Hugur og hönd - 2021, Page 5
5HUGUR OG HÖND 2021
storkurinn.is
storkurinn@storkurinn.is
instagram/storkurinn // facebook/storkurinn
Karólína og Lára Magnea hafa báðar gegnt
formannsembætti HFÍ, sú fyrrnefnda á árunum
1923-1927 en sú síðarnefnda á árunum 2007-2009.
Í sumarbyrjun mun ég láta af störfum sem formaður
og framkvæmdastjóri Heimilisiðnaðarfélags
Íslands. Það er með sönnu þakklæti fyrir ánægju-
legan tíma sem ég lít stolt yfir farinn veg. Á þessum
sex árum hafa verið stigin ýmis framfaraskref,
svo sem endurnýjun húsnæðis, endurskipulagning
fjármála, opnun nýrrar heimasíðu og útgáfa sögu
félagsins. Það hefur verið ánægjulegt að taka þátt
í þessum verkefnum með öllu því góða fólki sem
starfar í stjórn og nefndum. Það er bjargföst sann-
færing mín að gott sé fyrir Heimilisiðnaðarfélagið
að skipt sé um forystu reglulega en formanns-
embættið er bundið við tveggja ára tímabil í senn
og að hámarki sex ár. Með því að skipta um forystu
er tryggt að ekki verði stöðnun og að áherslur
breytist í takt við þörfina hverju sinni. Að lokum
vil ég þakka öllum þeim sem ég hef unnið með
kærlega fyrir samstarfið og óska nýjum formanni,
Kristínu Völu Breiðfjörð, hjartanlega velfarnaðar
í starfi sínu á komandi árum.
storkurinn.is
storkurinn@storkurinn.is
instagram/storkurinn // facebook/storkurinn