Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2008, Page 45
Sjómannablaðið Víkingur - 45
Kristo Laptalo, skipstjóri á Coral Sea, leiddur burtu í handjárnum eftir að
dómur féll í máli hans.
Ótrúlegt mál
Þrettándi júlí 2007 byrjaði ósköp venjulega hjá áhöfninni
á kæliskipinu Coral Sea þar sem losa átti bananafarm í Egion
í Grikklandi. Sá dagur átti reyndar eftir að breyta lífi þriggja
skipverja svo um munaði. Við losun fundust 51 kg af kókaíni
sem komið hafði verið fyrir inni í pallettu sem var plastpökkuð
og því höfðu skipverjar ekki möguleika á að koma þessu efni
fyrir en farmurinn hafði verið lestaður í Equador. Strax eftir
að kókaínið fannst voru króatarnir Kristo Laptalo skipstjóri og
Konstantin Metelev, fyrsti stýrimaður, ásamt Narciso Garcia, fil-
lippínskum bátsmanni, handteknir fyrir smygl á kókaíninu. Var
þeim haldið í fangelsi allt þar til dómur féll í um miðjan júlí s.l.
Við réttarhöldin kom fram að ekki var nokkur möguleiki á því
að skipverjarnir hefðu nokkuð með eiturefnin að gera en farm-
ur skipsins var að hluta losaður á Ítalíu og átti síðan að losa
skipið í Grikklandi. Hafnarstjórinn í Egion lýsti því meðal ann-
ars yfir að engin möguleiki væri á því að skipverjar hefðu vitað
um efnið, því hefði verið svo haganlega fyrir komið í einni
pallettu. Þá kom og fram að það væri fulltrúi útgerðarinnar sem
tæki ákvörðun um úr hvaða lest farmar væru losaðir hverju
sinni og svo var einnig í þetta sinn. Það kom því eins og reið-
arslag þegar dómarinn kvað upp 14 ára fangelsisdóm yfir skip-
stjóranum og sektaði hann jafnframt um 200.000 €. Hefur þetta
„réttarmorð“ dómstólsins í Patras í Grikklandi vakið upp mikla
reiði í skipaheiminum. Þeir sem viðstaddir voru réttarhöldin
sögðu þau hafa verið vægt til orða tekið undarleg og að dóm-
urinn verið sniðinn fyrir saksóknarann. Að sögn formanns
sjómannafélaga Króatíu, Pedrag Brazzoduro, var skipstjórinn
sakfelldur fyrir nokkuð sem hann gat á engan hátt haft stjórn á.
Einnig hefði saksóknarinn sagt að Kristo væri einfaldlega sekur
þar sem hann væri skipstjóri skipsins. Til varnar skipstjóranum
kom meðal annars borgarstjórinn í Dubrovnik, heimaborg skip-
stjórans, sem sagðist þekkja hann persónulega og að hann væri
ekki fær til að fremja afbrot, hvað þá eiturlyfjasmygl. Munu orð
borgarstjórans hafa orðið til þess að dómarinn mildaði dóminn
um tvö ár þ.e. úr 16 í 14 ár. Stýrimaðurinn og bátsmaðurinn
voru sýknaðir en sá fyrrnefndi var þegar fluttur á sjúkrahús
í taugaáfalli. Bátsmaðurinn var strax að dómsuppkvaðningu
handtekinn fyrir að vera ólöglegur í landinu og var honum
vísað úr landi og gerður brottrækur fyrir lífstíð frá Grikklandi.
Þetta þýðir að hann mun aldrei aftur eiga afturkvæmt til
Evrópubandalagsríkja. Margir aðilar vinna nú að því að reyna að
fá réttlætinu framgengt, s.s. alþjóðasamtök skipstjóra, IFSMA,
útgerð skipsins og forseti Króatíu.
