Skessuhorn - 08.06.2022, Qupperneq 20
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 202220
Hólmarinn Magnús Þór Kristins-
son, kallaður Maggi Kiddós eða
Maggi langi, hefur stundað sjó-
mennskuna frá því hann var lít-
ill gutti. Hann hefur verið á ýms-
um bátum um tíðina og farið á grá-
sleppu, skak, netaveiðar og verið á
línu svo dæmi séu tekin, en nú rær
Maggi á trillunni sinni Kristborgu
SH-108. Hann starfar að mestu
leyti einn en fær þó liðsauka yfir
vetrartímann. Blaðamaður Skessu-
horns heimsótti Magga á heimili
hans í Stykkishólmi á dögunum þar
sem farið var yfir sjómannsferilinn.
Fjörutíu ár á sjó
„Ég hef verið á sjó í 40 ár,“ byrj-
ar Maggi frásögn sína. „Ég byrjaði
fyrst árið 1978 á grásleppu hjá karli
sem hét Ingvi Kristjáns, kallaður
Golsi. Hann tók svakalega mikið í
nefið og var alltaf allur út í tóbaki,
alveg golsóttur,“ segir Maggi og
hlær. „Eru ekki rollurnar golsótt-
ar þegar þær eru einhvern veg-
inn svona? Þess vegna fékk hann
viðurnefnið Golsi,“ bætir hann við
hugsi. „Pabbi byrjaði líka á sjó með
honum Ingva nema bara mörg-
um árum á undan mér. Ég fór svo
seinna með pabba á sjó. Líklega er
ég búinn að vera samfleytt í þessu í
rúm 40 ár, byrjaði 13 ára gamall.“
Gat ekki lært og
fór á sjó
Grásleppuveiðar eru vinsælar í
Stykkishólmi og byrjaði Maggi sjó-
mennskuna einmitt á grásleppu, þá
13 ára gamall gutti. „Ég gat aldrei
lært neitt svo ég fór á sjó. Þetta
voru einhverjar vikur sem ég var
á grásleppu þegar ég var að byrja
og þetta var í fyrsta skipti sem ég
fékk borgað fyrir að fara á sjó. Ég
hafði heilar 12.500 krónur upp
úr krafsinu þá vertíðina og keypti
mér reiðhjól fyrir peninginn,“ rifj-
ar Maggi upp stoltur. „Svo var ég
á skaki með pabba á Þórsnesinu í
einhvern tíma. Það var 69 tonna
trébátur og við vorum úti í svona
fimm daga í einu,“ bætir hann við.
Sjóveikur sjóari
Vertíðina 1982-1983 fór Maggi á
sínar fyrstu netaveiðar og fór sjór-
inn ekkert sérstaklega vel í hann.
„Ég var afar sjóveikur, sérstak-
lega fyrstu netavertíðina. Ég hef
nú aldrei verið feitur svo ég þurfti
alltaf að gera nýtt gat á beltið svo
buxurnar dyttu ekki niður um
mig,“ segir hann og hlær. „Það
var eitthvað lítið eftir af beltinu
en róðrarnir voru ekki það langir,
bara dagróðrar, svo þetta slapp til,“
bætir hann kíminn við. Sjóveikin
hætti svo að hrjá Magga allt í einu
tólf árum síðar og var hann mjög
ánægður með það.
Kristborg SH 108
Maggi var í 21 ár á báti sem hét
Þórsnes SH 108 eða þangað til
fyrirtækið og bátarnir voru seld-
ir. Þá fór hann að róa á 15 tonna
trillu á línu sem Þórsnesið átti og
hét Landey. Sú trilla var seinna seld
og þá fór Maggi yfir á Arnar SH
157 með Guðbrandi Björgvinssyni.
„Við rérum honum úr Ólafsvík á
netum, þar var ég í nokkur ár. Síð-
an þá hef ég verið að gera út þessa
trillu sem ég er með núna, Krist-
borgu SH 108, eða síðan 2013.
Ég ræ alltaf út frá Ólafsvíkurhöfn,
það er styttra á miðin þaðan og öll
þjónustan þar er frábær. Ég er með
mann með mér á veturna þegar ég
fer á línu, annars er ég yfirleitt alltaf
einn,“ útskýrir Maggi sem er með
30 tonna kvóta á Kristborgu SH.
„Ég fer svona þrjá til fjóra mánuði
á línu og veiði upp í kvótann sem
kláraðist núna um miðjan febrúar.
Svo bíð ég bara eftir strandveiðun-
um,“ bætir hann við.
Maður lifir svo stutt en
er dauður svo lengi
Þegar Maggi er ekki á sjó þá fer
hann á rjúpu eða leikur sér á fjór-
hjólinu sínu sem hann keypti síð-
asta sumar. „Það er rosalega gaman
að djöflast á hjólinu um fjöll og firn-
indi,“ segir hann um nýja sportið.
Maggi hefur varið meiri hluta ævi
sinnar á sjó eða 40 árum. Þrátt fyr-
ir langan tíma þá hefur hann hvergi
nær fengið nóg af sjómennskunni.
Eina sem hefur kannski breyst eft-
ir öll þessi ár er að hann er orðinn
skynsamari að hans mati. „Ég ræ
ekki nema það sé gott veður. Þegar
maður sleppir bræludögunum þá er
þetta gaman,“ segir hann ánægður
með fyrirkomulagið hjá sér.
En hvað er skemmtilegast við
Maggi hefur einsett sér að sleppa öllum bræludögum eins og sést á þessari mynd,
nánast stafalogn á miðunum.
„Ég er hættur að róa í brælu“
Segir Hólmarinn sniðugi, Maggi Kiddós, um sjómennskuna
Maggi Kiddós á heimili sínu í Stykkishólmi. Ljósm. glh.
TIL HAMINGJU
SJÓMENN
555 6677 | umb.is | Korngörðum 5, Reykjavík