Borgfirðingabók - 01.12.2004, Side 28
26
Borgfirdingabók 2004
fimmtán til tuttugu síðustu árunum, þá var kvenfólkinu
þó enn ógreiðari leið til bókmennta. Fáar konur, þótt
greindar væru, voru skrifandi, þeirra sem fulltíða voru fyr-
ir miðja öldina.xxi
Höfundur bætir við að allt fram til f880 hafi lítill hluti
kvenna verið „sæmilega sendibréfsfær hér um Borgarfjörð.“xxii
Skólar skjóta upp kollinum
Sérstakir kennarar koma lítt við sögu alþýðumenntunar fyr-
ir þennan tíma nema þá heimiliskennarar hjá betri bændum
og borgurum í bæjum. En í kjölfar laganna 1880 komst mikil
hreyfing á stofnun fastra barnaskóla. Fram til 1890 fjölgaði
þeim nokkuð ört á suðvesturhorni landsins þar sem byggð var
þéttari við sjávarsíðuna en í öðrum landshlutum. Drjúgan þátt
í skólahreyfingunni áttu eflaust hinar hertu menntunarkröfur
sem lagsetningin fól í sér; því að í mörgum tilvikum reyndist
heimilunum ókleift að standa undir þeim upp á eigin spýtur.
Það vekur athygli að annar tveggja þeirra föstu skóla sem
voru starfræktir í sveit árið 1880 var barnaskólinn á Leirá.
Þessa skóla getur í ritgerð Kristleifs á Stóra-Kroppi , „Alþýðu-
menntun“: „Mér er í minni, er ég gisti eitt sinn á Leirá, frosta-
veturinn 1881, að þar var hópur smásveina, er voru þar í barna-
skóla ... frá ýmsum bæjum í sveitinni, þeirra á meðal nokkrir
synir Þórðar á Fiskilæk.“xxiii
Að sögn Kristleifs stóð Þórður Þorsteinsson bóndi á Leirá
flestum öðrum borgfirskum bændum framar að framtaki og
áræði. Kristleifur getur þess ennfremur að um sama leyti hafi
ýmsir efnaðri bændur í Borgarfjarðarhéraði farið að dæmi
hans og tekið heimiliskennara handa börnum sínum. Af þessu
framtaki spratt síðan í flestum hreppum sveitakennsla eða far-
kennsla sem ýmsir eldri Borgfirðingar munu hafa kynnst af eig-
in raun í uppvexti sínum á fyrri helmingi 20. aldar.xxivTveimur
árum eftir setningu laganna um fræðslu barna 1907, þ.e. skóla-
árið 1909-1910, var komin á farkennsla í flestum hreppum í
Borgarfirði, að undanskildum Innri-Akraneshreppi, Skil-
mannahreppi og Strandarhreppi.xxv
Ein veigamesta breytingin sem varð á menntunarmöguleik-