Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1931, Blaðsíða 112
110
105. Beruneshreppur.
106. Geithellnahreppur.
107. NESJAHREPPUR
a. HORNSYÍK
Lendingin er við bæinn Horn. Þar sem lent er, er sandur,
engar grynningar á leiðinni. Lendingin er góð i kj rrum sjó.
b. HÖFN (í Hornafirði).
Þar er lent við bryggju í kaupstaðnum eða eyjum þar i
grend.
108. BORGARHAFNARHREPPUR
a. S ÆVARHÓLAKLETTUR
Lendingin er suður af Sævarhólakletti og suðaustur frá Skála-
felli. Leiðarmerki eru engin. Leiðin liggur austan við svonefnda
Hólakletta. Klettarnir eru tveir, annar í fjörunni, en hinn er 200
m. frá landi. Lendingin er fyrir opnu hafi, og er talin slænl.
Lendingin lítið notnð.
b. HÁLSAHÖFN
Hálsahöfn, austanundir svonefndum Klapparhálsi; austur af
tanganum er Hafnasker, og eru boðar i kringum það, mjög vara-
samir. Skipaleiðin er óhrein að því leyti, að boðarnir eru nálægt
henni, og leiðarmerki eru engin. Lendingin lítið notuð.
c. BJARNAHRAUNSSANDUR
Sandurinn er niður undan bæjunum Bjarnahöfn og Kálfa-
fellsstað, mitt á milli bæja. Leiðarmerki eru engin. Sker er að
utanverðu við lendinguna, og dregur ]>að talsvert úr brimi við
hana, einkanlega í suðvestansjó. Lending þessi er talsverðum
breytingum háð, stundum myndast hár sandmalarkampur, el1
stundum dregur sjórinn hann aftur út og sléttar yfir. Þar er
vanalega meira og minna brim og er talin slæm lending.
d. VINDÁSFJARA
Það er lending frá Breiðabólsstað, og er suður frá bænun'
Sléttabóli við Steinafjall. Út frá lendingunni er grunnbrot um
150 m. frá landi, og er hún ekki fær nema i góðu.
106. Hvammshreppur.