Fréttablaðið - 13.01.2023, Qupperneq 17
Farsælt samstarf til framtíðar
Sýslumenn eru meðal þeirra
stofnana sem hafa nýtt sér
Ráðgjafa að láni og hefur sam-
starfið gengið vonum framar að
sögn Bjarneyjar Ingu Sigurðar-
dóttur, ábyrgðaraðila fræðslu-
mála hjá sýslumönnum. „Fram-
tíðarsýn Sýslumanna er að
veita framúrskarandi þjónustu
óháð búsetu og staðsetningu
hvar og hvenær sem er og hafa
Sýslumenn sett sér það mark-
mið að vera leiðandi í rafrænni
þjónustu. Sú vegferð þýðir það
að við þurfum að aðlaga okkur
breyttum tímum.“
Þrátt fyrir að embættin séu
níu talsins vinnur starfsfólk
þétt saman að hennar sögn,
enda vinnur það að stórum
hluta að sömu verkefnunum.
„Við vildum veita starfsfólkinu
okkar aukinn stuðning á
þessum tímamótum með því að
bjóða upp á samræmda fræðslu
fyrir alla, óháð stéttarfélagi.“
Starfshópur var skipaður með
fulltrúum nokkurra embætta
sem fór að skoða möguleikana
sem voru í boði. „Okkur leist vel
á þjónustuna Ráðgjafi að láni
hjá Starfsmennt. Að auki höfðu
nokkur embætti þegar nýtt sér
þjónustuna, jafnvel oftar en
einu sinni og gefið henni bestu
meðmæli. Við settum okkur í
samband við þau og boltinn fór
strax að rúlla.“
Markmið Sýslumanna var
fyrst og fremst að að kortleggja
fræðsluþörfina innan embætt-
anna og setja markmið um hvað
væri í forgangi. „Við vildum
byggja á þörfum starfsmanna og
vera í samræmi við nýjar áskor-
anir vegna aukinnar áherslu á
stafræna þjónustu. Við höfðum
ekki öll verkfærin til þess, en
Starfsmennt var með þau.“
Mælir með þjónustunni
Í lok ráðgjafarverkefnisins fengu
stjórnendur afhenta kynningu
og starfsþróunaráætlun fyrir
alla starfsmenn embættanna til
að vinna með áfram. „Inni á síðu
Starfsmenntar er starfsmanna-
gátt fyrir embættin, þar sem
skráning á námskeið fer fram.
Árinu er skipt í haust- og vorönn
og eru námskeiðin skipulögð í
samræmi við áherslur starfsþró-
unaráætlunar með ráðgjöfum
Starfsmenntar. Við höfum lokið
fyrstu önninni sem fjallaði um
rafræn samskipti. Í gegnum
þetta höfum við haldið áfram að
hitta ráðgjafa Starfsmenntar og
vel er haldið utan um okkur.“
Hún segist óhikað geta mælt
með þjónustunni. „Þegar við
mynduðum teymið stóðum við
frammi fyrir því að gera nám-
skrá fyrir níu embætti, með
skrifstofur á 27 stöðum um land
allt. Það er erfitt að móta frá
grunni fræðslustefnu og náms-
skrá sem nær utan um heildina.
Starfsmennt sá um framkvæmd
gagnasöfnunar og úrvinnslu
þannig að sýslumenn fengu tól
í hendurnar sem strax var hægt
að vinna með. Virkilega farsælt
samstarf sem við höfum átt við
Starfsmennt sem við komum til
með að byggja á til framtíðar.“
Bjarney Inga Sigurðardóttir er
ábyrgðaraðila fræðslumála hjá
Sýslumönnum.
Starfsmennt styður við
færniþróun opinbers starfs-
fólks svo það sé betur í stakk
búið til að takast á við fjöl-
breytt verkefni og breyting-
ar í starfsumhverfi.
Fræðslusetrið Starfsmennt býður
stofnunum upp á þjónustu
leiðina Ráðgjafi að láni, en henni
er ætlað að greina hæfnikröfur
starfa og fræðsluþarfir, styðja
við uppsetningu starfsþróunar
áætlunar og framkvæmd hennar
innan stofnana, segir Berglind
Sunna Bragadóttir, verkefnastjóri
kynningarmála hjá Starfsmennt.
„Þjónustan felur í sér að stofnanir
fá til sín sérfræðinga „að láni“ í
afmarkaðan tíma til að sinna
tilteknum verkefnum. Í f lestum
tilfellum felur þjónustan í sér
greiningu á hæfnikröfum starfa og
fræðsluþarfa sem nýtist sem inn
legg í uppsetningu starfsþróunar
áætlunar. Vinnan felur einnig í
sér að koma framkvæmd fræðslu í
gang og sinna eftirfylgni.“
Hún segir mikilvægt að fræðsla
innan stofnana sé að svara raun
verulegri þörf og sé í samræmi
við hæfnigreiningar, markmið
stofnana og stefnu. „Afurðir úr
verkefnum Ráðgjafa að láni geta
varpað skýrara ljósi á þessar þarfir
og aðstoðað stofnanir að ná utan
um fræðslumálin í heild sinni.“
Greiningarferlið í tengslum við
starfsþróunaráætlanir og hæfni
greiningar getur verið tímafrekt og
því getur verið gott fyrir stofnanir
að fá inn auka mannskap tíma
bundið til að sinna þeirri vinnu.
