Hugur og hönd


Hugur og hönd - 2021, Blaðsíða 8

Hugur og hönd - 2021, Blaðsíða 8
8 HUGUR OG HÖND2021 SKOTTHÚFA FRÚ AUÐAR MARGRÉT VALDIMARSDÓTTIR Heimilisiðnaðarfélag Íslands hefur frá árinu 2007 staðið fyrir prjónakaffi fyrsta fimmtudagskvöld í mánuði. Í kjölfar samkomutakmarkana vegna heimsfaraldurs var brugðið á það ráð að streyma prjónakaffinu á netinu. Fyrsta fimmtudagskvöldið í febrúar og mars var Skotthúfa frú Auðar á dagskrá í umsjón Þórdísar Höllu Sigmarsdóttur og Guðnýjar Maríu Höskuldsdóttur. Fyrra kvöldið var fróðleikur um húfuna, sagt frá því hvernig hún var upphaflega í höndum Auðar og gerð grein fyrir endurgerðri uppskrift. Seinna kvöldið var farið í frágang húfunnar og gerð skúfsins. Dagskránni var einkar vel tekið en áhugasamir höfðu val um að fylgjast með í beinni útsendingu eða horfa á viðburðinn síðar. Auður Sveinsdóttir Laxness tengist Heimilisiðnaðar- félagi Íslands sterkum böndum en hún sat í ritnefnd ársritsins Hugur og hönd á árunum 1971-1985. Hún lagði ritinu til bæði greinar og uppskriftir. Auður var annáluð handavinnukona og kemur meðal annars við sögu íslensku lopapeysunnar eins og lesa má um í bók Ásdísar Jóelsdóttur um það efni. Árið 1970 hlaut Auður viðurkenningu fyrir skotthúfu úr lopa í hekl- og prjónasamkeppni Álafoss. Í tilefni af prjónakaffinu var uppskriftin endurgerð fyrir léttlopa í samvinnu við safnið á Gljúfrasteini og með leyfi ættingja Auðar. Uppskriftin er aðgengileg ókeypis á heimasíðu HFÍ fyrir alla sem vilja koma sér upp skotthúfu úr lopa. Hugmyndin að skotthúfukvöldunum kom frá Þórdísi sem hafði í tilefni af fimmtugsafmæli sínu prjónað skotthúfur frú Auðar handa sér og vinkonum sínum, enda eru þær og húfan jafnaldra. Fyrstu húfuna prjónaði Þórdís eftir upplestri í útvarpsþætti um Auði en komst síðar að því að uppskriftin var aðgengileg á heimasíðu Gljúfrasteins. Eftir tilraunir varð ljóst að nauðsynlegt yrði að endurgera uppskriftina svo hún hentaði fyrir léttlopa sem Þórdís hugðist nota og tók Guðný að sér þann þátt. Skotthúfuhólkur hylur samskeyti húfu og skúfs og er órjúfanlegur hluti skotthúfunnar. Þær Þórdís og Guðný höfðu ýmsar hugmyndir í þeim efnum. Fjöl- breytt efni koma til greina, svo sem leggir af hvönn, sauðarleggir, tálgaðir viðarhólkar, leðurbútar og líberíborðar. Frá þeim stöllum komu einnig hólkar úr áli sem voru afrakstur heimilisiðnaðar þeirra og feðra þeirra sem eru annars vegar gullsmiður og hins vegar járnsmiður. Hólkarnir eru til sölu hjá HFÍ í Nethyl og njóta töluverðra vinsælda. Prjónakaffi HFÍ í streymi á veraldarvefnum er gott dæmi um þá möguleika sem felast í miðlun á netinu. Með góðri hugmynd og góðum undir- búningi eru slíkir viðburðir félaginu til sóma. Ljóst er að á þennan hátt má ná til stærri hóps en með hefðbundnu prjónakaffi. Skotthúfa prjónuð af Auði. Ljósmynd: Hekla Flókadóttir.

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.