Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2008, Qupperneq 4
VÍKINGUR
S J Ó M A N N A B L A Ð I Ð
4. tbl. 2008 70. árgangur. Verð í lausasölu kr. 890
Gleðileg jól!
Snæfellið í
sprengjuregni
Þar missti Nelson
handlegginn
Kvótinn, aflaheimildir
og Hafró
Að vera refur
Íslensku skipin í Afríku
Flóðbylgjan Efnis-yfirlit
Á forsíðunni er verðlaunamyndin,
Landfastur, sem Guðmundur Birkir
Agnarsson tók.
6
8
16
38
27
Í leiðara mínum í 2. tölublaði Víkingsins í maí sl. sem ég nefndi
„Mótbyr“ varaði ég mjög eindregið við þeirri hættulegu stöðu sem
mér fannst á þeim tíma blasa við m.a. með eftirfarandi setningum:
„Þetta vorið bregður svo við í fyrsta skipti í langan tíma að ansi hreint
dökkar og drungalegar blikur eru á lofti í lífi okkar og tilveru. Fjölfatlaður
gjaldmiðill, vaxandi verðbólga, verðtrygging lána, hæstu vextir í veröld-
inni og ört vaxandi fjöldi þeirra sem ekki ná að standa í skilum með sínar
skuldbindingar, allt eru þetta skilaboð um að íslenska þjóðin og ekki síður
þeir sem hún hefur kosið til að stýra þjóðarskútunni, verði að setja sig í
nýjar stellingar til að takast á við vandann. Nú þurfum við öll sem eitt að
pakka í vörn og læra að spila öflugan varnarleik, því rétt eins og í boltanum
þá er góður varnarleikur grunn forsendan fyrir því að hægt sé að ná árangri
í sókn á ný. Ekkert annað kemur til greina, þótt móti blási hressilega um
stundarsakir.“
Fyrst ég, óuppdreginn sjómaðurinn, taldi mig í maí sjá mikla vá fyrir
dyrum, þá er það fullkomlega óásættanlegt, að þær opinberu stofnanir
sem gagngert eru reknar í þeim tilgangi að þreifa á púlsinum í gangverki
atvinnu og efnahagslífsins, skuli hafa sofnað svona hrikalega á vaktinni.
Það væri synd að segja að tíðindalítið hafi verið í þjóðfélaginu á því ári
er senn mun kveðja. Reyndar má segja að haustmánuðir ársins 2007 og
fyrri hluti þessa árs hafi verið sannkallað svikalogn á undan fellibylnum
sem brast á með sannkölluðu stóráhlaupi nú í lok septembermánaðar.
Sú atburðarás sem átt hefur sér stað er með þeim hætti að illmögulegt
er fyrir venjulegt fólk að trúa því að það sé raunverulega að upplifa
þessar hamfarir sem á þjóðinni hafa dunið síðustu vikurnar. Enn erf-
iðara er fyrir menn að reyna að skilja hvernig á því stendur að landslög
og reglur ásamt reglugerðarverki hins vestræna heims sé svo hörmulega
illa úr garði gert, svo hrikalega meingallað, að mögulegt hafi yfir höfuð
verið að koma heilli þjóð í þá úlfakreppu sem nú blasir við okkur. Við
erum þessa dagana í raun staddir á ögurstundu í sögu þjóðarinnar. Eftir
langan og strangan aðdraganda þar sem við vorum að lokum svínbeygðir
af „vinaþjóðum okkar“ höfum við náðarsamlegast fengið fyrirgreiðslu
hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og í framhaldi af því gríðarlega fjármuni
úr ýmsum áttum. Það er alls óvíst á þessari stundu hvernig mál skipast
í framhaldi af þeirri ráðstöfun sem framundan er og felst í því að setja
krónuna á flot íklædda flotbúningi í líki gjaldeyrishafta og gera síðan
tilraun, með fulltingi nýfengins lánsfjármagns til þess að krónan okkar
öðlist einhverja tiltrú í alþjóðlegu fjármálaumhverfi á ný. Tiltrú eða traust
sem um þessar mundir er í algjöru lágmarki um víða veröld. Nýjasta
áfallið er síðan sú sýking sem komið hefur í ljós í síldarstofninum, en
þann fiskistofn hafa verið bundnar meiri vonir við en flesta aðra í ljósi
góðs vaxtar og viðgangs. Það má því segja eins og yngismærin sem fékk
blóðnasirnar: Ef það er ekki þetta, þá er það hitt. Við getum að sjálf-
sögðu lítið gert í öllu þessu fári annað en vonað að þær björgunaraðgerðir
sem fram undan eru, reynist fullnægjandi til að koma okkur á sporið á ný
og að í framhaldinu takist okkur með tíð og tíma að byggja upp þjóðfélag
sem uppfyllir þær vonir og væntingar sem venjulegir Íslendingar hljóta
að bera í brjósti um framtíðina. Í öllu falli er ljóst að lífið heldur áfram
rétt eins og FFSÍ mun halda áfram að standa vörð um hagsmuni umbjóð-
enda sinna eftir bestu getu, með hliðsjón af þeirri þróun sem framundan
er, hver sem hún kann að verða.
Óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla, árs og friðar.
Árni Bjarnason.
Sjómenn og aðrir lesendur Víkings
Sendið okkur línu um efni blaðsins,
gagnrýni eða hrós, tillögur um efnis
þætti og hugmyndir um viðtöl við áhuga
verða sjómenn, jafnt farmenn sem hina
er draga fisk úr sjó. Hjálpið okkur að
halda úti þættinum; Raddir af sjónum.
Netjið á, jonhjalta@hotmail.com
18
20
30
48
41
50
40
36
44
Útgefandi: Völuspá, útgáfa, í samvinnu við Farmanna og
fiskimannasamband Íslands.
Afgreiðsla og áskrift: 462-2515/ netfang, jonhjalta@hotmail.com
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Hjaltason, sími 462-2515,
netfang; jonhjalta@hotmail.com Byggðavegi 101B, 600 Akureyri.
Auglýsingastjóri: Sigrún Gissurardóttir, sími 587-4647.
Ritnefnd: Árni Bjarnason, Hilmar Snorrason og Jón Hjaltason.
Forseti FFSÍ: Árni Bjarnason.
Prentvinnsla: Gutenberg.
Aðildarfélög FFSÍ: Félag skipstjórnarmanna, Félag íslenskra loftskeytamanna, Félag bryta,
Skipstjóra- og stýrimannafélögin Verðandi, Vestmannaeyjum og Vísir, Suðurnesjum.
Sjómannablaðið Víkingur kemur út fjórum sinnum á ári og er dreift til allra félagsmanna
FFSÍ.
Blaðið kemur út fjórum sinnum á ári.
ISSN 1021-7231
51
24
Snæfellið í sprengjuregni. Guðjón Guðbjörnsson
segir frá.
Kyndarastarfið var þrælapuð. Stefán Olsen heldur
áfram að segja frá lífshlaupi sínu.
Ljósmyndakeppni sjómanna. Guðmundur Birkir vann.
Íslensku skipin í Afríku. Hilmar Snorrason fjallar um
gamla kunningja.
Kvótinn, aflaheimildir og Hafró. Frá formannaráðstefnu
FFSÍ.
Róður á sexæringi. Björn Ingólfsson lýkur skoðun
sinni á plöggum Baldvins Bárðdal.
Guðni Ölversson rifjar upp að fyrstu íslensku útrás
arvíkingarnir voru raunverulegir víkingar sem fóru
um með ránum og ófriði. Að þessu sinni er Hrútur
Herjólfsson viðfangsefni Guðna.
Þar missti Nelson handlegginn. Jón Hjaltason skrifar
um viðskipti Nelsons flotaforingja og íbúa Tenerife.
Ísfiskur á stríðsárunum. Úr nýrri bók, STEBBI RUN
– annasamir dagar og ögurstundir.
MATÍS í Verinu á Sauðárkróki.
Listin að hafa rangt fyrir sér.
Að vera refur. Helgi Laxdal veltir fyrir sér dýrheimum
og mannheimum. Er þar bitamunur á en ekki fjár?
Utan úr heimi. Hilmar Snorrason sér um þáttinn sem
endranær.
Hilmar Snorrason siglir um netið.
Krossgátan.
Jólagetraunin.