Fréttablaðið - 15.09.2022, Qupperneq 44
Ég hafði hins vegar
ekki aðgang að bíl, var
afar slakur og óörugg-
ur bílstjóri og hafði
ekki áhuga á bílum.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@
frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar
Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK
OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Rithöfundurinn og blaða-
maðurinn Ágúst Borgþór
Sverrisson er kominn með bíl-
próf eftir blóðugar skammir
fyrir slakar beygjur og fall á
rauðu ljósi. Endurnýjuð öku-
réttindin fela þó ekki í sér að
hann snúi alfarið baki við
bíllausa lífsstílnum.
toti@frettabladid.is
odduraevar@frettabladid.is
„Ekkert bendir til að breytingar
verði á lífsstílnum á næstunni. Ég
uni mér vel á hjólinu og það er stutt
í vinnuna frá heimili mínu þannig
að hjólinu verður ekki lagt. En ég
verð að muna að æfa mig að keyra,“
segir Ágúst Borgþór Sverrisson, rit-
höfundur og blaðamaður á DV, sem
fékk ökuréttindi í gær eftir dálítið
hark og áralanga eyðimerkurgöngu
með útrunnið ökuskírteini.
„Ég hafði samband við föður-
bróður minn, Guðmund Norðdahl,
72 ára gamlan ökukennara með
tæplega hálfrar aldar reynslu í fag-
inu, og þann 14. september stend ég
síðan allt í einu uppi með ökurétt-
indi eftir tæplega 30 tíma og blóð-
ugar skammir frænda míns fyrir
slakar beygjur og aðra hnökra sem
saman hafa verið yfirunnir.“
Ekið inn í sjötugsaldurinn
Reiðhjólið hefur lengi verið Ágústi
mikilvægt samgöngutæki og honum
hefur líkað bíllausi lífsstíllinn ákaf-
lega vel og bílprófið hvergi nærri til
marks um uppgjöf í þeim efnum.
„Það er rótgróinn vani að ganga
eða hjóla f lestra minna ferða og
þiggja far í lengri ferðir. Ég er hins
vegar kominn á þann aldur að lífið
er mestallt í þægindahring og vana.
Þannig að ég lít á þetta sem leið til
að fara út úr þægindahringnum,“
segir Ágúst sem verður sextugur í
vetur en getur nú ekið eins og fínn
maður til móts við sjötugsaldurinn.
Bílstjóraferill Ágústs Borgþórs
verður síðan enn sérkennilegri
þegar hann er spurður hvort hann
hafi virkilega ekki tekið bílpróf 17
ára gamall.
„Nú gerist sagan enn skrýtnari, ef
það var þá hægt. Ég tók reyndar bíl-
próf 18 ára gamall, eftir þrábeiðnir
bróður míns, sem var og er atvinnu-
bílstjóri, og hann borgaði meira að
segja ökutímana mína,“ segir Ágúst
og skellir sér í annan gír.
Slakur bílstjóri og óöruggur
„Þetta gekk ekki áfallalaust því ég
féll tvisvar á verklega prófinu en
náði því þriðja skipti. Ég hafði hins
vegar ekki aðgang að bíl, var afar
slakur og óöruggur bílstjóri og hafði
ekki áhuga á bílum,“ segir Ágúst sem
árum síðar áttaði sig á að hann hafði
ekki endurnýjað ökuskírteinið eins
og lög gera ráð fyrir.
„Ég vaknaði upp við þann vonda
draum að ég hafði ekki keyrt mjög
lengi, ég kunni varla að keyra, og
ökuskírteinið var útrunnið. Ég gaf
mér að þetta þýddi að ég þyrfti að
taka ökunámið allt upp frá grunni.
Annað átti reyndar eftir að koma í
ljós.“
Ágúst segir aðspurður að fólki
hafi auðvitað þótt skrýtið að hann
væri ekki með bílpróf. Sérstaklega
eftir því sem hann varð eldri. „En
þetta kemur sjaldan til tals og fólk
gerir bara sjálf krafa ráð fyrir að
maður sé með bílpróf.“
Fall á rauðu ljósi
Ágúst Borgþór bakkar síðan aðeins
og víkur aftur að regluverkinu í
kringum ökunám heldri borgara.
„Það reyndist eftir allt saman vera
misskilningur að taka þyrfti upp
allt ökunámið. Ég var búinn að
klára Ökuskóla I á netinu og taka
fjórtán ökutíma þegar ég trítlaði til
sýslumanns til að sækja um æfinga-
akstur.
Þar var mér hins vegar sagt að ég
fengi engan æfingaakstur þar sem
ég hefði tekið próf áður og það eina
sem ég þyrfti að gera væri að fara í
verklegt hæfnispróf. Við Gvendur
frændi héldum þá áfram að keyra
og ég tók próf í byrjun september.
Ekki gekk það betur en svo að ég
féll á prófinu, fór yfir á rauðu ljósi.“
Langar í lítinn bíl
Ágúst Borgþór og Gvendur frændi
létu rauða ljósið ekki hrekja sig út í
skurð og héldu áfram að keyra. „Og í
gærmorgun, þann 14. september, fór
ég aftur í hæfnispróf og nú gekk það
hnökralítið og ég er kominn með
réttindi til að aka fólksbíl.“
En áttu bíl?
„Við eigum Honda CRV jeppling
árgerð 2017. Mig langar dálítið til
að kaupa mér smábíl því það er
þægilegra að keyra litla bíla en það
er auðvitað bölvað bruðl að bæta
öðrum bíl við heimilishaldið, og
ekki umhverfisvænt. Þannig að
næsta skref er að æfa mig á Hond-
unni hennar Erlu minnar og þá
undir hennar leiðsögn,“ segir Ágúst
ökuþór Sverrisson og rennir sér inn
á beinan og breiðan veginn. n
Ágúst ökuþór Sverrisson er
kominn með bílprófið á ný
Rétt tæplega
sextugum er
Ágústi Borg-
þóri flest fært
og umferðar-
tepptar götur
borgarinnar
bíða hans eftir
að hafa treyst
á hjólið, tvo
jafnfljóta og
eiginkonuna
um langt árabil.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Ágúst Borgþór lukkulegur með Gvendi frænda sem kom honum í gegnum
bílprófið eftir 30 tíma og eitt rautt ljós. MYND/AÐSEND
28 Lífið 15. september 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
� 18. SEPTEMBER � KL. 20.00
� ELDBORG, HÖRPU
Í tilefni af 30 ára afmæli Stórsveitar
Reykjavíkur býður hljómsveitin landsmönnum
öllum á stórtónleika undir stjórn skærustu
stjörnu stórsveitaheimsins!
Náðu þér í boðsmiða á HARPA.IS og TIX.IS
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA?