Skessuhorn - 17.08.2022, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022 15
Þín leið
til fræðslu
Sveitamennt styrkir starfsmenntun beint til sveitafélaga
og stofnana þeirra á landsbyggðinni.
Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum
stéttarfélaganna.
Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin
um afgreiðslu þeirra í umboði Sveitamenntar.
Kynntu þér rétt þinn á www.sveitamennt.is
Sveitamennt
Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • sveitamennt@sveitamennt.is
Borg á Mýrum
Messa og messukaffi í tilefni starfsloka Þorbjarnar Hlyns
Árnasonar sóknarprests og prófasts að Borg verður kl.14
næstkomandi sunnudag 21. ágúst.
40 ára starf að baki á höfuðstað Borgarfjarðar!
Orgelspil og söngur í messunni.
Með von um að sem flestir geti mætt, sóknarnefndin.
m.a. í því aukið samtal við nem-
endur skólans þar sem þeim er
gert í ljós hver réttindi þeirra,
sem barna, eru og skyldur. Margt
spennandi er á döfinni í skólanum í
vetur og nefnir Júlía að áfram verði
unnið að auknu foreldrasamstarfi
og bættum skólabrag.
Laugargerðisskóli
Engin eiginleg skólasetning er í
Laugargerðisskóla en skólastarf
hefst að morgni 22. ágúst. Nem-
endur mæta þá með skólabíl í skól-
ann eins og aðra daga ársins en
dagurinn verður styttri en á að
venjast og óformlegri.
Mikil breyting varð á starfsliði
skólans nú í sumar. Þrjár kennara-
stöður eru við skólann og ráðnir
voru inn nýir kennarar í tvær
þeirra. Þá var einnig ráðinn inn nýr
stuðningsfulltrúi.
Í ár stefnir í að 14 nemendur
verði við skólann, þar af eru fimm
börn frá Þýskalandi og tvö börn frá
Litháen. Fjölmennasti bekkur skól-
ans er 6. bekkur, í honum eru fjórir
nemendur. Annars er dreifing nem-
enda á bekkina nokkuð jöfn, en ekki
eru nemendur í öllum árgöngum.
Síðustu ár hefur Laugargerðis-
skóli tekið inn núllta bekk á vor-
önn, það eru nemendur sem eiga
að hefja skólagöngu í fyrsta bekk
komandi haust. Sigurður Jónsson,
skólastjóri, segir að því verði haldið
áfram og vonast jafnvel til að geta
tekið inn núllta bekk fyrr í ár eða
strax þegar líður á haustið.
Grunnskóli
Snæfellsbæjar
Skólasetning í Grunnskóla Snæ-
fellsbæjar verður mánudaginn 22.
ágúst og kennsla hefst samkvæmt
stundaskrá strax daginn eftir, 23.
ágúst. Nú eru skráðir í skólann um
220 nemendur sem deilast niður á
þrjár starfsstöðvar. Í Ólafsvík verða
nemendur í 6.-10. bekk, 114 tals-
ins. Á Hellissandi eru 89 nemendur
í 1.-5. bekk og í Lýsudeild skólans á
Lýsuhóli í Staðarsveit eru 20 nem-
endur og er þar kennt í 1.-10. bekk.
Búið er að manna í allar stöður í
skólanum og er Hilmar Már Ara-
son, skólastjóri, ánægður með
hvernig til tókst. „Við auglýstum
auðvitað allar lausar stöður, en
staðan er bara sú að það er erfitt
að fá menntaða kennara til starfa
hér. Það má segja að við ölum upp
okkar eigin kennara, við ráðum inn
gott fólk og hvetjum það svo til að
fara í kennaranám og svo þurfum
við bara að vona að fólkið komi til
baka til okkar að námi loknu.“
Húsnæði skólans á Hellissandi
hefur verið endurnýjað töluvert á
síðustu mánuðum bæði að innan
og utan. Enn er þó heilmikið eftir.
