Bændablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022 LÍF&STARF Ekki eru allir bændur eingöngu djúpsokknir í bústörf og rekstrar­ reikninga, heldur eru einnig til þeir sem kunna best við sig fjarri upplýsingaóreiðu og skarkala. Á Búrfelli í Miðfirði býr kúabóndinn og listamaðurinn Jón Eiríksson ásamt konu sinni, Sigurbjörgu Geirsdóttur. Hann er einn þeirra bænda sem hefur fundið leiðir til að tjá óreiðu hugans á skapandi hátt með myndlistinni. Jón flutti að Búrfelli á sjöunda ári, þegar foreldrar hans tóku við búinu. Hann nam búfræði og kláraði framhaldsdeildina árið 1977. Í kjölfarið starfaði hann við ýmislegt, eins og í fiski, múrverki, kennslu og við ráðunautastörf. Hann tók svo við Búrfelli árið 1982 og er í dag með 30 mjólkandi kýr, 300 kindur, 30 hross, nautaeldi og nokkra hektara í kornrækt á hverju ári. Fyrir utan búskapinn er það listin sem á hug hans allan. Vinnugleðin mikilvæg Jón segir að nauðsynlegt sé að finna gleðina í vinnunni hvort sem það sé eitthvað sem snúi að búskap eða listsköpun. „Það er málið að þegar maður elst upp í sveit og er með ræturnar alveg ofan í jörðinni þá er maður búinn að þjálfa með sér vinnugleðina. Auðvitað er þetta oft basl – að vakna um miðja nótt að hjálpa einhverri nýbærunni,“ segir Jón, en það sem heldur honum gangandi eru tengslin við náttúruna, árstíðaskiptin og rútínan sem því fylgir. Þó svo að sauðburður á vorin eða heyskapur á sumrin krefjist mikillar yfirlegu, þá er það gefandi og fyrir Jóni er vinnan ástríða. Það sem honum finnst líka gott er að geta lagst þreyttur á koddann eftir að hafa skilað af sér góðu dagsverki. „Fólk segir að það eigi alltaf að vera svo skemmtilegt í fríinu. Ég lít akkúrat öfugt á þetta – það á að vera skemmtilegt í vinnunni.“ Lætur tölvur ekki trufla sig Jón var mjög pólitískur og lagði sig fram við að fylgjast vel með málefnum líðandi stundar. Í kjölfar hrunsins ákvað Jón hins vegar að losa sig við sjónvarpið og hefur hann ekki fylgst með því síðan árið 2009. Hann lætur sér duga að hlusta á útvarp til þess að fylgjast með fréttum. „Ég er með útvarp í traktornum, inni í húsi og svo er ég með útvarp hérna á vinnustofunni. Jújú, ég veit alveg nóg um það sem er að gerast. Svo var spáð alveg rosalegu veðri árið 2019 og ég var látinn vita að það þyrfti að slökkva á öllum rafmagnstækjum því það yrði svo mikið flökt á rafmagninu. Það var svo mikið flökt að það var rafmagnslaust í tvo daga. Úr þessu kom hjá mér sú þráhyggja fara ekki í tölvuna og hef ég ekki notað hana síðan. Konan lætur mig vita ef það er eitthvað mikilvægt í tölvupóstinum – en svo er það aldrei neitt mikilvægt.“ Hefur aldrei átt farsíma Jón hefur heldur aldrei átt farsíma og eini síminn á bænum er gamli landlínusíminn. Það er því ekki hlaupið að því að ná sambandi við Jón, nema með því að hringja í heimasímann í hádeginu. „Það var svo þarna í óveðrinu 2019 að ég var sá eini sem gat hringt og látið vita af mér því gamli síminn með koparþræðinum var virkur á meðan allt hitt hrundi. Sjálfsagt þegar ég fæ einhvern heilsubrest þá er rétt að fá sér farsíma fyrir fjölskylduna svo ég geti tekið lokasímtalið – nema þegar maður er orðinn svona gamall þá hefur maður ekkert að segja.“ Jón segir að með þessu hafi hann minnkað allt áreiti sem gefur honum meiri tíma til þess að vinna við búskapinn og sinna listinni. „Þegar fólk spyr mig hvernig ég hafi tíma í allt þetta, segi ég því að hugsa um tímann sem það eyðir í símanum, tölvunni og sjónvarpinu og taka það saman. Þetta er tíminn minn.