Bændablaðið - 25.08.2022, Qupperneq 48

Bændablaðið - 25.08.2022, Qupperneq 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022 Í þessum pistli verður rætt um arfgerðargreiningar haustið 2022 ásamt fleiri atriðum sem tengjast því stóra verkefni sem fram undan er – að rækta upp riðuþolna stofna. Ræktunaráherslur Til lengri tíma verður markmiðið að gera stofninn ónæman fyrir riðuveiki með því að rækta upp fé með verndandi arfgerðir og útrýma áhættuarfgerðinni. Mikilvægt er að allir spili með í þessu stóra verkefni. Þetta er hins vegar langhlaup. Uppspretturnar eru fáar af verndandi arfgerðum og því mikilvægt að fara ekki of geyst í að innleiða þær í stofninn í heild. Það er mikilvægt að passa vel upp á erfðafjölbreytileikann í stofninum – það er t.d. ekki æskilegt að hrúturinn Gimsteinn frá Þernunesi verði faðir, afi eða langafi allra ásettra hrúta í landinu á aðeins örfáum árum. Hins vegar eru þau bú sem eru á mestu áhættusvæðunum gagnvart riðuveiki hvött til þess að setja ræktun gegn riðu í fyrsta sæti þó það þýði mikla aukningu skyldleikaræktar í ákveðnum hjörðum og eftirgjöf í öðrum ræktunareiginleikum tímabundið. Hin alþjóðlega viðurkennda verndandi arfgerð ARR hefur enn sem komið er bara fundist á Þernunesi. Arfgerðin T137, sem vonir eru bundnar við sem verndandi arfgerð, hefur þó sem betur fer fundist á 8 búum. Þar sem framboð þessara arfgerða er takmarkað er hvatt til þess að velja einnig markvisst fyrir lítið næmu arfgerðinni (AHQ), sem virðist veita mikla vernd og einnig að fjölga gripum með C151 og N138. Rannsóknir eru nú í gangi þar sem m.a. verður prófað að bera saman næmni mismunandi arfgerða með svo kölluðu PMCA prófi. Þessi rannsókn, sem fer fram á tilraunastofu í Frakklandi, mun væntanlega skila fyrstu niðurstöðum fyrir fengitíma og verða áherslur á ákveðnar arfgerðir endurmetnar eftir því sem upplýsingar berast. Þá verður kynbótaskipulagið í heild endurskoðað á næstunni byggt á þeim rannsóknum sem eru í farvatninu. Má þar nefna bæði erfðarannsókn sem unnin verður við Háskólann í Gießen og rannsóknir RML þar sem beitt verður hermilíkunum til að skoða hvernig best sé staðið að framgangi ræktunarstarfsins á næstu árum m.t.t. innleiðingu verndandi arfgerða og áhrifa á aðra eiginleika. Leyfi til hrútakaupa MAST hefur nú gefið út tilkynningu (sjá frétt á heimasíðu MAST, 22. ágúst 2022 ) þar sem fram kemur að hægt er að sækja um flutning á gripum með arfgerðirnar ARR og T137 yfir varnarlínur. Til að stuðla að því að bú sem eru í mestri áhættu gegn riðu geti byggt upp þolna stofna sem hraðast, hefur MAST skilgreint hvaða svæði teljast í mestri hættu og bú á þeim svæðum mun þá hafa mestan forgang að því að fá leyfi til kaupa á vernd- andi gripum. Ljóst er að í haust er framboðið ákaflega takmarkað en engu að síður mikilvægt að allir gripir sem vitað er að beri þessar arfgerðir nýtist til framræktunar. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér málið t.d. á heimasíðu MAST og RML en ítarlegri upplýsingar eru væntanlegar um hvaða bú munu fá söluleyfi á þessa gripi. Umsóknir verða síðan afgreiddar 12. september. Þá er rétt að geta þess í þessu samhengi, að sæðingastöðvarnar hafa fengið „grænt ljós“ á flutning hrúta inn á stöðvarnar og vilyrði fyrir kaupum á ARR og T137 hrútum sem bjóða á upp á í vetur. Arfgerðargreiningar haustið 2022 – best að panta sem allra fyrst! Grundvallaratriði í því er að vita hvaða arfgerðir væntanlegir ásetningsgripir bera er að sýnataka sé markviss og víðtæk. Því eru í raun allir sauðfjárbændur hvattir til þess að arfgerðargreina a.m.k. ásetningshrútana. Síðan er það val hvers og eins hvað menn taka stór skref í þessu, þ.e.a.s. hvort gimbrar og ær séu einnig greindar. Sumir hafa þegar látið greina hluta af sínum fjárstofni og geta því útfrá þeim niðurstöðum áttað sig á því hvaða arfgerðir lömbin bera. Í þessu sambandi má benda á nýjan möguleika í Fjárvís (undir „yfirlit“ – ekki sjáanlegt hjá þeim sem hafa bara hjarðbókaraðgang) sem heitir „arfgerðarspá“ og ætti þetta verkfæri