Læknablaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 7
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 275
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Nanna Briem
geðlæknir
forstöðumaður
geðþjónustu Landspítala
nannabri@landspitali.is
IPS byggir á þeirri grunnhugmynd
að hægt sé að finna störf
fyrir alla sem vilja vinna. Virk
sjúkdómseinkenni, skortur á
fyrri reynslu á vinnumarkaði eða
vímuefnaneysla eru engin hindrun.
doi 10.17992/lbl.2022.06.692
Í þessu tölublaði Læknablaðsins er áhugaverð og
vönduð grein eftir Rögnu Kristínu Guðbrands-
dóttur læknanema og Odd Ingimarsson geðlækni
sem fjallar um rannsókn á náms- og atvinnuþátt-
töku ungs fólks sem fékk meðferð og endurhæfingu
á Laugarásnum, meðferðargeðdeild á Landspítala, á
10 ára tímabili.1
Laugarásinn býður upp á snemmíhlutun í geð-
rofssjúkdóma fyrir ungt fólk yngra en 35 ára. Geð-
rofssjúkdómar, en algengastur þeirra er geðklofi,
eru sjúkdómar ungs fólks. Þetta eru alvarlegir sjúk-
dómar þar sem fyrstu einkenni koma fram snemma
á lífsleiðinni, oft á unglingsárum þegar unga fólkið
er að taka fyrstu skrefin inn í fullorðinsárin með
öllu sem því fylgir. Áhrif geðrofssjúkdóms geta því
varpað skugga langt inn í framtíð þeirra. Í dag vit-
um við að með því að grípa inn með öflugri með-
ferð sem fyrst eftir að einkenni sjúkdómanna koma
fram getum við bætt batahorfur.2 Markmið snemmí-
hlutunar á Laugarásnum, sem felur í sér bæði lyfja-
meðferð og sálfélagsleg úrræði, er að draga úr alvar-
legum áhrifum geðrofssjúkdóma á líf og líðan þessa
unga fólks og styðja þau til virkari samfélagslegrar
þátttöku. Þar getur öflug starfsendurhæfing skipt
sköpum.
Eins og niðurstöður rannsóknar Rögnu og
Odds sýna er starfsendurhæfing ein mikilvægasta
íhlutunin til að auka náms- og atvinnuþátttöku ungs
fólks eftir fyrsta geðrof.1 Hin hefðbundna starfsend-
urhæfing, sem felur meðal annars í sér verndaða
vinnu, starfsþjálfun, sjálfboðastörf og atvinnu með
stuðningi, sýnir oft takmarkaðan árangur fyrir
notendur með þyngstu geðraskanirnar.3 Árið 2014
var tekin ákvörðun um að innleiða IPS (Individual
Placement and Support) á Laugarásnum. IPS er vel
rannsökuð og gagnreynd starfsendurhæfing sem á
rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna og hefur náð
útbreiðslu um alla Evrópu. IPS-starfsendurhæfingin
á Laugarásnum var byggð upp í farsælu samstarfi
við VIRK starfsendurhæfingarsjóð en heldur hefur
dregið úr aðkomu hans á síðustu árum.
IPS byggir á þeirri grunnhugmynd að hægt sé að
finna störf fyrir alla sem vilja vinna. Virk sjúkdóms-
IPS – starfsendurhæfing sem
skilar árangri
einkenni, skortur á fyrri reynslu á vinnumarkaði
eða vímuefnaneysla eru engin hindrun. Notendur
fá störf á almennum vinnumarkaði og óskir þeirra
og áhugasvið ráða för. Þjálfun og stuðningur fer
fram samhliða til þess að auka getu og færni til að
takast á við starfið. Atvinnuráðgjafar eru hluti af
klínískum teymum og starfa þétt með notendum og
atvinnurekendum.4 Mikil áhersla er lögð á fræðslu
til atvinnurekenda og opið samtal um geðheilbrigði
á vinnustöðum. Árangurinn af þessari nálgun er
ótvíræður og hefur sýnt yfirburði yfir hefðbundna
starfsendurhæfingu fyrir einstaklinga með alvar-
legar geðraskanir. Mælist hann meðal annars í
fjölda þeirra sem fá starf á almennum vinnumark-
aði, fjölda daga og vinnustunda sem unnar eru og í
launagreiðslum.3
Niðurstöður rannsóknar Rögnu og Odds sýna
gagnsemi IPS sem hluta af meðferð og endurhæf-
ingu ungs fólks með geðrofssjúk-
dóma en einnig mikilvægi þess
að hún verði efld enn frekar.1 Geð-
þjónusta Landspítala vinnur að því
að geta boðið fleiri notendum upp
á IPS-starfsendurhæfingu, ekki
bara á Laugarásnum heldur einnig
í öðrum teymum. Mikilvægt skref
var stigið 2021 þegar Hlynur Jón-
asson, atvinnulífstengill og IPS -
frumkvöðull, var ráðinn til starfa í geðþjónustunni,
en hann fékk nýverið verðlaun frá IPS International
Learning Community fyrir störf sín. Í samstarfi
við Hlyn er Landspítali nú virkur þátttakandi
ásamt öðrum Evrópuþjóðum í ELC (IPS European
Learning Community).5
IPS er eitt besta verkfærið sem við höfum í dag
til þess að auka samfélagslega virkni ungs fólks og
annarra með alvarlegan og langvinnan geðrænan
vanda. Þetta er hópur notenda sem síður getur nýtt
sér þau starfsendurhæfingarúrræði sem almennt
eru í boði á Íslandi. Okkur ber fagleg, siðferðisleg
og samfélagsleg skylda til að tryggja notendum geð-
þjónustu aðgengi að virkri og öflugri starfsendur-
hæfingu. Það er góð fjárfesting til framtíðar.
Nanna Briem
psychiatrist
clinical director of psychiatric
services at Landspitali
University Hospital
IPS, vocational
rehabilitation that works
Heimildir
1. Guðbrandsdóttir RK, Ingimarsson O. Náms- og atvinnuþátttaka ungs fólks á Íslandi eftir snemmíhlutun í geðrof. Læknablaðið 2022; 108: 288-97.
2. Posselt CM, Alber N, Nordentoft M, et al. Services for first-episode psychosis: a phase 4 prospective cohort study with comparison of randomize trial
and real-world data. Am J Psychiatry 2021; 178: 941-51.
3. Hoffmann H, Jäckel D, Glauser S, et al. Long-term effectiveness of supported employment: 5-year follow-up of a randomized controlled trial. Am J
Psychiatry 2014; 171: 1183-90.
4. www.ipsworks.org – maí 2022
5. Jónasson H, Weeghel J, Koatz D, et al. Boosting the development of individual placement and support in Europe. Epidemiol Psychiatr Sci 2022; 31:
E29.