfir Kleppsvík. Felst sá
sparnaður að mestu leyti í minni
akstri, útblæstri og mengun og
styttri ferðatíma vegfarenda. Ef brú
verður fyrir valinu tekur hún titil-
inn lengsta brú landsins af Borgar-
fjarðarbrúnni og verður 1172
metra löng, með fjórum akrein-
um og göngu- og hjólaleið. Hún
myndi rísa í 35 metra hæð yfir haf-
flötinn með 30 metra siglingahæð
og 100 metra breiðri siglingarennu
undir henni miðri. Með þessu yrði
hægt að sigla undir brúna til að nýta
áfram hafnarbakka innan hennar.
Hálftíma stytting
Sundabraut mun hafa gríðarlega
þýðingu fyrir samgöngur, dreifa
álagi, leysa umferðarhnúta og
styrkja öryggisleiðir. Einnig muni
hún stytta vegalengdir fyrir alla
þá sem ferðast innan og til og frá
höfuðborgarsvæðinu, óháð ferða-
máta. Fyrir íbúa Vesturlands mun
Sundabraut líklega stytta ferðina til
höfuð borgarsvæðisins um hálftíma.
Áætlað er að framkvæmdir geti
hafist árið 2026, en auk umhverfis-
matsins er framundan víðtækt
samráðsferli og nauðsynlegar
breytingar á aðalskipulagi. Gert er
ráð fyrir að fjármagna framkvæmd-
irnar með gjaldtöku af umferð, sem
hefjist þegar Sundabraut er tekin í
notkun og ljúki innan 30 ára.
Arðsamasta
framkvæmdin
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviða-
ráðherra segir á vef Stjórnarráðsins,
að lagning Sundabrautar sé ein arð-
samasta framkvæmd sem um get-
ur hér á landi. Á það einnig við er
varðar akstur á höfuðborgarsvæð-
inu sjálfu því heildarakstur þar gæti
minnkað um 150 þús. km á hverj-
um sólarhring. Eins og kemur fram
í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar
miðast undirbúningur við að fram-
kvæmdir hefjist 2026 og Sunda-
brautin verði tekin í notkun 2031.
Áætlaður kostnaður við undirbún-
inginn nemur um 1,5 milljarða kr.
til ársins 2026 þegar stefnt er að
framkvæmdir hefjist. gj
Sundabraut í forgangi hjá nýjum
borgarstjórnarmeirihluta
Borgarfjarðarbrúin mun að líkindum missa titil sinn á næstu árum.
Fornbíladagur og
málþing í Reykholti