Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1931, Blaðsíða 72
Skrá yfir lendingar og leiðarmerki
eftir skýrslum frá hreppsnefndaroddvitum samkvæmt lögurn
nr. 16, 14. júní 1929.
1. HAFNAHREPPUR
a. 1< ALMANNSTJ ÖRN
Lendingin er í suður frá bænum Kalmannstjörn, fast við
túnið. Leiðarmerki eru tvö tré, annað stendur á hólnum fyrir
sunnan bæinn, en hitt stendur í túngarðinum fyrir ofan lend-
inguna. Tré þessi eiga að bera saman, og þeirri stefnu haldið
alla leið, Sundið á að taka, þegar Bælið ber um grjótvörðu sem
stendur á svonefndri Ilæð, h. u. b. 500 m. fyrir sunnan lícd-
mannstjörn. Þess ber að gæta fyrir alla, sem fara þetta sund, að
vera aðeins norðan við rétt sundmerki, vegna straums sem ein-
lægt vill bera að suðurlandinu,
í lendingunni er sandur. Á leiðinni eru engin blindskei'.
Bezt er að lenda með háum sjó. Bæli er hóll, sem er uppi á há-
heiðinni fyrir sunnan Kalmannstjörn.
1). MERKINES
Lendingin er hér um bil 300 m. i norðaustur frá bænum
Merkines. Leiðarmerki eru: Varða, sem stendur á malarkampi
500 m. norðaustur frá lendingunni, og klapparhóll með tveiffl'
ur smávörðum á. Hóllinn er í hásuður frá áðurnefndri vörðu,
millibil er 400 m. Sundið skal taka, þegar Bælið (sbr. 1. a.) er uni
vörðu þá, sem stendur ofan til við Skiftivík, sem er næst fyrir
sunnan Merkines; þá er haldið eftir áðurnefndum inerkjum.
þar ti! að tvær vörður, sem standa fyrir ofan lendinguna, ber
saman, þá er haldið upp i vör. í lendingunni er sandur og
klappir. Menn eru varaðir við að nota þctta sund ef brim er-
það er talið slæmt, en landtaka er góð.
c. KIRKJUVOGUR
Lendingin er í norður frá kirkjunni, innan til við svonefnt
Kirkjusker, sem er 120 m. norður frá Kotvogi. Leiðarmerki eru
tvær vörður með venjulegum sundtrjám. Þær eru i austur fríl
Kirkjuvogssundi og standa niður við flæðarmál, að sunnan-
verðu við ósana, millibil er 200 m. Sundið er tekið, þegar Ba'd
(sbr. 1. a.) ber um bæinn Junkaragerði, og er svo haldið iun