„Það hefur reynst mjög erfitt að fá
iðnaðarmenn og endurbæturnar
við skólann stranda helst á því. Til
að mynda stendur til að skipta út
öllum gluggum í byggingunni. Það
er búið að kaupa gluggana og þeir
eru komnir en það fást ekki smiðir í
vinnu við að setja þá í. Annars erum
við mjög ánægð með þær fram-
kvæmdir sem náðst hefur að klára
og má þá helst nefna að aðgengi
fyrir fatlaða að húsinu er orðið
mjög gott, bæði er kominn rampur
við húsið og rafmagnshurð.“
Undanfarin ár hefur í skólanum
verið lögð áhersla á átthagafræði,
og verður svo áfram í vetur, og
segir Hilmar að skólinn sé sá eini
á landinu sem kenni það fag. Átt-
hagafræði er fræðsla um grenndar-
samfélagið og eru lykilþættirnir
náttúra, landafræði og saga sveitar-
félagsins.
Grunnskóli
Grundarfjarðar
Föstudaginn 19. ágúst verður
grunnskólinn settur í Grundarfirði
og hefst kennsla samkvæmt stunda-
skrá á mánudagsmorgun 22. ágúst.
Rétt rúmlega 100 börn eru skráð í
skólann þennan veturinn og er það
örlítil fjölgun frá því í fyrra.
Vel gekk að manna í þær stöður
sem auglýstar voru og er Sig-
urður Gísli Guðjónsson, skóla-
stjóri, ánægður með sitt starfsfólk.
„Við erum með tæplega 13 stöðu-
gildi kennara hér í skólanum og þar
af eru einungis tveir sem ekki hafa
leyfisbréf til kennslu og er annar af
þeim í grunnskólakennaranámi.“
Síðustu ár hefur verið mikið um
útikennslu í skólanum og segir Sig-
urður að henni verði haldið áfram í
vetur. „Við ætlum að einblína meira
á list- og verkgreinar og íþrótta-
starf í vetur og halda áfram að vera
mikið í útinámi.“
Sumarið var nýtt í endurbætur á
húsnæði skólans, gerður nýr inn-
gangur, gert við múrverk að utan
og húsið málað. Vonast er til að það
verkefni klárist áður en skólastarf
hefst.
Grunnskólinn
í Stykkishólmi
Setningarathöfn Grunnskólans í
Stykkishólmi fer fram miðviku-
daginn 24. ágúst klukkan 10 fyrir
1.-7. bekk og klukkan 11 fyrir
8.-10. bekk. Kennsla hefst sam-
kvæmt stundaskrá daginn eftir,
fimmtudaginn 25. ágúst. Vel hefur
gengið að manna lausar stöður við
skólann og er ráðningum lokið
utan einnar stöðu sem enn er aug-
lýst, það er staða kennara í list- og
verkgreinum. Við skólann eru 20
kennarastöður sem mannaðar eru
ýmist af faglærðum kennurum eða
leiðbeinendum sem eru í kennara-
námi. Þá er einn leiðbeinandi sem
er menntaður matvælafræðingur.
Töluverð fjölgun er á nem-
endum. Í vetur verða 165 nem-
endur við skólann en þeir voru 151
síðasta vetur. Ástæðan fyrir þessari
fjölgun er sú að í vor útskrifaði
skólinn sjö nemendur úr 10. bekk
og var það sögulega fámennur
útskriftarbekkur í skólanum. Nú
innritast svo 19 nemendur í fyrsta
bekk. Berglind Axelsdóttir, skóla-
stjóri, segir skólann horfa fram á
meiri fjölgun næstu árin. Búið sé
að stækka leikskólann í bænum og
nú sé grunnskólinn í ákveðnum
breytingafasa. „Það er verið að taka
kjallarann í skólanum í gegn og
verið að breyta kennslurýmum þar.
