Hugur og hönd


Hugur og hönd - 2021, Page 6

Hugur og hönd - 2021, Page 6
6 HUGUR OG HÖND2021 HANDA Á MILLI HEIMILISIÐNAÐARFÉLAG ÍSLANDS Í HUNDRAÐ ÁR MARGRÉT VALDIMARSDÓTTIR Á 100 ára afmælishátíð Heimilisiðnaðar- félags Íslands árið 2013 færði Jakobína Guðmundsdóttir, formaður HFÍ á árunum 1981-1987, félaginu veglega peningagjöf sem verja skyldi til að skrá sögu félagsins. Áslaug Sverris- dóttir sagnfræðingur, sem þekkir vel til Heimilisiðnaðarfélagsins tók að sér ritunina og samið var við Sögufélag um útgáfu. Í því felst að Sögufélag sá um ritstjórn, ritrýni, laun til höfundar, hönnun, prentun, dreifingu og sölu en Heimilisiðnaðarfélagið sá um mynda- öflun og myndaritstjórn. Samstarfið við Sögufélag var einstaklega gott enda er fagmennskan þar í fyrirrúmi. HVERS KONAR BÓK? Óhætt er að mæla með aldarsögu Heimilisiðnaðarfélags Íslands við alla þá sem unna handverki á einhvern hátt, hvort sem bókin er lesin frá upphafi til enda eða gripið niður þar sem áhuginn býður hverju sinni. Ferðalag um 100 ára sögu Heimilisiðnaðarfélags Íslands 1913-2013 er afskaplega fróðlegt og skemmtilegt. Sagan er áhugaverð bæði fyrir þá sem unna handverki og heimilisiðnaði og þá sem hafa sagn- fræðilegan áhuga á viðfangsefninu. Þær samfélagsbreytingar sem orðið hafa á heilli öld eru gríðarlegar en Áslaugu tekst á áhugaverðan hátt að varpa ljósi á þjóðfélagslegar aðstæður á hverjum tíma og áhrif þeirra á framvindu og framgang félagsins. Í frásögninni endurspeglast hvernig félagið hefur þróast í takt við samfélagið hverju sinni með fjölbreyttu starfi. Athygli vekur að ákveðnir þættir einkenna starfsemina frá upphafi: námskeið, útgáfustarfsemi, norrænt samstarf, sýningar og síðar verslunarrekstur. SAGAN Framsetning sögunnar í tímabilum gerir lestur hennar skilmerkilegan og skemmtilegan. Skýrar kaflafyrirsagnir og lýsandi myndefni laðar lesandann inn í heillandi heim sögunnar. Í fyrsta kafla; Baksvið og stofnun félags 1890-1913 segir frá aðdraganda að stofnun félagsins og þeim jarðvegi sem hugmyndin um stofnun þess spratt úr. Fjallað er um alþjóðlega strauma og stefnur og stofnun sambærilegra félaga á hinum Norðurlöndunum. Áform og áskoranir einkenna tímabilið 1914-1920. Námskeiðahald var ofarlega á baugi en fyrstu námskeiðin voru auglýst vorið 1914. Söguleg atriði á borð við eldgos, spænsku veikina og fyrri heimsstyrjöld höfðu áhrif á tímabilið og urðu til þess að Heimilisiðnaðarfélagið einbeindi Munstur úr Sjónabók Ragnheiðar biskupsfrúar á Hólum frá 17. öld er saumað í léreft á kápu auk þess að prýða saurblöð bókarinnar. Ljósmynd: Snæfríður Jóhannsdóttir.

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.