Læknablaðið - 01.06.2022, Page 43
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 311
Verkefnið Lyf án skaða er alþjóðlegt
gæðaátak sem Alþjóðaheilbrigðisstofnun-
in stendur fyrir og var hleypt af stokkun-
um árið 2017. Hérlendis hófst verkefnið
árið 2020 og er í umsjón stýrinefndar
undir forystu landlæknis.
Bakhjarlar verkefnisins eru Embætti
landlæknis og heilbrigðisráðuneytið
en helstu samstarfsaðilar eru Landspít-
ali, Sjúkrahúsið á Akureyri (SAK),
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins,
Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu,
Læknafélag Íslands, Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga, Lyfjafræðingafélag
Íslands og Lyfjastofnun. Amelia Samuel,
verkefnastjóri á gæðadeild Landspítala, er
framkvæmdastjóri verkefnisins.
Óvænt atvik og frávik sem verða í
meðferð sjúklinga í heilbrigðisþjónustu
víða um heim má helst rekja til mistaka
við umsýslu lyfja og/eða aukaverkana af
völdum lyfja. Mesta hættan er þegar sjúk-
lingur þarfnast margra lyfja hverju sinni
(fjöllyfjameðferð) eða þegar viðkomandi
flyst milli þjónustueininga í heilbrigðis-
kerfinu.
Markmið verkefnisins er að draga úr
alvarlegum skaða af völdum lyfja um
50% á næstu 5 árum. Á þessu stigi er lögð
áhersla á þrjá þætti:
• bæta lyfjaöryggi við flutning upplýs-
inga og meðferðar milli aðila innan
heilbrigðis þjónustunnar
• draga úr óviðeigandi fjöllyfjameðferð
• stuðla að öruggari notkun áhættusamra
lyfja
Til að ná markmiðum verkefnisins þarf
að vinna að umbótum á mörgum svið-
um, verkferlum, tæknilausnum, þjálfun
heilbrigðisstétta og efla aðkomu lyfja-
fræðinga, bæði innan og utan stofnana.
Einnig felast mörg tækifæri í að valdefla
Lyf án skaða, alþjóðlegt átak
um öryggi sjúklinga
B R É F T I L B L A Ð S I N S
notendur lyfja með aðgengilegum upp-
lýsingum um lyf, fræðslu um lyf og aðrar
meðferðarleiðir ásamt virkri þátttöku í
eigin meðferð.
Heimasíðan landspitali.is/lyfanskada var
formlega opnuð og kynnt á Læknadögum
í mars. Þar er að finna allar helstu upplýs-
ingar um verkefnið og framvindu þess.
Það er von þeirra sem standa að verk-
efninu Lyf án skaða að sú markvissa
gæðaþróun sem er hafin á þessum vett-
vangi muni vekja áhuga meðal lækna,
styrkja teymisvinnu og leiða á næstu
árum til umbóta sem bæta öryggi í lyfja-
meðferð á Íslandi.
Frá sam
skiptadeild Landspítala
landspitali.is/lyfanskada
Aðalsteinn Guðmundsson
öldrunarlæknir
adalstg@landspitali.is
Jón Steinar Jónsson
heimilislæknir
jon.steinar.jonsson@heilsugaeslan.is
Amelia Samuel
verkefnastjóri
amelia@landspitali.is