Fréttablaðið - 13.01.2023, Blaðsíða 1
| f r e t t a b l a d i d . i s |
Frítt
KYNN INGARBL
AÐALLT
FÖSTUDAGUR 13. janúar 2023
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
Drífa Líftóra hefur alltaf heillast af
mynstrum og virkni þeirra.
jme@frettabladid.is
Laugardaginn 14. janúar klukkan
16 verður sýningin Bestiarium
Negativum, á verkum Drífu Líftóru
Thoroddsen opnuð í Úthverfu á
Ísafirði. Listakonan verður við-
stödd opnun sýningarinnar og
boðið verður upp á léttar veitingar.
Sýningin stendur til sunnudagsins
5. febrúar.
Ógnvænleg náttúra
Í lýsingu á sýningunni kemur fram
að Drífa sé mikið náttúrubarn og
þjóðsagnanörd. Hún sé myrkfælin,
verði auðveldlega hrædd og hafi
notað listina til að vinna bug á
þeim ótta. Bestiarium Negativum
sýnir í myndum hvað gerist þegar
ógnarlegum ókindum er hrúgað
saman í litrík mynstur og geig-
vænleg grös taka á sig skuggalegar
myndir. „Frá því að land var hér
numið fyrir rúmum þúsund árum
höfum við í senn óttast og dáðst
að náttúrunni okkar … negatífa
náttúrunnar hefur leyft okkur að
sjá alls kyns verur sem voru ef til
vill ekki til staðar og hafa hinar
ýmsu sögur gengið manna á milli
um hvurslags ófreskjur hafa sést á
láði jafnt sem í legi. Þetta er okkar
arfur.“
Drífa Líftóra er í grunninn fata-
og textílhönnuður. Hún útskrifað-
ist með MA-próf í fatahönnun
frá Paris College of Art 2017 og
diplóma í textíl frá Myndlista-
skólanum í Reykjavík vorið 2020.
Eftir útskrift hefur hún haldið tvær
sýningar á handþrykktum fata-
línum á HönnunarMars. n
Okkar arfur
Lífið er gott og fjölbreytt
Tónlistarmaðurinn Matthías Matthíasson fær mikið út úr því að taka þátt í mikilvægum
augnablikum í lífi fólks. Hann situr sjaldan verkefnalaus heima en næsta stóra verkefni er
flutningur á meistaraverkinu Dark Side of the Moon eftir Pink Floyd í Hörpu. 2
Þegar ég hlustaði fyrst á þessa plötu var það í fyrsta skipti sem ég upplifði það sem ferðalag að hlusta á plötu, segir Matthías Matthíasson um eina söluhæstu
hljómplötu sögunnar, Dark Side of the Moon með Pink Floyd. Hún verður flutt í heild sinni í Eldborg í Hörpu snemma í næsta mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KYNN INGARBLAÐKynningar: Rannís, Opni háskólinn í HR, Fræðslusetrið, Dáleiðsluskóli Íslands, Val og virði.
FÖSTUDAGUR 13. janúar 2023
Skólar og námskeið
Frá vinstri: Eydís Inga Valsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís og stjórnandi Nordplus, norrænu tungumálaáætlunarinnar, Andrés Pétursson, sérfræðingur hjá Rannís og yfirstjórnandi Nordplus á Norður
löndunum og í Eystrasaltsríkjunum, og Eva Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís og kynningarstjóri Nordplus á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Rannís styður við norrænt menntasamstarf
Rannís treystir stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu. Frá
2019 hefur Rannís farið með yfirstjórn menntaáætlunar Nordplus. Í nýrri áætlun fyrir 2023–2027 er lögð áhersla
á eflingu menntasamstarfs til að stuðla að samfélagslegri og sjálfbærri framtíð. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar.
Nordplus er menntaáætlun Nor-
rænu ráðherranefndarinnar. Hún
var sett á laggirnar árið 1988 og
fagnar því 35 ára afmæli sínu í ár.
Jafnframt eru liðin fimmtán ár
síðan Eystrasaltsríkin bættust við í
áætlun Nordplus.„Sú viðbót hefur að sjálfsögðu
auðgað menntastarfið á þessu
svæði enn meir. Nordplus er
stærsta átaksverkefnið í nor-
rænu menntastarfi og styður við
samstarf á öllu sviðum og stigum
menntunar, allt frá leikskóla og
grunnskóla, til háskólamenntunar
og fullorðinsfræðslu,“ upplýsir
Eydís Inga Valsdóttir, sérfræðingur
hjá Rannís og stjórnandi Nordplus,
norrænu tungumálaáætlunarinn-
ar sem er einnig í höndum Rannís.
Nordplus, norræna tungumála-
áætlunin, er eina menntaáætlunin
sem styrkir verkefni sérstaklega
ætluð til að auka norrænan mál-
skilning. „Hún styður fjölbreytt verkefni,
svo sem námsefni og ýmiss konar
fræðslu, framleiðslu tölvuleikja og
smáforrita, rannsóknir, ráðstefnur
og í raun allt sem á einhvern hátt
miðlar norrænum tungumálum.
Nýjasta viðbótin í áætlun fyrir
árin 2023 til 2027 er stuðningur
við verkefni sem styðja við og
miðla opinberum minnihluta-
tungumálum á Norðurlöndunum,“
greinir Eydís Inga frá.Rannís hefur umsjón með helstu
samkeppnissjóðum á sviði rann-
sókna og nýsköpunar, menntunar
og menningar á Íslandi, auk sam-
starfsáætlana ESB og norrænna
áætlana sem veita styrki til sam-
starfsverkefna, náms og þjálfunar.
