Bændablaðið - 25.08.2022, Síða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022
Í sumar stóðu bændur í Hollandi
og víðar um Evrópu fyrir öflugum
mótmælum vegna ýmissa
ákvarðana stjórnvalda sem
snerta umhverfismál, landbúnað,
verðhækkanir og afkomu bænda
og neytenda.
Talsmenn bænda segja að með
ákvörðunum sínum séu stjórnvöld
að draga úr möguleikum bænda til að
framleiða matvæli á viðráðanlegu verði
og skerða lífsafkomu þeirra.
Green Deal samningurinn
frá 2020 er stefnumótandi
samþykkt framkvæmdarstjórnar
Evrópusambandsins um að lönd innan
sambandsins verði loftslagshlutlaus árið
2025. Í samningnum er einnig gert ráð
fyrir að dregið verði úr að minnsta kosti
50% losun á gróðurhúsalofttegundum
fyrir árið 2030.
Samkvæmt samningnum er
gert ráð fyrir að öll gildandi
lög um endurnýjun bygginga,
hringrásarhagkerfi, líffræðilegan
fjölbreytileika, landbúnað
og matvælaframleiðslu verði
endurskoðuð og uppfærð.
Markmið Green Deal
Aðgerðaáætlun Green Deal
samþykktarinnar í tengslum við
landbúnað og matvælaframleiðslu
kallast From Farm to Fork.
Meginmarkmið áætlunarinnar
snýst um sjálfbærni í landbúnaði
og matvælaframleiðslu, hvort
sem það er til sjós eða lands,
framleiðsluaðferðir, umbúðir og
flutninga. Í samþykktinni er meðal
annars gert ráð fyrir að dregið verði
úr notkun eiturefna í landbúnaði og
framboð á hollum matvælum aukið.
Markmið samþykktarinnar
hvað varðar landbúnað og
matvælaframleiðslu fyrir árið 2030
eru eftirfarandi:
• Að 25% landbúnaðar-
framleiðslu innan Evrópusam-
bandsins verði lífræn
• Að dregið verði úr notkun
eiturefna í landbúnaði um 50%
• Að dregið verði úr notkun
kemísks áburðar um 20%
• Að dregið verði úr útskolun
næringarefna úr jarðvegi um 50%
• Að dregið verði úr notkun á
sýklalyfjum í landbúnaði og fiskeldi
um 50%
• Að settar verði sjálfbærni-
merkingar á matvæli
• Að minnka matarsóun um 50%
Stóra ákvarðanir í Hollandi
Ákvarðanir stjórnvalda sem snúa að
framkvæmd markmiða Green Deal
í landbúnaði gera bændum meðal
annars skylt að draga verulega saman
í notkun á nituráburði, fækka búfé
og draga úr losun á koltvísýringi til
að vernda umhverfið.
Holland er stærsti útflytjandi
kjöts í Evrópu og fjöldi búfjár þar
mjög mikill miðað við flatarmál
landsins. Í sumum tilfellum hefur
bændum þar í landi verið gert
að fækka búfé um helming eða
stjórnvöld boðist til að kaupa jarðir
þeirra svo þeir hætti búskap. Að sögn
fulltrúa hollenskra stjórnvalda er
tilgangurinn að minnka metanlosun.
Bændur benda aftur á að á sama
tíma losi stórfyrirtæki, flugfélög,
iðnaður, flutningar og samgöngur
um allan heim gríðarlegu magni
gróðurhúsalofttegunda án teljandi
afskipta stjórnvalda. Þetta þykir
bændum og samtökum þeirra
óréttlátt og segja að ábyrgðinni
sé alfarið varpað á þá og að
ákvarðanir stjórnvalda grundvallist
á skammsýni og óvirðingu fyrir
mikilvægi matvælaframleiðslu, og
komi illa niður á starfsemi þeirra og
landbúnaði í heild.
Aðföng hækka í verði
Á sama tíma og bændum er gert
að breyta búháttum sínum með
tilfallandi kostnaði hefur kostnaður
vegna aðfanga í landbúnaði hækkað
verulega. Slíkar hækkanir leiða til
hækkana á framleiðsluverði og
hækkunar matvælaverðs.
Þá hefur innflutningur á ódýrum
matvælum aukist frá löndum þar
sem reglur um framleiðslu eru ekki
eins strangar, eftirlit minna, laun
lægri og aðbúnaðarreglugerðir fyrir
búfé lakari.
Vilja fækka búfé um helming
Árið 2019 kom út skýrsla Heilbrigðis-
og umhverfisstofnunar Hollands þar
sem kom fram að búfjárbændur í
landinu bæru ábyrgð á losun 46%
alls niturs í jarðvegi með dreifingu
á búfjáráburði. Í skýrslunni segir
einnig að eina raunhæfa leiðin til að
draga úr skaðlegum áhrifum niturs í
jarðvegi, ám og vötnum sé með því
að fækka búfé.
Upphaf bændamótmælanna í
sumar má rekja til tillögu sem kom
fram á hollenska þinginu skömmu
eftir að skýrslan kom út og lagði til
að fækka skyldi búfé í landinu um
helming. Í kjölfarið hafa svo margir
aðrir þættir komið fram sem hafa ýtt
frekar undir mótmælin. Meðal annars
auknar kröfur stjórnvalda um mikinn
samdrátt í notkun á nitri og losun
gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði,
aukinn innflutningur matvæla og nú
síðast hækkun orkuverðs vegna
innrásar Rússa í Úkraínu.
Lögreglan skaut á bændur
Í júní síðastliðinn gripu rúmlega 40
þúsund bændur í Hollandi til aðgerða
vegna samþykktar stjórnvalda um
minni losun niturs í landbúnaði og
lokuðu vegum með dráttarvélum
og neituðu að selja framleiðslu sína
í verslanir.
Mótmælin vöktu talsverða athygli
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Ólga í evrópskum bændum
– Aðgerðum vegna Green Deal-samþykktar Evrópusambandsins mótmælt
Hollenskur bóndi tjáir hug sinn í Haag. Mynd /wikipedia.org
Búfjáráburður og dreifing hans er sögð vera helsta ástæða niturmengunar
í jarðvegi. Mynd / wikimedia.org
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
UTAN ÚR HEIMI