Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1941, Qupperneq 57

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1941, Qupperneq 57
Norræn jól Hann mátti gjarna koma og vera til Ieiðinda einn eða tvo rúmhelga daga, en ekki á sjálft aðfangadagskvöld. Aðfangadagskvöld var ekki nema einu sinni á ári, og til þess höfðu börnin hlakkað allt árið. Það var ekki hægt að láta þennan karl sitja við jólaborð, þar sem börn voru á heimilinu. Áður fyrr hefði maður gjarna tekið á móti honum, en ekki nú síðan hann varð svona drykkfeldur. Hvað var hægt að gera við svona náunga? Vinnu- mannaskálinn var ekki nógu fínn, en gestaherbergið of fínt. Ruster varð þannig að fara á milli bæjanna í grenjandi byl. Yfirvarar- skeggið hékk rennandi blautt niður á höku, augun voru rauð, þrútin og þreytuleg. Brennivínið var rokið úr kollinum á honum. Hann undraðist. — Gat það verið að enginn vildi hafa hann? Nú sá hann sjálfan sig. Hann sá nú, hve aumur og forfallinn hann var og hve fyrirlitinn hann var. „Það er úti um mig,“ hugsaði hann. „Það er búið með alla nótnaritun og úti um flautuna. Enginn í heiminum þarf á mér að halda. Enginn hefur nokkra samúð með mér.“ Óveðrið hamaðist. Stormurinn reif upp snjóinn og þyrlaði honum í kringum hann. Sumum snjóflygsunum þeytti stormurinn hátt í loft upp, en aðrar barði hann niður í lautir. „Svona er það, svona er það,“ sagði Ruster, „meðan maður dansar og leikur sér er lífið leikur, en þegar maður á að grafast í fönnina er lífið sorg og kvöl.“ En niður áttu allir að fara, fyrr eða síðar, og nú var röðin komin að honum. Hugsa sér, að nú var komið að honum. Hann spurði nú ekki lengur, hvert vinnumaðurinn færi með hann. Honum fannst hann nú aka inn í land dauðans. Ruster litli gerði enga iðrun eða yfirbót. Hann formælti ekki flautu- spili eða „kavaljerlífi“. Hann var ekkert að bollaleggja um, að það hefði verið betra fyrir sig, að hann hefði plægt jörðina eða saumað skó. En hann kvartaði yfir því, að nú væri hann eins og útslitið hljóðfæri, sem enginn gæti lengur haft gleði af. Hann varð allt í einu auðmjúkur maður. Hann var sannfærður um að líf hans myndi enda þetta aðfangadagskvöld. Hungrið eða kuldinn myndi drepa hann. Hann var nú til einskis nýtur, skildi ekkert og átti enga vini. Þá staðnæmdist sleðinn, og allt í einu varð bjart í kringum hann, og hann heyrði vingjarnlegar raddir og einhver hjálpaði honum úr sleðanum 55
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.