Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2008, Side 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2008, Side 18
18 - Sjóm­annablaðið Víkingur­ Í síðasta tölublaði fjallaði ég um skip þau sem ég rakst á í Namibíu og Suður­Afríku. Reyndar lenti ég í þeirri einföldu gildru að taka rangan pól í hæðina þegar ég skrifaði fullum hálsi að eitt þeirra skipa sem ég fann þar og bar nafnið JCS I hafi verið Klakkur SH. Einhverra hluta vegna sat nafnið Klakkur svo fast í huga mér en mín betri vitund átti þó að vita að hér var á ferðinni Hringur SH og leiðréttist þetta hér með. Það var búið að prenta blaðið þegar ég áttaði mig á þessum mistökum mínum. En hvað um það allt er hægt að leiðrétta þegar það birtist á prenti og er það gert hér með. Reyndar má geta þess hér að nafnið Hringur var ekki eina nafnið sem þessi togari bar hér á landi. Skipið var smíðað í Póllandi árið 1977 og var gefið nafnið Bjarni Herjólfsson ÁR með Stokkseyri sem heimahöfn. Árið 1985 keypti Útgerðarfélag Akureyrar skipið og bar það nafnið Hrímbakur EA næstu 11 árin. Það var 1996 sem Guðmundur Runólfsson í Grundarfirði eignaðist skipið og þá fékk það nafnið Hringur SH. Það var snemma árs 2006 sem skipið var selt fyrirtækinu Investing í Reykjavík og samkvæmt skipaskrá mun skipið hafa verið nefnt Hólmberg þann 27. mars en ef marka má ljósmynd sem ég tók af skipinu þremur dögum síðar var ekki að sjá að nein nafnabreyting hefði farið fram á skipinu. Skipið var strikað út úr íslenskri skipaskrá í maí sama ár. Núverandi nafn mun skipið hafa fengið á þessu ári samkvæmt mínum bestu heimildum. Systurskipin voru tvö, þau Klakkur og Ólafur Jónsson. En þar sem ég á ekki möguleika á því að elta uppi gömul íslensk skip um allan heim þá eru alltaf ein- hverjir sjómenn sem rekast á skipin okkar á framandi slóðum. Einn slíkur, Ragnar Árnason yfirvélstjóri á nótaskipinu Carpe Diem, sendi mér myndir af skipum sem hann hafði séð í Dakhla í Marokkó og kann ég Ragnari miklar þakkir fyrir. Fyrsta myndin er af nóta- skipinu Orion sem er í eigu Agadir í Marokkó. Hér á landi bar skipið nafnið Jóna Eðvalds SF. Allotf 2 hét í eina tíð Antares VE og Prowess var Svanur RE og er ekki annað að sjá en að skipin séu mjög vel útlítandi. Tvö skip sem tengjast Íslandi urðu einnig á vegi Ragnars en það er Aldo sem reyndar var allatíð dönsk og bar nafnið Ísafold. Árni Gíslason skipstjóri var eigandi þess en hann gerði skipið út frá Hirtsals. Hitt skipið var Erika en Íslendingar komu eitthvað að rekstri skipsins og lá hún oft á tíðum í Hafnarfirði. Er hún enn skráð í Grænlandi en er hér komin nokkuð langt frá heimaslóðum. Ragnar sendi mér einnig mynd af nótaskipinu Que Sera Sera frá Hafnarfirði en mér vitanlega hefur hún ekki enn komið til heimahafnar sinnar enda ætíð verið við veiðar í Marokkó síðan hún komst í íslenska eigu. Til gamans þá hét það skip áður Prowess en var end- urnýjað með Svaninum RE sem, eins og sjá má hér að ofan, viðhélt nafninu. Að lokum minni ég lesendur Víkingsins á að munda myndavélarnar ef þið sjáið gömlu skipin okkar ein- hversstaðar á ferð ykkar. Hilmar Snorrason Áfram með Afríkuskipin Hér er Hringur sem Hrímbakur. Ljósmynd: Þorgeir Baldursson Hringur SH í lok mars 2006 rétt áður en skipið hélt til Namibíu. Ljósmynd: Hilmar Snorrason Jóna Eðvalds sem Orion. Ljósmynd: Ragnar Árnason

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.