t.d. að hjálpa bændum að átta sig á hvaða lömb er hægt er að reikna út spá fyrir með 100% öryggi út frá niðurstöðum foreldra og hvaða lömb væri áhugavert að láta greina. Í haust er hægt að panta arfgerðargreiningar á príongeninu í gegnum RML. Tveir greiningaraðilar eru í boði, Agrobiogen í Þýskalandi og Matís í Reykjavík, en með því móti er verið að stuðla að því að hægt verði að skila bændum niðurstöðum (í Fjárvís.is) áður en sláturtíð lýkur. Bæði fyrirtækin munu greina þau 6 sæti sem talin eru að hafi áhrif á næmi sauðfjár fyrir riðuveiki. Hver arfgerðargreining með efniskostnaði mun kosta í haust 3.000 krónur (+ vsk.) óháð greiningaraðila. Ef bændur vilja að sýnin séu tekin þá bætist við kostnaður samkvæmt gjaldskrá RML. Arfgerðargreiningar er nú hægt er að panta í gegnum heimasíðu RML og þeir sem panta fyrir 25. ágúst verða í forgangi með að komast að í greiningu og síðan verður horft til þess í hvaða röð menn hafa pantað ef þarf að forgangsraða. Nokkur atriði sem vert er að hafa í huga • Þegar talað er um að gripur sé arfblendinn fyrir ákveðinni arfgerð t.d. fyrir áhættuarfgerð og hlutlausri arfgerð (VRQ/ARQ), eru helmings líkur að sá gripur gefi frá sér áhættuarfgerð og helmingslíkur að hann gefi hlutlausa arfgerð. • Þegar talað er um arfhreina gripi, þá hefur viðkomandi gripur fengið umrædda arfgerð frá báðum foreldrum sínum og mun í öllum tilfellum skila henni frá sér til sinna afkvæma. Til dæmis ef hrútur væri arfhreinn fyrir hinni verndandi arfgerð ARR (ARR/ ARR) fá öll afkvæmi hans ARR frá honum og verða því a.m.k. arfblendin fyrir verndandi arfgerð. Mjög praktískt er fyrir þá sem ætla að innleiða lítið næmar og verndandi arfgerðir af sem mestum hraða að koma sér upp arfhreinum hrútum með þær arfgerðir. • Þá er mikilvægt að vera með það á hreinu að arfgerðir hoppa ekki yfir kynslóðir. Ef hrútur hefur verið greindur hlutlaus mun hann ekki skila öðru en hlutlausu arfgerðinni til afkvæma sinna og þá skiptir engu þó á bakvið hann standi gripir með áhættuarfgerð, verndandi arfgerð eða lítið næma arfgerð. Staða arfgerðargreininga úr átaksverkefninu frá í vetur Nánast er búið að greina öll sýnin sem tekin voru í vetur í gegnum átaksverkefni RML og er megnið af niðurstöðunum aðgengilegar bændum inn í Fjárvís. Enn vantar þó niðurstöður fyrir þau sýni sem þurfti að endurgreina úr síðustu þremur pökkunum sem voru greindir en það náðist ekki fyrir sumarleyfi hjá greiningaraðilanum. Þetta eru sýni sem fóru út til Þýskalands seinnipartinn í maí og júní. Þessar allra síðustu niðurstöður munu væntanlega skila sér á næstu dögum. Betur verður gerð grein fyrir uppgjöri á þessu verkefni þegar allar niðurstöður liggja fyrir. Eins er eftir að yfirfara allar villur í innlestri og koma þeim niðurstöðum inn í kerfið. Í þessum þriðja hluta greina um starfsemi RML mun ég gera rekstrar- og umhverfissviði skil. Fagsviðið er annað tveggja fagsviða RML, en eins og kom fram í síðustu grein þá er það einungis til hagræðingar st jórnunarlega séð, verkefnin eru iðulega unnin þvert á svið. Á rekstrar- og umhverfissviði snúa stærstu verkefnin að margvíslegum sviðum landbúnaðar sem tengjast landinu og rekstrarumhverfi búsins. Þar má nefna jarðrækt, garðyrkju, loftslagsmál, landnýtingu hvers konar, fóðrun, skipulagsmál, bútækni, rekstur og umhverfismál. Rekstrarráðgjöf RML byggir á áætlanagerð vegna jarðakaupa, framkvæmda, og ættliðaskipta. Á hverju ári eru gerðar á þriðja hundrað áætlana sem nýtast til að mynda inn í fjármálastofnanir eða vegna umsókna um verkefnastyrki eða fjárfestingarstuðning. Þessi vinna byggir á þeirri víðtæku þekkingu og reynslu á landbúnaði sem ráðunautar RML búa yfir. Frá árinu 2016 hefur starfsfólk RML unnið að verkefnum tengdum afkomu bænda, fyrst í sauðfjárrækt en nú einnig í mjólkurframleiðslu og nautakjötseldi og sambærilegt verkefni í garðyrkju er að hefjast. Verkefnin byggja á bókhaldsgögnum bænda og gefa því góða mynd af stöðu einstakra búa en einnig verður til rekstrargrunnur sem nýtist við afkomuvöktun og