Skessuhorn - 08.06.2022, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022 17
SJÓMANNADAGURINN
Á AKRANESI 1
2. JÚ
NÍ
DAGSKRÁ
13:00-14:00 Dorgveiðikeppni á Sementsbryggjunni í
boði Frystihússins. Veitt verða verðlaun fyrir stærsta
skinn, minnsta skinn, skrýtnasta skinn, yngsta
keppandann og best klædda sjóarann.
14:00 Róðrakeppni í boði Nítjándu/Bistro & Grill,
Garðavöllum
14:00-16:00 Götubitar á hjólum verða á hafnarsvæðinu.
14:00-16:00 Fjölskylduskemmtun á hafnarsvæðinu á
boðstólnum verða m.a: Hoppukastalar, bátasmíði, lifandi
skar í körum, vatnaboltar og ýmislegt eira.
Félagar í Sjósportfélaginu Sigurfara verða sýnilegir á
svæðinu og verða meðal annars með kajaka á oti sem
hægt verður að reyna sig á.
Björgunarfélagið verður með báta á sjó og Jón
Gunnlaugsson björgunarbátur verður til sýnis. Félagar
Björgunarfélagsins munu taka þátt í ængu með
þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar, ef aðstæður leyfa.
Björgunarfélagið verður með ýmislegt til sýnis.
Blue Water Kayaks býður fólk velkomið til að prufa kajak
eða SUP. Fyrir öryggi þá verður aldurstakmark á báta og
SUP (10 ára +).
Fimleikadeild ÍA verður með varning til sölu.
Nýjar upplýsingar verður að
nna á viðburðadagatali á
www.skagalif.is.
Fjölskylduskemmtunin
er í samstar við
Fiskimóttakan
á Akranesi
Dagskrá birt með fyrirvara um breytingar
10:00 Minningarstund í Kirkjugarði Akraness við
minnismerki um týnda sjómenn.
10:00-17:00 Opið á Byggðasafninu í Görðum –
aðgangur ókeypis. Bingó ratleikur fyrir börn.
10:00-17:00 Opið verður hjá Eldsmiðum á
Byggðasafninu - verið velkomin.
10:00-18:00 Opið í Guðlaugu við Langasand –
aðgangur ókeypis.
10:00 Vant sjóbaðsfólk býður gestum og gangandi að
taka sín fyrstu sundtök í sjó með leiðsögn.
11:00 Sjómannadagsmessa í Akraneskirkju. Blómsveigur
lagður að minnismerki sjómanna á Akratorgi að lokinni
athöfn.
12:00-16:00 Opið í Akranesvita – aðgangur ókeypis.
12:00 Hoppkeppni í boði Hopplands, Bakkatúni 5.
Verðlaun verða veitt á fjölskylduskemmtuninni á
hafnarsvæðinu sem fer fram kl.14-16. Veitt verða
verðlaun fyrir frumlegasta og skemmtilegasta hoppið.
Skráning á hopplandehf@gmail.com.
13:30-16:30 Kafsala í Jónsbúð við Akursbraut á vegum
Slysavarnadeildar Lífar. Allir hjartanlega velkomnir.
13:30 Kellingar á sjómannadaginn - Söguganga með
Kellingunum, gangan hefst á Akratorgi.
Skemmtiferðaskipið Le Bellot
lagðist að bryggju við Norðurgarð
í Grundarfirði rétt fyrir hádegi í
gær, þriðjudag. Þetta markar upp-
hafið að komu skemmtiferðaskipa
til Grundarfjarðar þetta sumarið en
alls eru skráðar 43 komur í sumar.
Le Bellot mun koma reglulega við í
sumar í hringferð sinni um landið.