Það er svolítið spennandi verkefni
því þar ætlum við til dæmis að setja
upp snillismiðju sem má kannski
segja að sé eins konar byrjunarfasi
af FabLab.“ Í kjallaranum verða
kenndar list- og verkgreinar og
þar verður einnig til húsa svokallað
„Regnbogaland,“ sem er eins konar
gæsla eða frístund fyrir börn að
loknum skóladegi. „Við erum mjög
spennt fyrir þessum breytingum og
veturinn leggst vel í okkur og svo
horfum við fram á vonandi hefð-
bundinn skólavetur eins og var fyrir
Covid,“ segir Berglind að lokum.
Auðarskóli
í Búðardal
Skólasetning Auðarskóla í Dölum
fer fram þriðjudaginn 23. ágúst og
kennsla hefst samkvæmt stunda-
skrá morguninn eftir, miðviku-
daginn 24. ágúst. Nemendur skól-
ans verða 88 talsins í vetur og er
það svipaður fjöldi og verið hefur.
Herdís Erna Gunnarsdóttir er nýr
skólastjóri Auðarskóla og hún segir
að vel hafi gengið að manna starfs-
lið skólans fyrir veturinn. „Það
gekk vel að manna. Við erum með
reynda kennara og svo erum við
með fólk sem hefur verið hjá okkur
í nokkurn tíma, er í kennaranámi
og er búið með stóran hluta þess. Í
raun réðum við bara inn einn nýjan
starfsmann sem mun sinna kennslu
í vetur.“
Veturinn leggst vel í Herdísi og
hún segir margar hugmyndir vera
uppi á borðum að skemmtilegum
verkefnum og hlakkar til samtals
við starfsfólkið sitt. „Við ætlum að
reyna að vera strax með útivist-
ardag, helst bara fimmtudaginn 25.
ágúst ef veður er gott, þá verður
útikennsla í öllum bekkjum skólans
og þetta verður svona „útivistar-
dagur í héraði.“
Reykhólaskóli
Reykhólaskóli hefst mánudaginn
22. ágúst með svokölluðum tvö-
földum degi en þá er skólasetning
og kennsla hefst svo í beinu fram-
haldi af henni. Í vetur eru 30 nem-
endur skráðir í grunnskólann og 12
börn eru í leikskóladeild skólans.
Nýr skólastjóri var ráðinn í
sumar og er það hún Anna Mar-
grét Tómasdóttir, sem áður var
forstöðumaður ungmennabúðanna
á Laugum og síðar Laugarvatni.
Vel gekk að ráða í lausar stöður við
skólann og er hann vel mannaður,
að sögn Önnu Margrétar. Fimm
kennarar verða við kennslu í vetur
í fjórum stöðugildum auk iðju-
þjálfa og stuðningsfulltrúa. „Það er
jákvæð og góð stemning í sveitar-
félaginu og ég held að flestir séu
spenntir fyrir vetrinum, ég veit að
ég er það,“ segir Anna Margrét.
Það verður nóg um að vera í
Reykhólaskóla í vetur og áfram
verður samstarf við aðra minni
skóla eins og á Hólmavík og í
Búðardal en unglingadeild Reyk-
hólaskóla hefur t.d. mætt þangað í
félagsmiðstöðvar.
Þá er Reykhólaskóli einn af sam-
starfsaðilum verkefnisins „Læris-
sneið,“ en í því verkefni hittast nem-
endur, í unglingadeildum fámennra
skóla, á netinu og velja sér þar val-
grein sem þeir hafa áhuga á. Val-
greinar sem verða í boði í vetur
eru t.a.m. kökuskreytingar, eðlis-
og efnafræðival, kvikmyndagerð,
kynjafræði og rafíþróttir. Með
þessu verkefni er fámennari skólum
gert kleift að bjóða nemendum upp
á fjölbreyttari valgreinar svo allir
finni eitthvað við sitt hæfi. gbþSkólastarf í Grunnskóla Snæfellsbæjar. Ljósm. úr safni/þa