Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.2022, Page 7

Læknablaðið - 01.06.2022, Page 7
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 275 R I T S T J Ó R N A R G R E I N Nanna Briem geðlæknir forstöðumaður geðþjónustu Landspítala nannabri@landspitali.is IPS byggir á þeirri grunnhugmynd að hægt sé að finna störf fyrir alla sem vilja vinna. Virk sjúkdómseinkenni, skortur á fyrri reynslu á vinnumarkaði eða vímuefnaneysla eru engin hindrun. doi 10.17992/lbl.2022.06.692 Í þessu tölublaði Læknablaðsins er áhugaverð og vönduð grein eftir Rögnu Kristínu Guðbrands- dóttur læknanema og Odd Ingimarsson geðlækni sem fjallar um rannsókn á náms- og atvinnuþátt- töku ungs fólks sem fékk meðferð og endurhæfingu á Laugarásnum, meðferðargeðdeild á Landspítala, á 10 ára tímabili.1 Laugarásinn býður upp á snemmíhlutun í geð- rofssjúkdóma fyrir ungt fólk yngra en 35 ára. Geð- rofssjúkdómar, en algengastur þeirra er geðklofi, eru sjúkdómar ungs fólks. Þetta eru alvarlegir sjúk- dómar þar sem fyrstu einkenni koma fram snemma á lífsleiðinni, oft á unglingsárum þegar unga fólkið er að taka fyrstu skrefin inn í fullorðinsárin með öllu sem því fylgir. Áhrif geðrofssjúkdóms geta því varpað skugga langt inn í framtíð þeirra. Í dag vit- um við að með því að grípa inn með öflugri með- ferð sem fyrst eftir að einkenni sjúkdómanna koma fram getum við bætt batahorfur.2 Markmið snemmí- hlutunar á Laugarásnum, sem felur í sér bæði lyfja- meðferð og sálfélagsleg úrræði, er að draga úr alvar- legum áhrifum geðrofssjúkdóma á líf og líðan þessa unga fólks og styðja þau til virkari samfélagslegrar þátttöku. Þar getur öflug starfsendurhæfing skipt sköpum. Eins og niðurstöður rannsóknar Rögnu og Odds sýna er starfsendurhæfing ein mikilvægasta íhlutunin til að auka náms- og atvinnuþátttöku ungs fólks eftir fyrsta geðrof.1 Hin hefðbundna starfsend- urhæfing, sem felur meðal annars í sér verndaða vinnu, starfsþjálfun, sjálfboðastörf og atvinnu með stuðningi, sýnir oft takmarkaðan árangur fyrir notendur með þyngstu geðraskanirnar.3 Árið 2014 var tekin ákvörðun um að innleiða IPS (Individual Placement and Support) á Laugarásnum. IPS er vel rannsökuð og gagnreynd starfsendurhæfing sem á rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna og hefur náð útbreiðslu um alla Evrópu. IPS-starfsendurhæfingin á Laugarásnum var byggð upp í farsælu samstarfi við VIRK starfsendurhæfingarsjóð en heldur hefur dregið úr aðkomu hans á síðustu árum. IPS byggir á þeirri grunnhugmynd að hægt sé að finna störf fyrir alla sem vilja vinna. Virk sjúkdóms- IPS – starfsendurhæfing sem skilar árangri einkenni, skortur á fyrri reynslu á vinnumarkaði eða vímuefnaneysla eru engin hindrun. Notendur fá störf á almennum vinnumarkaði og óskir þeirra og áhugasvið ráða för. Þjálfun og stuðningur fer fram samhliða til þess að auka getu og færni til að takast á við starfið. Atvinnuráðgjafar eru hluti af klínískum teymum og starfa þétt með notendum og atvinnurekendum.4 Mikil áhersla er lögð á fræðslu til atvinnurekenda og opið samtal um geðheilbrigði á vinnustöðum. Árangurinn af þessari nálgun er ótvíræður og hefur sýnt yfirburði yfir hefðbundna starfsendurhæfingu fyrir einstaklinga með alvar- legar geðraskanir. Mælist hann meðal annars í fjölda þeirra sem fá starf á almennum vinnumark- aði, fjölda daga og vinnustunda sem unnar eru og í launagreiðslum.3 Niðurstöður rannsóknar Rögnu og Odds sýna gagnsemi IPS sem hluta af meðferð og endurhæf- ingu ungs fólks með geðrofssjúk- dóma en einnig mikilvægi þess að hún verði efld enn frekar.1 Geð- þjónusta Landspítala vinnur að því að geta boðið fleiri notendum upp á IPS-starfsendurhæfingu, ekki bara á Laugarásnum heldur einnig í öðrum teymum. Mikilvægt skref var stigið 2021 þegar Hlynur Jón- asson, atvinnulífstengill og IPS - frumkvöðull, var ráðinn til starfa í geðþjónustunni, en hann fékk nýverið verðlaun frá IPS International Learning Community fyrir störf sín. Í samstarfi við Hlyn er Landspítali nú virkur þátttakandi ásamt öðrum Evrópuþjóðum í ELC (IPS European Learning Community).5 IPS er eitt besta verkfærið sem við höfum í dag til þess að auka samfélagslega virkni ungs fólks og annarra með alvarlegan og langvinnan geðrænan vanda. Þetta er hópur notenda sem síður getur nýtt sér þau starfsendurhæfingarúrræði sem almennt eru í boði á Íslandi. Okkur ber fagleg, siðferðisleg og samfélagsleg skylda til að tryggja notendum geð- þjónustu aðgengi að virkri og öflugri starfsendur- hæfingu. Það er góð fjárfesting til framtíðar. Nanna Briem psychiatrist clinical director of psychiatric services at Landspitali University Hospital IPS, vocational rehabilitation that works Heimildir 1. Guðbrandsdóttir RK, Ingimarsson O. Náms- og atvinnuþátttaka ungs fólks á Íslandi eftir snemmíhlutun í geðrof. Læknablaðið 2022; 108: 288-97. 2. Posselt CM, Alber N, Nordentoft M, et al. Services for first-episode psychosis: a phase 4 prospective cohort study with comparison of randomize trial and real-world data. Am J Psychiatry 2021; 178: 941-51. 3. Hoffmann H, Jäckel D, Glauser S, et al. Long-term effectiveness of supported employment: 5-year follow-up of a randomized controlled trial. Am J Psychiatry 2014; 171: 1183-90. 4. www.ipsworks.org – maí 2022 5. Jónasson H, Weeghel J, Koatz D, et al. Boosting the development of individual placement and support in Europe. Epidemiol Psychiatr Sci 2022; 31: E29.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.