Skessuhorn - 08.06.2022, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 202218
Í netatúr á Flákahornið
með Bárði SH
„Mæting klukka sex,“ sagði Pétur
Pétursson útgerðamaður og skip-
stjóri á netabátnum Bárði SH,
þegar leitast var eftir því við hann
að fréttaritari Skessuhorns fengi að
fara í einn myndatökuróður með
þessari landsþekktu aflakló. Mætt
var í Rifi og það vel fyrir klukk-
an sex að morgni laugardagsins 2.
apríl og var megnið af níu manna
áhöfn komið um borð, en alls eru
tólf menn í áhöfn og skiptast á að
fara í frí.
Róið var á Flákahornið og er
það um einn og hálfur tími sem
fór í stímið. Menn ýmist gengu til
koju eða fóru í kaffispjall og góðan
morgunverð á útstíminu, sem mat-
sveinninn Sveinbjörn Benediktsson
reiddi fram eins og á fimm stjörnu
veitingastað. Menn ræddu að sjálf-
sögðu aflabrögð og veðurfar. Var
áhöfnin sammála um að veður hafi
ekki leikið við sjómenn þessa ver-
tíðina. Þá var nýliðinn marsmánuð-
ur áhöfninni gjöfull en í mars var
aflinn 1.183 tonn og þarf hrausta
sjómenn til þess að ná slíkum afla.
Er óhætt að segja að áhöfnin á
Bárði séu sannir víkingar til vinnu
og hvergi slegið af, ekki fremur en í
þessum túr 3. apríl.
Byrjað var að draga netin um
klukkan hálf átta en alls voru dregn-
ar sjö trossur og gekk drátturinn
vel. Aflinn var mjög góður, eða 48
tonn og menn slógu ekkert af við
vinnuna og var áhöfnin öll eins og
vel smurð vél. Engan veikan hlekk
að finna í þessari samhentu áhöfn
og var mikið hlegið og greinilega
menn með góðan húmor um borð.
Fyrr en varði var búið að draga
allar trossurnar sjö og var þá geng-
ið frá og þrifið og snæddur hádeg-
ismatur, sem var nætur saltaður
þorskur. „Já, vinur minn,“ sagði
Friðrik Steingrímsson; „hér borð-
um við það sem við veiðum.“
Komið var að landi í Rifi um
klukkan 15:30 og hófst þá löndun
um leið og komið var að bryggju
og gekk hún vel fyrir sig. Það voru
þreyttir en ánægðir sjómenn sem
gengu skömmu síðar í land, sátt-
ir með aflann, félagsskapinn og
vinnuna sína.
af
Það var bjart yfir skipperinum Pétri
Péturssyni á útstíminu.
Sjómaðurinn síkáti Kristján Helgason tekur hér fyrstu bauju dagsins.
Menn skemmtu sér við netadráttinn. Hér er Pétur að segja Friðrik Steingríms
brandara.
Netabáturinn Bárður SH að veiðum skammt frá landi.
Naglarnir á Bárði voru einbeittir við að koma þorskinum úr netunum.
Menn hamast eins og þeir geta við netaborðið.
Kátur skipper Pétur sýnir hér tilþrif.
Pétur að taka fiskinn inn fyrir.
Gunnar Ingi Gunnarsson kallar ekki allt ömmu sína þegar
hann þarf að taka vel á því.
Lífið er net hjá sjómönnum á Bárði.
Pétur tekur vel á því þegar hann er að
greiða úr.