Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1939, Blaðsíða 42
V A K A 2. árg. . Jan.-marz 1939
Stofnaður hefir verið svokall-
aður Nýbýlasjóður, sem veitir
styrki og lán til stofnunar
nýbýla. Á þeim fáu árum, sem
sjóðurinn hefir starfað, hefir
hann styrkt og lánað fé til stofn-
unar 160 býla. Og áður en hann
var stofnaður hafði ríkið styrkt
40 býli.
Um þetta er í sjálfu sér gott
eitt að segja. En þó verður ekki
gengið fram hjá því, að ráðstaf-
anir af hálfu hins opinbera um
býla og fólksfjölgun í sveitum,
hafa ekki fullkomlega náð til-
gangi sínum. Nýju býlin hafa
mörg til að bera sömu ókost-
ina og verið hafa mestu mein
landbúnaðarins allt frá önd-
verðu: Einangrun, fámenni á
heimilunum, lítið ræktað land,
vöntun á stærri og fljótvirkari
landbúnaðarverkfærum, og köld
húsakynni.
En þrátt fyrir það, þótt ekki
hafi verið gengið jafn gagngert
til verks í þessum efnum og þörf
er á, er langt frá að fullnægt
hafi verið eftirspurn um aðstoð
við myndun nýrra býla. Sýnir
það betur en nokkuð annað, að
hér er full þörf víðtækra aðgerða
og stefnubreytinga í þessum mál-
um. Það má að vísu ekki leggja
minni áherzlu á býlafjölgun, en
gert hefir verið. En aðalúrlausn
í þessum efnum tel ég stofnun
byggðahverfa. Ríkisvaldið verður
að beina meira fjármagni til
býlafjölgunar en nú er gert.
Leiðin, sem á að fara til þess
að fjölga verulega fólki í sveitum
40
landsins, er myndun fjölmennra
byggðahverfa. Þeim yrði valin
staður, þar sem skilyrði væru góð;
gott, frjósamt og auðræktanlegt
land; samband við síma- og vega-
kerfi; góð aðstaða til að reisa afl-
stöðvar, sem hituðu og lýstu hí-
býli manna og dýra, og veittu
orku til margskonar starfsemi;
jarðhiti, sem skapar fágæta að-
stöðu við ýmiskonar ræktun; góð
engjalönd; skilyrði til áveitu,
kartöfluræktar, móvinnslu og
margs annars, sem of langt
mál yrði upp að telja. Auk
þessa skapar þéttbýlið mögu-
leika á sameiginlegum afnotum
af öllum stærri landbúnaðarverk-
færum og ýmsum menningar-
tækjum, og félagslíf allt yrði auð-
veldara og skemmtilegra.
Ríkið verður að sjálfsögðu að
hafa á hendi forgöngu og fram-
kvæmd í þessum málum. Jafn
stórfelld átök og hér verða að eiga
sér stað verða ekki gerð nema
ríkisvaldið eigi þar drýgstan þátt
að. Ég geng þess að vísu ekki dul-
inn, að upp muni skjóta röddum
um það, að ríkið geti þetta ekki,
fjárhag þess sé þann veg farið.
En þeim góðu mönnum, sem
þannig hugsa, vil ég segja þetta:
Ráðgert er að láta smíða á
þessu ári eitt til tvö nýtízku far-
þegaskip, sem búizt er við að kosti
samtals svo miljónum kr. skiptir.
Við höfum nýskeð lagt í kostnað,
sem nemur hundruðum þúsunda
króna vegna stækkunar á út-
varpstöð okkar. Við höfum varið
of fjár til byggingar þjóðleikhúss