Skipið var smíðað 2020 og siglir
undir frönskum fána. Skipið er um
9.900 brúttótonn og er 131 metri á
lengd.
tfk
Sjómannadaginn ber upp á sunnu-
daginn 12. júní í ár en í tilefni
dagsins verða hátíðarhöld víðs
vegar í sjávarbyggðum á Vestur-
landi. Hátíðardagskrá verður á
Akranesi, í Stykkishólmi, Snæ-
fellsbæ og Grundarfirði. Dagur-
inn er hátíðardagur sjómönnum
til heiðurs en haldið hefur verið
upp á hann á landsvísu síðan 1987.
Sjómannadagsráð stendur fyrir
hátíðahöldunum í flestum sjávar-
þorpum landsins og eflaust mikil
spenna í loftinu þar sem bæjarfé-
lög hafa ekki haft möguleika á að
halda veglega upp á daginn undan-
farin tvö ár. Nú hafa bæjarfélög og
sjómannadagskráð birt ólíkar og
spennandi dagskrár og ættu allir
að geta fundið eitthvað spennandi
til að gera í tilefni dagsins.
Stykkishólmur
Í Stykkishólmi verður Skeljahá-
tíðin haldin alla helgina en aðal-
dagskráin fer fram á laugardaginn.
Þar hefst dagskráin kl. 13:30 með
skrúðgöngu frá Tónlistarskólan-
um og niður á höfn. Þar verður í
boði dorgveiðikeppni, tónlistarat-
riði, reiptog, sjósund og veitinga-
staðir Stykkishólms bjóða upp
á mat. Dagurinn endar svo með
bryggjuballi við höfnina með tríó-
inu Kókos.
Grundarfjörður
Í Grundarfirði verður hátíðar-
dagskrá frá fimmtudeginum 9.
júní og út sunnudaginn 12. júní.
Á laugardeginum verða aðalhá-
tíðarhöldin á bryggjunni. Keppt
verður í skemmtilegum þraut-
um og hressing í boði á svæð-
inu. Hátíðarsigling um fjörðinn
að Melrakkaey á Runólfi SH en
siglt verður stundvíslega af stað
klukkan 12. Dagurinn endar svo
á dansleik á Kaffi 59 með hljóm-
sveitinni Blandi.
Akranes
Á Akranesi verður hátíðardagskrá
sunnudaginn 12. júní. Aðgangur
verður ókeypis að Byggðasafninu,
í Guðlaugu og Akranesvita. Boð-
ið verður upp á kennslu í sjósundi
klukkan 10. Fjölskylduskemmtun
verður svo á hafnarsvæðinu klukkan
14 til 16 en í boði verða hoppukast-
Hátíðardagskrá Sjómannadagsins á Vesturlandi
Frá sjómannadegi í Grundarfirði. Ljósm. úr safni tfk. Fyrsta skemmtiferðaskip
sumarsins í Grundarfirði
alar, bátasmíði, vatnaboltar og hægt
að sjá lifandi fiska í körum. Einnig
verður í boði að prófa kajak fyrir 10
ára og eldri, skoða björgunarbáta
hjá Björgunarfélaginu ásamt ýmsu
fleiru.
Snæfellsbær
Dagskrá Snæfellsbæjar stendur yfir
alla helgina og hefst á skemmtisigl-
ingu frá Rifi á föstudaginn klukk-
an 19. Í kjölfarið fylgir grillveisla
á bryggjunni þar sem einnig verða
hoppukastalar. Dorgveiðikeppni
hefst í Ólafsvík kl. 11 á laugar-
daginn en hátíðardagskrá verður
á höfninni í Rifi kl. 13. Þar verð-
ur kappróður, flekahlaup, þrauta-
keppni, reiptog og fleira en einnig
verður hægt að gæða sér á fiskisúpu.
Dagurinn endar svo á balli í Klifi. Á
sunnudeginum verður Leikhópur-
inn Lotta í Tröð kl. 15:30, hátíðar-
dagskrá kl. 13 í Sjómannagarðinum
á Hellissandi og í Ólafsvík. sþ