Hugur og hönd


Hugur og hönd - 2021, Blaðsíða 25

Hugur og hönd - 2021, Blaðsíða 25
25HUGUR OG HÖND 2021 HÆGFARA HUGARFARSBREYTING Námskeiðin Lesið í skóginn hafa notið vinsælda, þótt sú staðreynd hversu fram- andi tálgun í ferskan við þótti í upphafi hafi gert það að verkum að hægar hefur gengið að innleiða hugarfarsbreytingu í tengslum við viðarnytjar en ella hefði getað orðið. Á þeim 20 árum sem liðin eru frá upphafi námskeiðanna má þó vel greina vísbendingar um auknar vinsældir tréhandverks úr íslenskum viði. Sífellt fleiri vinna með tré, halda sýningar og selja viðargripi. Einnig er stöðug eftirspurn eftir fræðslunni Lesið í skóginn — tálgað í tré hjá ýmsum hópum, t.d. meðal kennara, ýmissa félagasamtaka og í tengslum við náms- og starfsendurhæfingu. Þá sækir fjölskyldufólk í að tálga saman og styrkja þannig samskipti og samveru, foreldrar og börn, afi eða amma með barnabörn- um. Loks hefur í seinni tíð borið á því að fólk leitar í námskeiðið sem hluta af breyttum lífsstíl, þar sem áhersla er á að líta sér nær — nýta efni úr nærumhverf- inu, stunda skapandi iðju og samveru og hugsa um leið vel um náttúruna. Þeir sem tileinka sér tálgun geta enn fremur haft mikil áhrif á sína neyslumenningu með því að búa til áhöld til eigin nota í daglegu lífi á heimilinu. Um leið geta þeir orðið öðrum fyrirmynd í því að hugsa um gróðurinn, stytta vistsporin og lifa í sátt við náttúruna. TÁLGUN ER VINSÆL Margir sem kynnast tálgun segja að hún hjálpi þeim að slaka á og komast í „núvitundarástand“. Á námskeiðunum Lesið í skóginn gefst tækifæri til að út- færa verkefni á persónulegan hátt. Það er þetta samband tálgarans og viðarins sem gerir sköpunarferlið fullnægjandi og nærandi. Fæstir nemendur gera sér grein fyrir því hvers vegna þeir vinna gripina eins og raunin verður og eru oftar en ekki hissa á útkomunni. Þetta sköpunarsamband er það sem nærir og gleður. Fullunninn gripur sem gefinn er öðrum sem gleðst yfir gjöfinni eflir þann sem eytt hefur tíma og kröftum í að hanna, vinna og fullgera gripinn. Séu tálgugripirnir unnir úr trjám sem eiga sögu tengda þeim sem gjöfina fær eykur það enn verðmæti gripsins og gjafarinnar. Þeir sem kynnast þessari gefandi iðju ferskra viðarnytja ná oft góðu sambandi við sig sjálfa í sköpun og búa til nytjahluti sem geta að lokum ratað aftur til náttúrunnar og orðið að kolefnisbundnum jarðvegi. Ólafur Oddsson hefur um árabil kennt tálgun í ferskan við á námskeiðunum Lesið í skóginn – tálgað í tré. Ólafur vann lengi hjá Skógrækt ríkisins en einbeitir sér nú að ræktun og starfsemi í Ólaskógi í Kjós. Heimilisiðnaðarfélagið vill leggja sitt af mörkum til að efla gerð nytjahluta og skraut- muna úr íslenskum trjám og styðja þannig við sjálfbærni og tréhandverksmenningu sem byggir á góðri umgengni við skóg og náttúru. Námskeið í tálgun eru í boði hjá félaginu. Eldhúsáhöld. Ljósmynd: Ólafur Oddsson. Ferskar víðigreinar henta vel til að æfa sig í tálgun. Ljósmynd: Ólafur Oddsson. Helstu tálguáhöld: beinir og bognir hnífar, axir og barkarhnífur. Ljósmynd: Ólafur Oddsson.

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.