Bændablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 54

Bændablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. ágúst 2022 VÉLABÁSINN Á dögunum prufukeyrði blaðamaður bíl sem hann hafði aldrei heyrt nefndan fyrr en í sumar. Rafn Agnar hjá RAG ehf. hóf nýlega innflutning á Series 3 rafmagnsbílum. Það eru millistórir framhjóladrifnir jepplingar sem eru álíka miklir um sig og á svipuðu verði og MG ZS EV, Renault Megane E-Tech, Hyundai Kona o.fl. Series 3 verður bara fluttur inn í Luxury útgáfu sem er ríkulega útbúinn. Sem dæmi um staðalbúnað má nefna leðursæti, rafmagn í sætum, glerþak og hraðastilli. Hér er komin á markað áhugaverð viðbót við þá flóru rafbíla sem þegar er í boði. Útlit vekur ekki sterkar tilfinningar Bakhliðin á bílnum er með yfirbragð nýrra evrópskra bíla með hreinum og sportlegum línum. Framendinn og hliðarnar eru hins vegar með sambærilegt yfirbragð og kóreskir bílar eins og SsangYong og Hyundai voru með fyrir tæpum áratug: semsagt óeftirminnilegt án þess að vera sérlega ófrítt. Innrétting vönduð og smekkleg Þegar sest er upp í bílinn tekur við mun jákvæðari upplifun. Stýrið og sætin eru leðurklædd með mjúku svörtu leðri og er mælaborðið klætt leðurlíki sem er gott viðkomu. Hönnuðurnir hafa greinilega horft til þess að gefa innréttingunni ríkmannlegt yfirbragð sem sækir innblástur til Mecedez-Benz. Auðvelt er að stilla rafknúin sætin þannig að vel fari um flesta, nema mjög hávaxna – til þess þyrfti sætið að fara aftar og stýrið að bjóða upp á aðdrátt. Þar sem þetta er nokkuð hár jepplingur er aðgengið í bílinn mjög gott. Á hámarkshraða í Kömbunum Rafmagnsbílar eins og þessi geta verið eins og dýrir lúxusbílar þegar kemur að því að keyra þá. Án sprengjuhreyfils losna ökumenn við stöðugan titring og skarkala. Akstursupplifunin af Series 3 einkennist því af friðsæld og áreynsluleysi með þýðri fjöðrun. Blaðamanni fannst þó fjöðrunin að aftan dúa fullmikið þegar keyrt var yfir stærri misfellur og hraðahindranir. Þrátt fyrir mjúka fjöðrun liggur bíllinn eins og sportbíll í beygjum. Blaðamaður fór upp og niður Kambana á hámarkshraða án þess að taka eftir því. Þessir góðu aksturseiginleikar nást með því að þyngsti hluti bílsins, rafhlaðan, er undir gólfinu sem gefur lágan þyngdarpunkt. Þrátt fyrir að vera bara 163 hö (129 kw) og nálægt tveimur tonnum að þyngd þá er bíllinn fljótur að ná upp hraða sem hann heldur áreynslulaust í brekkum. Margmiðlunarkerfi og útvarp gæti verið betra Margmiðlunarkerfið í bílnum er líklegast ein veikasta hlið bílsins. Blaðamaður var lengi að átta sig á hinum og þessum fídusum og gátu þrepin að einföldum skipunum verið fullmörg. Mikill kostur er þó að á hverri hlið utan á bílnum er ein myndavél sem varpar mynd sinni á margmiðlunarskjáinn í mælaborðinu. Þetta er hugsað sem aðstoð fyrir þá sem eiga erfitt með að leggja í þröng stæði. Þrátt fyrir að myndgæðin séu ekki þau bestu þá er þetta góð viðbót við speglana. Útvarpinu er stjórnað í gegnum margmiðlunarkerfið en það er lítið upp úr því að hafa. Um árabil hafa jafnvel hin einföldustu útvörp í bílum getað gefið upplýsingar um hvaða stöð er verið að hlusta á, en ekki í Series 3. Einu upplýsingarnar sem eru sjáanlegar eru á hvaða tíðni útvarpið er stillt. Að auki við þetta þá virðist loftnetið ekki vera öflugt og er stöðugt flökt á útsendingunni, jafnvel þó svo að ekið sé í þéttbýli. Þegar ekið er á milli landshluta þá missir útvarpið sambandið við þá útvarpstöð sem hlustað er á og finnur ekki sjálfkrafa sömu stöð á nýrri tíðni. Miðstöð torskilin Það mætti ætla að miðstöðin sé sjálfvirk þar sem notandinn þarf bara að velja hitastig og bíllinn sér um rest, en svo er ekki. Blaðamaður lenti oft í því að vera búinn að skrúfa hitann upp í hæstu hæðir en samt blés miðstöðin bara köldu, eða þá vera búinn að skrúfa kælinguna í botn en fá á sig volgan blástur. Með því að fikta í öllum tökkum komst þetta svo í lag, en það er galli að þetta skuli ekki vera sjálfvirkt. Með ódýrari rafbílum Series 3 kostar 5.350.000 kr. m.vsk. og eins og áður sagði verður hann bara fluttur inn í Luxury útgáfu. Þetta staðsetur bílinn meðal ódýrustu rafbílanna sem völ er á. Fólk sem er að velta fyrir sér bílum eins og MG ZE EV, Nissan Leaf, Volkswagen ID.3 o.fl. getur því bætt þessum á listann og gert samanburð. Ábyrgð á rafhlöðunni er átta ár, en að öðru leyti kemur bíllinn með tveggja ára verksmiðjuábyrgð. Það er heldur stutt ábyrgð í samanburði við samkeppnina, sem býður upp á allt að sjö ára verksmiðjuábyrgð. Á meðan flestir rafmagnsbílar eru með nokkurra mánaða biðtíma þá eru þessir til á lager. Það eitt og sér getur gert þennan bíl að vænlegum kosti fyrir þá sem vilja ekki bíða lengi eftir nýjum bíl. Rúmgott skott. Undir gólfinu leynist varadekk í fullri stærð.Að aftan er bíllinn mjög aðlaðandi. Series 3 er nýr rafmagnsbíll á íslenskum markaði. Verðlagningin og ríkulegur staðalbúnaður gerir bílinn samkeppnishæfan, en ófullkomið margmiðlunarkerfi dregur hann niður. Myndir / ÁL Innréttingin og sætin eru íburðarmikil. Leðurklæðning og hraðastillir eru meðal staðalbúnaðar. Stórir gluggar hleypa birtu inn í annars dökka innréttingu. Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.