Traust samstarf
Starfsmennt er samstarf fjár
mála og efnahagsráðuneytisins
og flestra stéttarfélaga í BSRB um
starfstengt nám, starfsþróun og
ráðgjöf á sviði mannauðseflingar.
Í ársbyrjun 2022 gerðist Reykja
víkurborg aðili að Starfsmennt
vegna starfsmanna sem eru félags
menn í Sameyki. „Við styðjum við
færniþróun opinbers starfsfólks
svo það sé betur í stakk búið til að
takast á við fjölbreytt verkefni og
breytingar í starfsumhverfi.“
Þannig getur þjónusta Ráðgjafa
að láni komið stofnunum að gagni
sem vantar skýrari mynd af hæfni
kröfum starfa eða fræðsluþörfum
stofnunarinnar og starfsfólksins.
„Ráðgjafar okkar aðstoða einnig
stofnanir við að setja upp starfs
þróunaráætlun.“
Vilja vera leiðandi
Hún segir Starfsmennt miða að því
að vera leiðandi starfsmenntar
og ráðgjafarmiðstöð sem og
eftirsóknarverður samstarfsaðili
opinberra stofnana í viðleitni
sinni til að efla fagmennsku og
færni í starfi ásamt því að stuðla
að uppbyggilegu og hvetjandi
vinnuumhverfi. „Nám og ráðgjöf
er stofnunum og starfsmönnum
ríkisins að kostnaðarlausu ef um er
að ræða félagsfólk í aðildarfélögum
fræðslusetursins. Gerðir hafa verið
samstarfssamningar við aðra ýmsa
aðra fræðslu og starfsmenntar
sjóði til að fleiri hópar geti nýtt
þjónustuna.“
Mikil ánægja með þjónustuna
Berglind segir reynslu þeirra
stofnana sem hafi nýtt sér
þjónustuna vera góða. „Stofnanir
fá betri yfirsýn yfir fræðslumálin
og aðstoð við að koma fræðslu
starfi af stað eða í farveg. Greining
á fræðsluþörfum starfsfólks sem
stuðlað getur að betri líðan í starfi
og öruggari vinnubrögðum sem
eru í takt við tímann. Stefnu
miðuð starfsþróunaráætlun sem
er reglulega endurskoðuð hjálpar
stofnunum og starfsfólki þeirra að
takast á við örar breytingar, staf
rænar kröfur og krefjandi þjón
ustuhlutverk.“
Kynna og móta nýjar aðferðir
Að sögn Berglindar er hvert
verkefni einstakt og er starfsfólk
Starfsmenntar alltaf að leita leiða
til að bæta þjónustuna til að hjálpa
stofnunum að ná betri árangri.
„Ein af áherslum fjármála og efna
hagsráðuneytisins fyrir árið 2023
er að efla opinberar stofnanir sem
góða vinnustaði og styrkja hæfni
þeirra til að veita góða þjónustu.“
Í því skyni er mælst til að stofn
anir útbúi starfsþróunaráætlun
sem skapar umgjörð fyrir mark
vissa og stefnumiðaða starfsþróun
sem hefur það meginmarkmið
að starfsfólk vaxi og þróist í starfi
að sögn Berglindar. „Tilgangur
hennar er ekki endilega að starfs
fólk skipti um starfsvettvang eða
breyti verkefnum heldur snýst
hún fyrst og fremst um að kynnast
og móta nýjar aðferðir til þess að
sinna núverandi starfi og verk
efnum í síbreytilegu umhverfi.
Vel skipulögð starfsþróun hefur
áhrif á árangur og ánægju í starfi
og dregur úr líkum á kulnun eða
brotthvarfi úr starfi.“
Þarf að vera stöðug þróun
Og starfsþróun er ekki aðeins
starfsfólkinu í hag heldur stofnun
inni líka bætir Berglind við. „Stofn
anir eru þekkingarvinnustaðir og
sem slíkir aðeins eins sterkar og
mannauðurinn sem þær búa yfir.
Þær þurfa að vera í stöðugri þróun
og hafa skýra framtíðarsýn varð
andi markmið og hlutverk hvers
og eins innan stofnunarinnar.
Því bera stjórnendur og starfsfólk
bæði ábyrgð á starfsþróun og geta
bæði haft frumkvæði að henni.
Okkur hlakkar til að takast á við
þetta verkefni með stofnunum og
styðja þær við að efla fræðsluum
hverfið sitt.“ n
Metnaðarfull
starfsþróun er
allra hagur
Fremst á myndinni f.v. eru Helga Rún Runólfsdóttir mannauðsráðgjafi og Ingibjörg Hanna Björnsdóttir náms- og
starfsráðgjafi. Á bak við þær er Sólborg Alda Pétursdóttir náms- og starfsráðgjafi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Athyglisverð tölfræði:
n Árið 2022 hlutu 10 stofnanir
aðstoð Ráðgjafa að láni.
n Kennslumat síðustu
fjögurra ára sýnir að 92%
þátttakenda voru mjög
eða frekar ánægð með þau
námskeið sem þau sóttu
hjá Starfsmennt.
n Haldin voru 340 námskeið
á árinu 2022 sem 3.955 ein-
staklingar sóttu.
Við styðjum við
færniþróun opin-
bers starfsfólks svo það
sé betur í stakk búið til
að takast á við fjölbreytt
verkefni og breytingar í
starfsumhverfi.
Berglind Sunna Bragadóttir
kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 13. janúar 2023 skólar og náMskeið