Bændablaðið - 25.08.2022, Side 16

Bændablaðið - 25.08.2022, Side 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022 Frá upphafi strandveiða 2009 til ársins 2018 var ákveðnu magni deilt niður á hvert hinna fjögurra veiðisvæða strandveiða og því síðan skipt niður á hvern mánuð; maí, júní, júlí og ágúst. Þegar afla mánaðarins var náð á einstökum svæðum voru veiðar stöðvaðar að öðrum kosti bættist óveitt við a f l a v i ð m i ð u n næsta mánaðar. Helstu ókostir þessarar stjórnunar voru: • Þegar ljóst var að veiðistöðvun var yfirvofandi myndaðist óæskileg áhættusækni til að ná sem flestum dögum. • Veiðidagar á hverju svæði voru mismargir. Taflan sýnir skiptinguna árið 2017. Á svæði A voru veiðar stöðvaðar frá og með 24. maí, 21. júní, 14. júlí og 16. ágúst. Á svæðum B og C lauk veiðum 17. ágúst. Eins og fram kemur í töflunni voru veiðidagar á svæði A því aðeins 39 á móti 60 sem fæst var á öðrum svæðum. Ákveðið að breyta kerfinu Atvinnuveganefnd beitti sér fyrir breytingu á fyrirkomulagi strandveiða þar sem markmiðið var að auka öryggi við veiðarnar og veiðileyfi tæki til 48 veiðidaga án tillits til veiðisvæðis, skipt jafnt á hvern mánuð. Svæðin fengju því öll jafnmarga daga. Þverpólitísk sátt var um breytingarnar á Alþingi vorið 2018 og ári seinna. Stjórn LS samþykkti að fara í þessar breytingar þar sem gengið var út frá því að fjöldi daga yrði 48. Að sjálfsögðu töldu menn að dagar væru of fáir, en þar sem þetta var upplag nefndarinnar og 12 dagar væru í hverjum mánuði samþykkti stjórn LS það sem lá fyrir. Á lokametrum frumvarpsins í atvinnuveganefnd kom fram að sjávarútvegsráðherra taldi sig ekki geta samþykkt breytinguna nema hann hefði heimild til að stöðva veiðar færi afli umfram útgefnar heimildir til strandveiða. Þetta mætti andstöðu hjá LS þar sem fiskgengd á svæðum B og C og þá sérstaklega á svæði C var best á síðari hluta tímabilsins og því gæti ójöfnuður myndast. Ákveðið var að koma til móts við sjónarmið LS með því að rýmka reglur um veiðar á ufsa og tryggja enn betur nægjanlegar heimildir í þorski. Bæði atriðin afar mikilvæg. Á árunum 2018 og 2019 kom ekki til stöðvunar strandveiða. Það gerðist hins vegar næstu þrjú árin þegar veiðar voru stöðvaðar, 19. ágúst 2020 og 18. ágúst 2021 og nú í ár 21. júlí. Óæskilegt inngrip Á árinu 2020 var gerð sú breyting á reglugerð að viðmiðunarafli þorsks var minnkaður um 1.000 tonn. Í stað leyfilegs heildarafla af óslægðum botnfiski 11.000 tonn að ufsa undanskildum var talan sundurgreind í 10.000 tonn af þorski, 1.000 tonn af ufsa og 100 tonn af karfa. LS mótmælti ákvörðun ráðherra harðlega, enda var hér um eitt þúsund tonna skerðingu á þorski. Þegar ljóst var að aflaviðmiðun dygði ekki til að veiðar stæðu yfir til ágústloka var gerð krafa um að ráðherra bætti afla í viðmiðunarpottinn. Tæki tillit til þess að heimildir voru ekki að fullu nýttar á árinu 2019. Ekki var orðið við þeirri sjálfsögðu beiðni, þrátt fyrir að bent væri á að í aflamarkskerfinu væri heimilt að færa 15% milli ára. Það fundust hins vegar 720 tonn í kerfinu sem bætt var við tíu þúsund tonnin. Svipaða sögu er hægt að segja um árið 2021, en þá var 1.171 tonnum bætt við. Hefði getað gefið 1,4 milljarða Nú þegar liðin er mánuður frá stöðvun strandveiða og samkvæmt veiðileyfi ættu að vera sjö dagar eftir koma í ljós hin gríðarmiklu áhrif sem veiðarnar hafa. Frá því óheimilt var að stunda strandveiðar 25. júlí sl. til og með 19. ágúst hefur framboð á handfæraveiddum óslægðum þorski á fiskmörkuðum farið úr 3.593 tonnum í 492 tonn. Er því aðeins um 14% af því sem það var í fyrra. Magnið sem hér um ræðir eru 3.101 tonn sem líklegt er að hefði skilað 1,4 milljörðum í aflaverðmæti. Fiskvinnslur sem byggja rekstur sinn á innkaupum frá fiskmörkuðum hafa því orðið miklum skakkaföllum. Afli sem reiknað var með til vinnslu hefur ekki verið fáanlegur. Það hefur leitt til mikils samdráttar og í sumum tilvikum rekstrarstöðvunar. Útflutningsverðmæti tapast og sett strik í markaðssetningu fyrir þorsk veiddan á handfæri. Strandveiðar: Breytingar á skipulagi NYTJAR HAFSINS Skorri ehf • Bíldshöfði 12 • 110 Rvk • 577-1515 • Nýtt! vefverslun: www.skorri.is Örn Pálsson. Skipting veiðidaga Svæði Maí Júní Júlí Ágúst Samtals A 13 10 8 8 39 B 17 16 17 10 60 C 17 16 17 10 60 D 17 16 17 18 68 Bráðabirgðaniðurstöður úr uppsjávarvistkerfisleiðangri rann- sóknaskipsins Árna Friðriks- sonar frá því fyrr í sumar sýna að magn og útbreiðsla makríls í íslenskri landhelgi er mun meira en undanfarin tvö sumur. Leiðangurinn var hluti af IESSNS, International Ecosystem Summer Survey in the Nordic Seas, og alls tóku sex skip þátt í rannsókninni, sitt hvort skipið frá Íslandi og Færeyjum og fjögur frá Noregi. Í leiðangrinum Árna Friðrikssonar var rannsökuð útbreiðsla og þéttleiki makríls, síldar og kolmunna í íslenskri landhelgi að undanskildum austurhluta hennar sem Færeyingar og Norðmenn rannsökuðu. Teknar 48 togstöðvar kringum landið, gerðar sjónmælingar og sýni tekin í átuháfa á yfirborðstogstöðvum. Mælingar á hitastigi sjávar sýna að hitastig í yfirborðslagi var álíka og sumarið 2021 og aðeins hlýrra en sumarið 2020. Útbreiðsla og þéttleiki makríls, síldar og hrognkelsa ásamt hitastigi í yfirborðslagi sjávar á 10 metra dýpi. Yfirborðstogstöðvar með engum afla af viðkomandi tegund eru merktar með bláum punkti. Mynd / Hafrannsóknastofnun. Hafrannsóknastofnun: Makríll útbreiddur við landið

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.