Bændablaðið - 25.08.2022, Qupperneq 53

Bændablaðið - 25.08.2022, Qupperneq 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022 LESENDARÝNI TTS-herfing er væg aðferð við jarðvinnslu til skógræktar miðað við aðrar aðferðir sem völ er á. Sárin gróa fljótt og jarðvinnslan eykur lífslíkur trjánna, flýtir fyrir vexti þeirra og þar með þeim árangri sem vænst er af viðkomandi s k ó g r æ k t a r - verkefni. L jósmynd i r af skógræktarsvæðum sem unnin hafa verið með TTS-herfi sýna að ummerkin eru fljót að hverfa. Upp hefur komið nokkur umræða um jarðvinnslu sem gjarnan er stunduð í skógrækt og gætir þar stundum nokkurs misskilnings. Í þeirri umræðu er ýmsu haldið fram sem ekki stenst nánari skoðun. Því er rétt að segja frá tilgangi og afleiðingum jarðvinnslu. Tilgangurinn með jarðvinnslu er einkum þríþættur; 1) að skapa gróðursetningarset þar sem samkeppni annars gróðurs við ungar trjáplöntur er minnkuð, 2) að auka sumarhita jarðvegs og 3) að auðvelda gróðursetningu. Allt eykur þetta lifun og vöxt trjánna og minnkar kostnað við skógrækt. Afföll eru kostnaðarsöm. Kostnaður við það að 20% nýgróðursettra plantna drepist er um kr. 100.000 á hvern hektara lands. Því er mjög mikilvægt að gera það sem hægt er til að draga úr þeim afföllum. Að tré hefji vöxt tiltölulega fljótt og vel er einnig mikilvægt, m.a. svo þau hefji kolefnisbindingu sem fyrst. Væg jarðvinnsla Það jarðvinnslutæki sem mest er notað núna er svo kallað TTS-herfi. Á því eru tveir gróftenntir diskar sem velta við gróðurhulunni en rista ekki djúpt. Það rífur frekar en að skera og skapar rásir sem eru svolítið óreglulegar, ólíkt plægingu sem sker gróðurhuluna og ristir dýpra. Útkoman er sú að þegar velturnar gróa líkjast þær þúfum en ekki plógstrengjum. Þótt TTS-herfing líti groddalega út í fyrstu er hún í raun vægari jarðvinnsla en flestar aðrar, er fljótari að gróa og myndar að lokum land sem er óþekkjanlegt frá íslensku þýfi. TTS-herfing þurrkar ekki land og leiðir til mun minni CO2-losunar en jarðvinnsla sem ristir dýpra. Þar sem förin gróa fljótt varir CO2-losun stutt, enda er markmiðið að skapa góðar aðstæður fyrir ungar trjáplöntur á fyrstu árum þeirra en ekki að skapa varanleg sár. Skógrækt mest á rofnu landi Stundum er gagnrýnt að verið sé að gróðursetja í „algróið land“ sem útheimti jarðvinnslu á annað borð. Þar býr að baki annars vegar sú hugsun að eini tilgangur skógræktar sé að græða upp örfoka land og hins vegar að hið algróna land sé í einhvers konar „ósnortnu“ ástandi. Hvort tveggja er fjarri lagi.Til- gangur með skógrækt er marg- háttaður, stundum uppgræðsla, stundum timburframleiðsla, stundum endurheimt vistkerfa og búsvæða, stundum útivist, stundum skjól og á seinni árum ekki síst að binda CO2 úr andrúmsloftinu til að stemma stigu við hraðfara loftslagsbreytingum. Flestum þessum markmiðum er betur hægt að ná á landi þar sem enn er mold til staðar en þar sem hún er fokin burt. Þær gróðurgerðir sem mest eru teknar til skógræktar eru rofið land, mólendi og graslendi. Allar eru þær mótaðar af upphaflegri skógareyðingu og aldalangri beit. Þær eru langt frá því að vera í upprunalegu eða ósnortnu ástandi. Ummerkin hverfa fljótt Auðvelt er að taka myndir af nýlega herfuðu landi og kalla það lýti. Jarðvinnsla í skógrækt gerir þó mikið gagn og aðferðirnar sem nú eru notaðar valda ekki varanlegum skemmdum; rásirnar eru fljótar að gróa. Herfing eða tæting eru mun ákjósanlegri jarðvinnsluaðferðir en t.d. plæging eða úðun illgresiseiturs. Skógræktin mun því halda áfram að mæla með jarðvinnslu og fylgjast áfram með þróun þeirrar tækni svo ávallt séu notaðar bestu aðferðir sem völ er á. Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri Í þessari rúmlega tvítugu TTS-herfingu sjást varla nokkur ummerki. Hér var áður rýr lyngmói. Nokkur orð um jarðvinnslu Ársgömul TTS-herfing í frjósömu graslendi. Í slíku landi eru ummerki jarðvinnslu mjög fljót að hverfa. Myndir Þröstur Eysteinsson Þriggja ára TTS-herfing í grasmóa. Herfiförin eru komin vel á veg með að gróa. Lerki í 13 ára gamalli TTS-herfingu í Mosfelli. Herfiförin eru gróin og herfingin skapaði skilyrði fyrir loðvíði og fleiri plöntur þar sem áður var nánast hrein mosaþemba. Þröstur Eysteinsson. 120.000.000 Hólagerði 561 Varmahlíð Jörð/lögbýli/sumarhús/skemma/hesthús 62 ha Grensásvegi 11 108 Reykjavík | Sími 588-9090 | eignamidlun.is Lárus Ómarsson Löggiltur fasteignasali larus@eignamidlun.is 824 3934
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.