Fréttablaðið - 13.01.2023, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 13.01.2023, Blaðsíða 13
KYNN INGARBLAÐ Kynningar: Rannís, Opni háskólinn í HR, Fræðslusetrið, Dáleiðsluskóli Íslands, Val og virði.FÖSTUDAGUR 13. janúar 2023 Skólar og námskeið Frá vinstri: Eydís Inga Valsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís og stjórnandi Nordplus, norrænu tungumálaáætlunarinnar, Andrés Pétursson, sérfræðingur hjá Rannís og yfirstjórnandi Nordplus á Norður- löndunum og í Eystrasaltsríkjunum, og Eva Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís og kynningarstjóri Nordplus á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Rannís styður við norrænt menntasamstarf Rannís treystir stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu. Frá 2019 hefur Rannís farið með yfirstjórn menntaáætlunar Nordplus. Í nýrri áætlun fyrir 2023–2027 er lögð áhersla á eflingu menntasamstarfs til að stuðla að samfélagslegri og sjálfbærri framtíð. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar. Nordplus er menntaáætlun Nor- rænu ráðherranefndarinnar. Hún var sett á laggirnar árið 1988 og fagnar því 35 ára afmæli sínu í ár. Jafnframt eru liðin fimmtán ár síðan Eystrasaltsríkin bættust við í áætlun Nordplus. „Sú viðbót hefur að sjálfsögðu auðgað menntastarfið á þessu svæði enn meir. Nordplus er stærsta átaksverkefnið í nor- rænu menntastarfi og styður við samstarf á öllu sviðum og stigum menntunar, allt frá leikskóla og grunnskóla, til háskólamenntunar og fullorðinsfræðslu,“ upplýsir Eydís Inga Valsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís og stjórnandi Nordplus, norrænu tungumálaáætlunarinn- ar sem er einnig í höndum Rannís. Nordplus, norræna tungumála- áætlunin, er eina menntaáætlunin sem styrkir verkefni sérstaklega ætluð til að auka norrænan mál- skilning. „Hún styður fjölbreytt verkefni, svo sem námsefni og ýmiss konar fræðslu, framleiðslu tölvuleikja og smáforrita, rannsóknir, ráðstefnur og í raun allt sem á einhvern hátt miðlar norrænum tungumálum. Nýjasta viðbótin í áætlun fyrir árin 2023 til 2027 er stuðningur við verkefni sem styðja við og miðla opinberum minnihluta- tungumálum á Norðurlöndunum,“ greinir Eydís Inga frá. Rannís hefur umsjón með helstu samkeppnissjóðum á sviði rann- sókna og nýsköpunar, menntunar og menningar á Íslandi, auk sam- starfsáætlana ESB og norrænna áætlana sem veita styrki til sam- starfsverkefna, náms og þjálfunar. „Meðal hlutverka Rannís á sviði norræns samstarfs er að fara með yfirstjórn Nordplus á Norðurlönd- unum til ársloka 2024. Það er hlut- verk sem okkur er falið af Norrænu ráðherranefndinni en yfirstjórnin flyst reglulega á milli Norður- landanna,“ útskýrir Eydís Inga. „Við veitum ráðgjöf og þjónustu til íslenskra skóla, stofnana, sam- taka og annarra sem hafa áhuga á að sækja um í Nordplus, óháð hvaða undiráætlun það er. Einnig sjáum við um umsýslu og stjórnun norrænu tungumálaáætlunarinnar og tökum þar á móti umsóknum frá öllum Norðurlöndunum og Eystra- saltsríkjunum, veitum ráðgjöf óháð landi, metum umsóknir, greiðum út styrki og fleira,“ segir Eydís Inga. Þátttaka Íslands mjög góð Nordplus, menntaáætlun Nor- rænu ráðherranefndarinnar, hefur fimm undiráætlanir og er stjórnun og umsýsla þeirra í 

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.