hagsmunagæslu fyrir viðkomandi búgrein. Verkefnin hafa margsannað gildi sitt varðandi upplýsingagjöf vegna stöðu einstaka greinar en ekki síður til þess að bæta rekstrarvitund bænda. Verkefnin hafa verið rekin af RML með styrk frá þróunarsjóðum viðkomandi greina fyrir utan sauðfjárræktina en á síðasta ári var gert samkomulag um rekstur verkefnisins til þriggja ára við matvælaráðueytið. Sífellt er leitað eftir því að fá fleiri bændur til þess að taka þátt. Ég hvet því áhugasama um þátttöku til að hafa samband við RML eða skrá sig á rml@rml.is Áherslur stjórnvalda í loftslags- málum og alþjóðlegar skuldbindingar gera þær kröfur til landbúnaðarins að losun minnki á næstu árum en ekki er gert ráð fyrir minnkun framleiðslu. Einstaka búgreinar hafa sett sér markmið um kolefnishlutleysi. Til að þessum markmiðum verði náð þarf að vinna markvisst að bættri skráningu, auka þekkingu og setja upp aðgerðaráætlanir sem byggja á aðstæðum hvers bús. Á síðustu árum hefur markvisst verið unnið að þekkingaröflun innan RML á þessum málaflokki. Í dag rekur RML í samvinnu við Landgræðsluna og Skógræktina verkefnið Loftslags- vænan landbúnað. Verkefnið hófst árið 2020 í sauðfjárrækt en 2021 komu nautgripabændur einnig inn. Markmiðið með Loftslagsvænum landbúnaði er að þátttakendur fái heildstæða ráðgjöf og fræðslu um það hvernig draga megi úr losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði og vegna landnýtingar og vinna að þeim markmiðum með áætlanagerð og eftirfylgni með henni. Fyrir liggur að stækka þarf verkefnið verulega eða sambærilegt ráðgjafarverkefni til allra búgreina eigi markmið um losun að nást. Jarðræktarráðgjöfin snýst að mestu um áburðarráðgjöf/áætlanir og greiningu á fóðuröflunarkostnaði en einnig skipulag endurræktunar og jarðvinnslu, val á tækjum, tegundum og yrkjum og jarðvinnslutækni. Ráðgjöfin byggir á einstaklings- ráðgjöf en í nokkur ár hefur verið boðið upp á verkefnið Sprotann. Í Sprotanum er boðið upp á heildstæða jarðræktarráðgjöf og hefur þátttaka vaxið jafnt og þétt í gegnum árin en nánar má sjá hér https://www.rml.is/is/radgjof/ nautgriparaekt/radgjafarpakkar/ sprotinn-jardraektarradgjof Undirstaða jarðræktarráðgjafar og hvers konar áætlanagerðar í jarðrækt er í gegnum Jörð.is sem er forrit í eigu Bændasamtakanna en RML rekur og hefur umsjón með. Á þessu ári var gerður samningur á milli RML og matvælaráðuneytisins um eflingu jarðræktarráðgjafar. Markmið verkefnis er að hvetja til aukinnar sýnatöku á jaðvegi, heyi og búfjáráburði ásamt því að auka verulega áburðaráætlanagerð. Við höfum einnig verið að styrkja ráðgjöf í jarðrækt á grundvelli þessa samnings með því að ráða inn starfsfólk til að sinna verkefnum á sviðið jarðræktar, ásamt því að innleiða nýja aðferðarfræði við ráðgjöf í samstarfi við finnska sérfræðinga. Garðyrkjan hefur í mörg ár flutt inn erlenda ráðunauta en ráðunautar RML eru umsjónarmenn verkefnisins ásamt því að fylgja erlendu ráðunautunum í heimsóknir til bænda. Ráðunautar í ylrækt, blómarækt og útiræktun koma hér á hverju ári til að styrkja ráðgjöfina en mikla sérhæfingu þarf innan hverrar greinar garðyrkjunnar sem erfitt yrði að manna hér á landi. En með þessu hefur byggst upp sérfræðiþekking hjá starfsfólki RML sem nýtist við ráðgjöf til garðyrkjunnar. Á rekstrar- og umhverfissviði eru einnig fleiri verkefni unnin en hér eru upptalin í stuttri grein en upplýsingar um ráðgjöf má sjá á heimasíðu okkar, WWW.rml. is, ásamt því að ráðunautar RML eru ávallt til viðtals hvort sem um er að ræða í gegnum síma eða á starfsstöðvum RML. Karvel Karvelsson, framkvæmdastjóri RML Karvel Karvelsson, Starfsemi RML – Þriðji hluti Um ræktun gegn riðu – Hagnýtar upplýsingar fyrir haustið Eyþór Einarsson ráðunautur búfjárræktar- og þjónustusviðs ee@rml.is Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020 eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is Skipholt 50b, 105 Reykjavík Vegna aukinnar eftirspurnar óskum við eftir bújörðum á söluskrá
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.