„Meðal hlutverka Rannís á sviði
norræns samstarfs er að fara með
yfirstjórn Nordplus á Norðurlönd-
unum til ársloka 2024. Það er hlut-
verk sem okkur er falið af Norrænu
ráðherranefndinni en yfirstjórnin
flyst reglulega á milli Norður-
landanna,“ útskýrir Eydís Inga.
„Við veitum ráðgjöf og þjónustu
til íslenskra skóla, stofnana, sam-
taka og annarra sem hafa áhuga
á að sækja um í Nordplus, óháð
hvaða undiráætlun það er. Einnig
sjáum við um umsýslu og stjórnun
norrænu tungumálaáætlunarinnar
og tökum þar á móti umsóknum frá
öllum Norðurlöndunum og Eystra-
saltsríkjunum, veitum ráðgjöf óháð
landi, metum umsóknir, greiðum
út styrki og fleira,“ segir Eydís Inga.Þátttaka Íslands mjög góð
Nordplus, menntaáætlun Nor-
rænu ráðherranefndarinnar,
hefur fimm undiráætlanir og er
stjórnun og umsýsla þeirra í
HALLDÓR | | 8 PONDUS | | 14
Nýtti
fótbrotið
vel
9 . t ö L U b L A ð | 2 3 . á R g A N g U R | F ö S t U D A g U R 1 3 . j A N ú A R 2 0 2 3
Fréttir | | 6
tímamót | | 12
líFið | | 18
|
Fréttir | | 2
Borgarlíf og
gamlir sálmar
Þrettán þúsund
krónur
á viku
Ósonlag jarðar
er að lagast
Rafmögnuð vetrarsýning!
Laugardaginn 14. janúar kl. 12-16 á Laugavegi 174
Stéttaandúð kemur í veg fyrir
að hægt sé að semja á viðun-
andi nótum að sögn formanns
Eflingar. Svíður einnig að
Starfsgreinasambandið standi
ekki með láglaunakonum.
bth@frettabladid.is
KjARAmáL Sólveig Anna Jónsdóttir,
formaður Eflingar, gagnrýnir ríkis-
sáttasemjara og segir að Efling hafi
verið svipt samningsrétti. Stétta-
andúð og neikvætt viðhorf til lág-
launakvenna ráði för.
Ef ekki semst gæti styst í verkfall
um 21 þúsund félagsmanna Efling-
ar. Um 80 prósent félagsfólks hafa
í nýlegri kjarakönnun sem byggir
á 4.500 svörum lýst sig tilbúin í
verkfall að sögn Sólveigar Önnu.
65 prósent Ef lingarkvenna, lang-
stærsti hópur félagsmanna, lifi við
viðvarandi fjárhagsáhyggjur.
„Ef til verkfalls kemur er það ekki
vegna þess að mig langi í verkföll
eða að fjölskipuð samninganefnd
sé gengin af göflunum heldur vegna
þess að fólk þarf á því að halda að
við náum árangri,“ segir Sólveig
Anna.
Hún segir að Ef ling hafi sýnt
mikinn samningsvilja en Aðal-
steinn Leifsson ríkissáttasemjari
hafi valdið vonbrigðum.
„Ég hef bundið vonir við að ríkis-
sáttasemjari átti sig á að það gengur
ekki að Efling sé svipt sjálfstæðum
samningsrétti,“ segir Sólveig Anna.
„En því miður áttar hann sig ekki á
því. Hann áttar sig ekki heldur á að
það er hans hlutverk að okkar við-
semjendur uppfylli sínar skyldur
og mæti með eitthvað að samninga-
borðinu.“
Að sögn formannsins er við að
eiga stéttaandúð hinna velmegandi
gagnvart vinnuafli sem haldi öllu
gangandi.
„Við upplifum mikla stéttaandúð,
mikla andúð á láglaunakonum
og ekki síst aðf luttum láglauna-
konum.“
Þá svíður Sólveigu Önnu einnig að
Starfsgreinasambandið standi ekki
með Eflingu.
„Viðsemjendur sjá okkur ekki
fyrir sér sem ómissandi fólk sem
heldur allri framleiðslunni gang-
andi heldur sem ruslaralýð. Því
miður hafa félagar okkur hjá Starfs-
greinasambandinu lagst á árar með
þeim.“
Aðalsteinn Leifsson vill ekki tjá
sig um málið. n
Gagnrýnir sáttasemjarann
Sólveig Anna
Jónsdóttir, for-
maður Eflingar
SK AFtáRHRePPUR Heiða Guðný
Ásgeirsdóttir, bóndi og minni-
hlutafulltrúi í sveitarstjórn Skaftár-
hrepps, segir mikilvægan áfangasig-
ur hafa unnist í verndun íslenskrar
náttúru með úrskurði gegn Hnútu-
virkjun.
„Þetta er stórkostlegt, alveg stór-
sigur fyrir náttúruvernd,“ segir hún.
Fjölmargar kærur sem bárust
úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála hafa leitt til aftur-
köllunar framkvæmdaleyfis fyrir
virkjunina. Sjá Síðu 4
Fagnar úrskurði
um Hnútuvirkjun
Heiða Guðný
Ásgeirsdóttir,
fulltrúi í minni-
hluta sveitar-
stjórnar
Íslenska karlalandsliðið í handbolta hóf leik á HM í handbolta í gærkvöldi og vann góðan sigur á Portúgölum í fyrstu umferð riðlakeppninnar með 30 mörkum
gegn 26. Leikið var í Kristianstad, þar sem fjöldi Íslendinga hvatti Strákana okkar áfram. Fréttablaðið/epa