Manndráp af nauðsyn
Skipverjum á 300 tonna dráttarbátnum ENA President sem
urðu skipsfélaga sínum, Hermanto Tamedia, að bana voru ekki
látnir svara til saka að boði dómstóla í Singapúr. Málavextir
voru þeir að Hermanto réðst á yfirvélstjóra bátsins með þeim
afleiðingum að hann varð honum að bana. Læsti hann sig síðan
inn í stýrishúsinu og setti stefnuna beint á olíuskip sem var við
bryggju í olíuhreinsunarstöð. Réðust skipverjarnir inn í stýr-
ishúsið og yfirbuguðu Hermanto en við það notuðu þeir meðal
annars rörbút. Féll hann í gólfið en skipverjarnir hófu þegar að
hlúa að honum og veittu fyrstu hjálp. Hann lést á sjúkrahúsi
daginn eftir. Skipverjarnir áttu ekki annarra kosta völ, sagði
dómurinn, en að neyta aflsmunar til að ná valdi á dráttarbátnum
en veittu Hemanto síðan alla þá aðstoð sem í þeirra valdi stóð.
Matareitrun
Senda varð áhöfn með hraði í flugi til Puerto Rico þegar skip-
stjóri og 22 manna áhöfn á efnaflutningaskipinu Stolt Sapphire
urðu fyrir alvarlegri matareitrun þegar skipið var á siglingu
frá hollensku Antilla eyjum til Houston í Texas. Skipverjarnir
veiktust svo alvarlega að senda varð þyrlu á móts við skipið til
að sækja þá fimm skipverja sem verst voru haldnir. Skipinu var
snúið til Puerto Rico þar sem þeim 18 sem eftir voru um borð
var komið undir læknishendur en ný áhöfn tók við skipinu og
hélt ferð þess áfram til Houston. Rannsókn var framkvæmd af
bandarískum yfirvöldum og var það niðurstaða þeirra að líkleg-
ast væri matareitrunin upprunnin úr fiski og þá líklegast barra-
cuda en ekki voru lengur leyfar af fiskinum um borð. Ljóst er að
matareitrun getur orðið gífurlega hættuleg, ekki síst um borð í
skipi sem er langt frá læknishjálp. Betra er því gæta að hvað við
leggjum okkur til munns.
Skortur á yfirmönnum
Bankakreppan hefur víst lítið farið framhjá okkur landanum
og margir sjómenn hafa hugsað sér til hreyfingar og vilja freista
þess að fara út í heim að sigla. Það ætti alla vega ekki að vera
vandamál fyrir skipstjórnar- og vélstjórnarmenn þar sem mikill
hörgull er á slíkum mönnum. Á heimsvísu er nú þegar skortur
upp á 34.000 yfirmenn og eru spár um að á tímabilinu 2008 til
2012 muni yfirmannaþörfin aukast 26 þúsund fyrir stórflutn-
ingaskip (dry bulk), 16 þúsund fyrir gámaskipin, 9 þúsund fyrir
efnaflutningaskipin og 8 þúsund á olíuskip. Árið 2012 er því
búist við að yfirmannaskorturinn verði um 90 þúsund manns.
Þá er búist við að yfirmannaþörf í Norðursjávarolíunni aukist
um 50% á næstu árum. Launin eru farin að verða nokkuð góð
og sem dæmi þá hefur fillippínskur skipstjóri um 11.000 $ í
mánaðarlaun og víða eru þeir orðnir yfirborgaðir um 2.000 $
til viðbótar. Ljóst má því vera að nú sé gott að manna skip með
íslenskum yfirmönnum sem fá greitt í verðlausum íslenskum
krónum. Ég efast um að margir íslenskir skipstjórar nái meira
en 4.500 $ í mánaðarkaup samkvæmt íslenskum samningum
á nýju gengi krónunnar (24/11/08). Það er þó ótrúlega margt
sem leggst á eitt um að gera ungum mönnum erfitt um vik að