Fréttablaðið - 13.01.2023, Síða 15
Opni háskólinn, Háskól-
anum í Reykjavík, býður
atvinnulífinu og einstakl-
ingum endurmenntun og
símenntun til að hjálpa fólki
við að ná markmiðum og
bæta við sig nýjum styrk-
leikum. Þjónustan styrkir
vinnustaði samhliða því að
skerpa á þekkingu starfs-
fólksins þar.
Jafnframt vinnur Opni háskólinn
með fyrirtækjum og stofnunum
sem óska eftir sérsniðnum og
heildrænum lausnum í fræðslu-
málum. „Fólk sem sækir námskeið
í Opna háskólanum gerir það til að
efla stöðu sína á vinnumarkaði og
bæta samkeppnishæfni sína, svo
að ég grípi til hugtaka sem standa
okkur nærri,“ segir doktor Ingunn
S. Unnsteinsdóttir Kristensen,
sem nýlega var ráðin forstöðukona
Opna háskólans.
Sókn í nýsköpun og þróun
Ingunni er meðal annars ætlað að
leiða sókn Opna háskólans á sviði
nýsköpunar og þróunar og marka
honum afgerandi sess á mörkum
atvinnulífs, háskóla og vísinda. „Ég
var áður aðstoðarframkvæmda-
stýra Mjölnis og er einn eigenda
heilahristingsmóttökunnar Heila-
heilsu en hef verið með fókusinn
á doktorsverkefni mitt undan-
farin ár, sem ég varði einmitt við
sálfræðideild HR fyrir nokkrum
vikum. Kom til Opna háskólans
fyrir nokkrum vikum og er hrika-
lega spennt fyrir þessu verkefni,“
segir hún.
Að sögn Ingunnar er almenn-
ingur duglegur að hafa samband
og fá klæðskerasniðna ráðgjöf um
möguleikana í boði. „Við viljum
einmitt sérstaklega hvetja tví-
stígandi fólk til að láta í sér heyra.
Við hjá Opna háskólanum höfum
sérfræðinga sem eru ansi snjallir
í að finna út úr því með fólki
hvernig það geti styrkt stöðu sína á
vinnumarkaði með bæði styttra og
lengra námi.“
Náið samstarf við akademíuna
Ingunn kveður Opna háskólann
þrífast vel í HR. „Þetta er öflugur
rannsóknaháskóli á alþjóðavísu
og stenst samanburð við erlenda
háskóla í fremstu röð. Það er mikill
kraftur sem felst í samspili Opna
háskólans og HR og okkur líður
afskaplega vel hérna í þessu aka-
demíska umhverfi. Það tengist
síðan vel inn í þá staðreynd að þau
sem sækja námskeið í Opna háskól-
anum fá hérna tækifæri til þess
að efla tengslanet sitt en fjölmörg
námskeið okkar eru kennd í staðar-
lotum, bæði styttri og lengri.“
Í Opna háskólanum er hægt að
sækja fjölmörg námskeið, sem
spanna allt frá því að vera ætluð
almennu skrifstofufólki yfir í það
að vera sérsniðin fyrir stjórnendur
eða sérfræðinga. Í samstarfi við
akademískar deildir Háskólans í
Reykjavík leggur Opni háskólinn
sig fram við að bjóða upp á
þjónustu í hæsta gæðaflokki að
sögn Ingunnar.
Námskeið við hæfi flestra
„Meðal þeirra námskeiða sem
Opni háskólinn býður upp á eru
Power BI frá A til Ö, Ferla- og
gæðastjórnun og Agile verkefna-
stjórnun. Power BI er fyrir allt það
fólk sem vill læra að setja fram
gögn með myndrænum hætti.
Námskeiðið byggir á virkri þátt-
töku og nýtist öllum sem eru að
vinna með gögn á töluformi. Ferla-
og gæðastjórnun hentar stjórn-
endum og öllum þeim sem vilja
læra að greina ferla, nýta mælingar
og gögn, innleiða stjórnunarað-
ferðir og læra helstu aðferðir á sviði
gæða- og verkefnastjórnunar. Agile
Sóknarhugur hjá Opna háskólanum í HR
Dr. Ingunn S. Unnsteinsdóttir Kristensen var nýlega ráðin forstöðukona Opna háskólans. Ingunni er meðal annars ætlað að leiða sókn Opna háskólans á sviði
nýsköpunar og þróunar og marka honum afgerandi sess á mörkum atvinnulífs, háskóla og vísinda. MYND/AÐSEND
Við hjá Opna
háskólanum
höfum sérfræðinga sem
eru ansi snjallir í að
finna út úr því með fólki
hvernig það geti styrkt
stöðu sína á vinnumark-
aði með bæði styttra og
lengra námi.
verkefnastjórnun er fyrir alla sem
vilja þekkja og skilja hugmynda-
fræðina á bak við Agile og hvar og
hvernig Agile á við. Við vonum að
allir finni eitthvað við sitt hæfi í
Opna háskólanum en stefnan er
að auka við námskeiðaframboð á
næstunni og koma þannig til móts
við þann sívaxandi og fjölbreytta
hóp í atvinnulífinu sem vill efla sig
í starfi og dýpka þekkingu sína og
getu,“ segir Ingunn.
Þess má geta að Opni háskólinn
býður einnig upp á vefnámskeið en
meðal þeirra eru námskeið eins og
Tæknisjálfstraust og Fjármálalæsi.
Fjármálalæsisnámskeiðin eru þrjú,
hvert með sinn fókus, meðal ann-
ars fjármál heimilisins og sparnað
og fjárfestingar. n
kynningarblað 3FÖSTUDAGUR 13. janúar 2023 SkólaR Og námSkeið
Kynntu þér fjölbreytt námsframboð á opnihaskolinn.is
Styrktu
stöðu þína
með Opna háskólanum í HR
Dæmi um námskeið Opna háskólans:
Power BI frá A til Ö
Hefst 18. janúar
Styrkumsóknargerð fyrir frumkvöðla
Hefst 24. janúar
Bókhald - grunnur
Hefst 8. febrúar
Agile verkefnastjórnun
Hefst 8. mars
Skipulag og verkstjórn með Planner og Teams
Hefst 17. febrúar