Bændablaðið - 25.08.2022, Qupperneq 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022
FRÉTTIR
Haustið verður annartími hjá
starfsmönnum Jarðræktar-
miðstöðvar Landbúnaðarháskóla
Íslands þegar þau ferðast víðs
vegar um landið og uppskera
aragrúa tilrauna sem skólinn hefur
umsjón með.
Þar má nefna rannsóknir á
olíujurtum en nokkrar tilraunir með
þær miða að því að leggja grunn að
markvissri ræktun á repju og nepju.
Áframhaldandi rannsóknir á
ræktun olíujurtanna repju og nepju
hér á landi ganga m.a. út á að finna
hentug vetraryrki sem lifað geta
af íslenskan vetur. Helstu nytjar
plöntunnar er matarolía ásamt
orkuríku hrati sem er verðmætur
próteingjafi fyrir skepnur.
Niðurstöður frá tilraun sem
uppskorin var haustið 2021 benda
til þess að áburður að hausti skiptir
miklu máli þegar kemur að lifun um
veturinn og hvernig plönturnar koma
undan vetri á vorin. Komi plönturnar
vel undan vetri eru þær líklegri til
að ná fyrr fullum þroska að hausti
og skilað þar með góðri uppskeru.
Nýlega var lögð út yrkjatilraun í
Gunnarsholti þar sem sáð var alls 76
yrkjum af vetrarafbrigðum af repju
og nepju í smáreiti. Aldrei áður hefur
slíkum fjölda verið sáð áður, en yrkin
koma víðs vegar að úr heiminum eins
og frá Bandaríkjunum, Þýskalandi,
Póllandi og Svíþjóð en einnig er eitt
yrki frá Kúbu í tilrauninni.
Sunna Skeggjadóttir, starfsmaður
Jarðræktarmiðstöðvarinnar, gerir
ekki ráð fyrir að þau muni öll lifa
af veturinn.
„Vetrarlifun er einn allra
mikilvægasti eiginleikinn í ræktun
á vetrarafbrigðum og skemmtilega
auðvelt að meta hvort það lifir
veturinn af eða ekki.“
Tilraunin verður uppskorin og
mæld haustið 2023 og niðurstöðurnar
munu leiða í ljós hvort einhver
yrkjanna henti íslenskum aðstæðum.
Næsta vor er svo stefnt á að
sá nokkrum fjölda af erlendum
vorafbrigðum í sama tilgangi.
Sáðtími og staðsetning hafa áhrif
Önnur tilraun snýr að sáðtíma
og notkun áburðar við ræktun
vetrarafbrigða. Tilraunin var lögð
út sumarið 2021 og benda fyrstu
niðurstöður til þess að vaxtarferill
plantna sé talsvert ólíkur eftir
sáðtíma.
„Plönturnar úr fyrri sáðtímanum
eru færri í reit og gefa af sér fleiri
hliðarsprota heldur plöntur sem
sáð var 20 dögum síðar. Í seinni
sáðtímanum eru plönturnar fleiri,
hærri og með færri hliðarsprota. Því
verður mjög spennandi að uppskera
í haust og reikna út niðurstöður,“
segir Sunna.
Enn önnur tilraun snýr að því að
bera saman uppskeruniðurstöður
þriggja vorafbrigða nepju og repju
á fjórum stöðum á landinu. Þeir
eru Klauf í Eyjafirði, Keldudalur í
Skagafirði, Hvanneyri í Borgarfirði
og Gunnarsholt á Rangárvöllum. Þar
verður hægt að sjá hvernig veðurfar
og ólíkar jarðvegsgerðir hafi áhrif á
þroska plantna og síðan fræuppskeru.
„Vorafbrigðin hafa styttri
vaxtartíma en vetrarafbrigðin. En
vorafbrigðin þarf hins vegar að
uppskera seinna á haustin. Því þarf
að líta til hvaða afbrigði skuli nota
þegar kemur að landshluta með tilliti
til haustveðurs,“ segir Sunna.
Þá nefnir hún einnig aðra tilraun
sem hefur það markmið að kanna
áhrif áburðarmagns á vornepju, en
þar var einu yrki sáð á Hvanneyri
og Gunnarsholti með mismunandi
köfnunarefnismagni. Allir reitir fengu
samt sem áður sama magn af P og K.
Kálfluga herjar á tilraunir
Að sögn Sunnu hafa allar tilraunir
sumarsins orðið fyrir barðinu á
kálflugu sem hefur sett nokkurt strik
í reikninginn, en gæti þó borið með
sér auknar upplýsingar í tilraununum.
„Áhugavert verður að sjá hvort
eitthvert yrkjanna verst betur gegn
kálflugunni en önnur. Einnig hvort
áburðarmagn geti bætt upp skaðann
af völdum kálflugu,“ segir Sunna. /ghp
Landbúnaðarrannsóknir:
Metfjöldi yrkja í prófun
– Tilraunir á olíujurtum í gangi víða um land
Akur olíujurta í blóma en helstu nytjar repju og nepju er matarolía ásamt
orkuríku hrati sem er verðmætur próteingjafi fyrir skepnur.
Sunna Skeggjadóttir og aðstoðarmenn hennar leggja út tilraun í
Gunnarsholti með 76 yrkjum af vetrarafbrigðum repju og nepju. Til
vinstri má sjá muninn á vexti vetrarafbrigðis miðað við sáðtíma, þar
er plöntur úr fyrri sáðtímanum eru færri en með fleiri hliðarsprota
heldur en plöntur sem sáð var 20 dögum síðar. Myndir / ghp & SS
Yrkin koma víðs vegar að úr heiminum eins og frá Bandaríkjunum, Þýskalandi,
Póllandi og Svíþjóð en einnig er eitt yrki frá Kúbu í tilrauninni.
Í byrjun ágúst skilaði Ásgerður
Snævarr lögfræðingur skýrslu
til matvælaráðherra um úttekt
á lagaumgjörð og stjórnsýslu
matvælaráðuneytisins.
Í kafla skýrslunnar um
s t jórnsýs lukerf ið kemur
fram að skortur sé á faglegri
undirstofnun sem fer með daglega
umsýslu og framkvæmd á sviði
landbúnaðarmála.
Skýrslan var gerð að beiðni
Svandísar Svavarsdóttur matvæla
ráðherra og er tilgangur hennar
að treysta faglegan grundvöll
stjórnsýslu matvælaráðuneytisins.
Matvælaráðuneytið tók til starfa
1. febrúar síðastliðinn. Ráðuneytið
sinnir þeim verkefnasviðum sem
áður heyrðu undir sjávarútvegs og
landbúnaðarráðuneyti, auk málefna
landgræðslu og skógræktar.
Landbúnaðarstofnun sambærileg
Matvælastofnun
Í kaflanum um stjórnsýslukerfið
kemur fram að á sviði matvæla
sé fjölmenn undirstofnun
[Matvælastofnun] sem fari með
helstu málefni á því sviði, en engin
sambærileg opinber undirstofnun
fari með málefni landbúnaðar, þar
sem stjórnsýsla sé að verulegu
leyti á höndum ráðuneytisins
sjálfs og einkaaðila – aðallega
Bændasamtaka Íslands. Er þess
getið að ríkisendurskoðun hafi bent
á ágalla af slíku fyrirkomulagi árið
2011.
Því er í skýrslunni lagt til að
lagt verði mat á hvort tilefni sé til
þess að koma á fót undirstofnun
eða ráðuneytisstofnun sem
verði falin dagleg umsýsla með
landbúnaðarmálum.
Þá er lagt til meðal annars að
metið verði hvort elstu lagabálkar á
málefnasviði ráðuneytisins uppfylli
þær kröfur sem í dag megi leiða af
stjórnarskrá og þjóðréttarlegum
skuldbindingum. Einnig „að
mótað verði verklag um skipulegt
frumkvæðiseftirlit ráðuneytisins
með framkvæmd stjórnarmálefna
á málefnasviði þess, þ.m.t. eftirlit
með einkaaðilum sem fara með
framkvæmd opinberra verkefna
á grundvelli valdaframsals eða
þjónustusamninga,“ eins og það er
orðað í skýrslunni.
/smh
Matvælaráðuneytið:
Möguleg undirstofnun
landbúnaðarmála
Matvælaráðuneytið er til húsa í Borgartúni 26. Innan þess er nú skoðað
hvort tilefni sé til að koma á fót undirstofnun eða ráðuneytisstofnun sem
verði falin dagleg umsýsla með landbúnaðarmálum. Mynd /Matvælaráðuneytið