Borgfirðingabók - 01.12.2004, Blaðsíða 37
Borgfirdingabók 2004
35
aðra og mjög ólíka hugsun, jafnvel þótt þetta séu líka matvör-
ur gerðar meira og minna úr sömu hráefnum. Og þetta verð-
ur aldrei þöldaframleiðsla.
A því leikur ekki vafi að hér verða áfram störf við þjónustu
við nágrannabyggðarlög. Þjónustusvæði Borgarness verður þá
vestur á Snæfellsnes, vestur fyrir Dali, norður eftir Strandasýslu
og Húnaþingi. I þessu verður reyndar hörð samkeppni við aðr-
ar sambærilegar miðstöðvar.
Fyrir utan Akureyrarsvæðið má gera ráð fyrir að utan borg-
ríkisins verði fámennur landbúnaður, og útgerð og fiskvinnsla
með fækkandi mannskap líka. Hins vegar má reikna með fjölg-
un starfa við ferðaþjónustu, útivistarþjónustu og þjónustu við
margvíslegan veiðiskap. Ymsir telja að Island hafi möguleika í
loðdýrarækt og fiskeldi og er þá hugað að þeim greinum á
heimsvísu. En þá er þess að gæta að verulegur árangur í þess-
um greinum getur fyrst orðið eftir að lokið er tilraunum sem
gætu tekið áratugi enn sé miðað við erlenda reynslu.
Ekki er vafi á að orkunýting og iðnvæðing hefur miklum
hlutverkum að gegna á komandi árum á landi hér. Og vel má
vera að hugvit manna tengi slíkar greinar við framþróun á Mið-
vesturlandi enda staðarval fyrirtækis ekki mjög háð orkuöflun-
arstað. Svipuðu máli gegnir um margs konar iðju- og þjónustu-
fýrirtæki sem tengjast nýtingu fjarskipta, hátækni, líftækni eða
sérhæfingu og sérþekkingu að þau eru ekki mjög háð því að
starfa í næstu nánd markaðarins. Fjarlægð er orðin mjög af-
stætt hugtak í fjarskipta- og tækniþróun nfitímans.
Mikið aðdráttarafl
Staðir eins og Borgarnes hafa aðdráttarafl fyrir höfuðborgar-
búa, til þess að eiga hér annað heimili, aukaheimili eða jafnvel
aðalheimili sitt. Þessi "tvöfalda búseta” ryður sér til rúms víða
og hún kemur líka hingað. Það er tímabært að Borgfírðingar
leiði hugann að þessum möguleikum um allt héraðið, jafnt
Borgarnes sem sveitirnar.
I þessu felast þá líka þeir möguleikar að íbúar hér geti horft
til starfsmöguleika annars staðar í borgríkinu, en geta þá hald-
ið áfrarn að hafa annað heimili hér á gömlum slóðum.
Með þessu getur m.a. einhver og jafnvel verulegur hluti