“ Hefur ljósmyndað fyrir Bændasamtökin Listsköpun Jóns hefst fljótlega eftir að hann klárar búvísindin og til að byrja með var hann mikið í ljósmyndum og að vinna með vatn- og pastelliti. Þannig er hluti ljósmyndasafns Bændasamtakanna úr hans smiðju og líklegt að lesendur Bændablaðsins hafi oft rekist á myndir eftir hann. Hann kom einnig að vinnu plakata Bændasamtakanna sem sýnir hina fjölmörgu liti íslenskra búfjárkynja. Fyrir ellefu árum smíðað Jón sér nýja vélaskemmu og nýtti tækifærið og tæmdi gömlu vélaskemmuna á bænum sem hann innréttaði sem stúdíó. Við þetta sprakk út listsköpunin og jukust afköstin til muna. Með betri aðstöðu gat Jón málað stærri myndir og haft þær sýnilegar, ásamt því sem hann er ekki bundinn af því að þurfa að nota rýmið í eitthvað annað. „Fram að því málaði ég alltaf annaðhvort inni í íbúð eða úti í fjósi,“ segir Jón. Óreiðuaðferð notuð við listsköpun Jón segir aðferðina sína vera svokallaða óreiðuaðferð. Hann sjái hlutina í óreiðu og reyni að nýta hana til að skapa eitthvað. Hann segist fá endalausar hugmyndir en að liststköpunin sé fyrst og fremst vinna. „Ég veit ekki hvaðan hugmyndirnar koma en ég hlusta mikið eftir orðum og finn fegurðina sem er úti um allt; í náttúrunni, litunum og öllu,“ segir Jón. Hann nýtir tímann sem fer í bústörf til listsköpunar líka. Við vélavinnu eða önnur störf sem krefjast mikillar endurtekningar getur Jón mótað hugmyndir sem hann er að vinna. „Þú veist hvernig það er að að sitja á traktor – maður fer í hugleiðsluástand. Ég er þá að hugsa um einhverja mynd og hvernig ég leysi vandann.“ Jón segist hafa gert þau mistök í upphafi ferilsins að hafa ekki tekið upp listamannsnafn og það sé of seint að gera það núna. Það listamannsnafn sem hann hefði viljað taka sér sem ungur maður er nafnið Búrval, sem er þá tenging við bæjarnafnið Búrfell og listamennina Kjarval og Stórval. Yrði skelfilegt að verða frægur Árið 2004 opnaði Landsvirkjun sýninguna Ár og kýr í Blöndu- virkjun sem var einkasýning á verkum Jóns. Þar voru sýndar 365 litlar vatnslitamyndir af kúm; ein kýr fyrir hvern dag ársins. „Þetta var svo flott opnun að ég hélt að ég væri að verða listamaður – passaði mig bara að fara að moka skít daginn eftir svo ég færi ekki alveg í listina,“ segir Jón. Hann hefur annars ekki lagt sig mikið fram við að halda sýningar, þó svo að hann myndi gjarnan vilja koma myndunum sínum fyrir þar sem þær eru aðgengilegri. „Draumur minn er að verða ekki frægur, það væri alveg skelfilegt. Ég veit líka að svona mikill súrrealismi og fantasía höfðar ekki til meirihlutans.“ Hann segir að myndlistinni fylgi ákveðin klíkustarfsemi. „Ef þú ert sjálflærður bóndi úti í sveit þá ferð þú ferð ekkert inn á Kjarvalsstaði. Kannski fara þeir að hringja í mig núna frá Kjarvalsstöðum en það versta er að þeir geta ekki náð í mig nema þegar ég er inni í hádeginu.“ Keypti sér haugsugu fyrir ágóða af listaverkasölu Búskapurinn hefur haft mikil áhrif á listsköpun Jóns. Þegar verk Jóns eru skoðuð sést að náttúran og skepnurnar eru ofarlega í huga hans. Hann segist líka nýta sér það Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is Hundar eru algengt mótíf í myndum Jóns. Hér er ein mynd af eldgoshundi úr hundaseríunni svokölluðu sem telur yfir 250 hunda. Myndir / ÁL Á Búrfelli í Miðfirði er stundaður búskapur með 30 mjólkandi kúm, 300 kindum og myndlist sem aukabúgrein. Jón Eiríksson bóndi og myndlistarmaður málar meðfram bústörfum: Listamaðurinn í fjósinu – Djassar með pensli á kvöldin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.