Borgfirðingabók - 01.12.2004, Blaðsíða 48
46
Borgfirdingabók 2004
fuglalífi í nágrenni sínu í Hvítársíðu síðastliðin 70 ár og hugs-
anlegan þátt refs og minks í þeim breytingum. Sú samantekt á
erindi fyrir almenningssjónir.
Hér verða birtir þættir um borgfirska fugla og stiklað á stóru
um nokkrar fuglategundir; minnst á heimaríka vatnafugla og
hánorræna fargesti sem nýta sér svæðið til viðkomu vor og
haust; tæpt á breytingum sem orðið hafa á fuglalífi á síðustu
áratugum; sagt frá nýjum landnemum í borgfirsku fuglafán-
unni og loks fjallað um konung fuglanna - örninn, sem hefur
verið að endurheimta forn óðul eftir að hafa verið útrýmt með
ofsóknum og eiturútburði.
Heimaríkir vatnafuglar
Hundruð vatna eru á borgfirsku heiðunum og einnig eru
mörg vötn á láglendi, einkum á Mýrum. Alftin er einkennisfugl
þessara vatna og verpur auk þess víða við tjarnir og í mýrlendi
frá fjöru til fjalls. Áfftir eru heimaríkar og verja lendur sínar af
miklu harðfylgi, einkum fýrir öðrum álftum en einnig fyrir að-
skotadýrum sem villast inn í hreiðurhelgina, svo sem lambám
og börnum. Komið hefur fýrir að grimmar álftir hafi drepið
kindur, þótt ég þekki ekki dærni slíks úr Borgarfirði.
A vorin, en þó einkum á haustin, safnast mikið af álftum á
neðanverða Norðurá, Gljúfurá og Hópið. A kyrrum haust-
kvöldum berst þægilegt skvaldur frá þessum hópum langar
leiðir og er kærkomin tilbreyting í fásinninu. Miðsumars safn-
ast álftir einnig í stóra hópa á nokkrum stöðum til að fella flug-
fjaðrir. Þetta eru geldfuglar (ókynþroska álftir) sem leita uppi
gjöful beitilönd þar sem þeir geta verið óhultir fýrir óvinum ef
hættu ber að höndum. Þessir hópar geta skipt hundruðum og
er helst að finna á lygnum sjávarvogum og við heiðavötn. Um
langa hríð hefur helsti fjaðrafellistaðurinn verið í Aiftárósi á
Mýrum. Þar hafa allt að f200 fuglar fellt fjaðrir, en þeim hefur
smám saman fækkað, og hafa hin síðari ár aðeins verið fáein
hundruð. Einnig fella álftir stundum fjaðrir í Akraósi, og upp
á síðkastið hafa margir tugir fugla fellt í ósum Hvítár. Lengi vel
var Ulfsvatn á Arnarvatnsheiði helsti fjaðrafellistaður geldálfta
á borgfirsku heiðunum, og voru þar stundum allt að 400 fugl-
ar í felli. Aukin umferð veiðimanna hefur að öllum líkindum