Fréttablaðið - 13.01.2023, Blaðsíða 11
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FÖSTUDAGUR 13. janúar 2023
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
Drífa Líftóra hefur alltaf heillast af
mynstrum og virkni þeirra.
jme@frettabladid.is
Laugardaginn 14. janúar klukkan
16 verður sýningin Bestiarium
Negativum, á verkum Drífu Líftóru
Thoroddsen opnuð í Úthverfu á
Ísafirði. Listakonan verður við-
stödd opnun sýningarinnar og
boðið verður upp á léttar veitingar.
Sýningin stendur til sunnudagsins
5. febrúar.
Ógnvænleg náttúra
Í lýsingu á sýningunni kemur fram
að Drífa sé mikið náttúrubarn og
þjóðsagnanörd. Hún sé myrkfælin,
verði auðveldlega hrædd og hafi
notað listina til að vinna bug á
þeim ótta. Bestiarium Negativum
sýnir í myndum hvað gerist þegar
ógnarlegum ókindum er hrúgað
saman í litrík mynstur og geig-
vænleg grös taka á sig skuggalegar
myndir. „Frá því að land var hér
numið fyrir rúmum þúsund árum
höfum við í senn óttast og dáðst
að náttúrunni okkar … negatífa
náttúrunnar hefur leyft okkur að
sjá alls kyns verur sem voru ef til
vill ekki til staðar og hafa hinar
ýmsu sögur gengið manna á milli
um hvurslags ófreskjur hafa sést á
láði jafnt sem í legi. Þetta er okkar
arfur.“
Drífa Líftóra er í grunninn fata-
og textílhönnuður. Hún útskrifað-
ist með MA-próf í fatahönnun
frá Paris College of Art 2017 og
diplóma í textíl frá Myndlista-
skólanum í Reykjavík vorið 2020.
Eftir útskrift hefur hún haldið tvær
sýningar á handþrykktum fata-
línum á HönnunarMars. n
Okkar arfur
Lífið er gott og fjölbreytt
Tónlistarmaðurinn Matthías Matthíasson fær mikið út úr því að taka þátt í mikilvægum
augnablikum í lífi fólks. Hann situr sjaldan verkefnalaus heima en næsta stóra verkefni er
flutningur á meistaraverkinu Dark Side of the Moon eftir Pink Floyd í Hörpu. 2
Þegar ég hlustaði fyrst á þessa plötu var það í fyrsta skipti sem ég upplifði það sem ferðalag að hlusta á plötu, segir Matthías Matthíasson um eina söluhæstu
hljómplötu sögunnar, Dark Side of the Moon með Pink Floyd. Hún verður flutt í heild sinni í Eldborg í Hörpu snemma í næsta mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI