Fréttablaðið - 13.01.2023, Side 18
Mamma
og Pabbi
ásamt
tengda
foreldrum
mínum og
fullt af
vinum
gætu verið
að frétta
það í fyrsta
sinn að ég
sé í þessu
námi.
Þorkell Gunnar
Guðmundur
Hilmarsson
gummih
@frettabladid.is
Þorkell Gunnar Sigurbjörns-
son, íþróttafréttamaðurinn
góðkunni á RÚV, hefur
undanfarin ár stundað
sagnfræðinám við Háskóla
Íslands samhliða starfinu
og stefnir á að klára nám
sitt á þessu ári þegar hann
skilar inn BA-ritgerð.
„Það eru að verða þrjú ár síðan ég
byrjaði í þessu námi. Þegar Covid
var nýlega byrjað vorið 2020 var
ég á leið í þriggja mánaða leyfi í
vinnunni. Á meðan ég var í þessu
leyfi var ég samt að klára að
undirbúa Ólympíuþætti sem við
á RÚV vorum með sumarið 2020.
Þetta voru ólympíukvöld þar
sem söguupprifjanir af gömlum
Ólympíuleikum voru á dagskrá og
komu í staðinn fyrir Ólympíuleik-
ana sem áttu að vera sumarið 2020
en var frestað vegna heimsfarald-
ursins,“ segir Þorkell og bætir við:
„Ég var í heilmikilli bakvinnu
og undirbúningsvinnu fyrir þessa
þætti og ég segi við konuna mína:
„Það er synd að maður geti nú ekki
bara kallað sig sagnfræðing fyrst
maður er er grúska í þessu dóti.“
Í kjölfarið sagði konan við mig:
„Af hverju skráir þú þig ekki bara
í sagnfræði?“ Mér fannst það nú
ekki alveg málið að fara að skrá
mig í háskólanám, verandi í rúm-
lega fullri vinnu og með tvö börn.
En ég ákvað að prófa og líka að í
ljósi þess að á meðan Covid væri í
gangi þá væri svo mikil fjarkennsla
sem gæti hentað mér vel. Svo
byrjaði ég bara á fullu og kláraði
fyrstu önnina í fullu námi og er
núna kominn á síðustu önn og á
bara eftir BA-ritgerð. Þetta hefur
farið vel saman með vaktavinn-
unni,“ segir Þorkell í símaviðtali
frá Kristianstad í Svíþjóð en þar er
hann á vaktinni fyrir íþróttadeild
RÚV að fylgjast með heimsmeist-
aramóti karla í handbolta.
Spurður hvort sagnfræði hafi
verið ofarlega í huga hans segir
hann:
„Ég byrjaði í sagnfræði strax
eftir stúdentsprófið en ég f losnaði
upp úr náminu eftir fyrstu önn-
ina. Ég var með einhvern skóla-
leiða og þetta var öðruvísi en ég
hélt. Ég hélt að ég væri að fá að
fara inn í einhverja menntaskóla-
sögu og gæti lagt á minnið einhver
ártöl og staðreyndir, sem það er
alls ekki. Þetta er miklu meiri
greining. Ég gafst upp á þessu og
tók eitt ár í stjórnmálafræði upp
úr tvítugu en hætti í því þegar ég
var fastráðinn hjá RÚV. Þegar ég
byrjaði svo aftur í sagnfræðinám-
inu sagði ég nánast engum frá því
þar sem ég hafði tvisvar sinnum
flosnað upp úr háskólanámi og
vildi ekki hafa þá pressu að aug-
lýsa það út um allt ef þetta myndi
ekki ganga upp. Mamma og pabbi
ásamt tengdaforeldrum mínum
og fullt af vinum gætu verið að
frétta það í fyrsta sinn að ég sé í
þessu námi þegar þau lesa þetta
viðtal. Afsaka það,“ segir Þorkell.
Ritgerðin íþróttalegs eðlis
Hefur námið verið skemmtilegt?
„Ég hef haft mjög gaman af
þessu en ég viðurkenni það alveg
að þetta getur verið krefjandi
með fullri vinnu og fjölskyldu.
Það má alveg segja að starf eins
og íþróttafréttamaður er oft á
tíðum hálfgerð sagnfræði og ég
hugsaði með mér að ég gæti alveg
náð að þræða mig í gegnum þetta
og ágætt að vera formlega með
sagnfræði gráðu ofan í allt annað.
Ég er að byrja að leggja drög að
BA-ritgerðinni og hún verður
íþróttalegs eðlis. Ég ætla að reyna
að nýta sérfræðiþekkinguna þar
líka,“ segir Þorkell, sem vonast til
að útskrifast úr náminu í júní eftir
að hafa verið í fullu námi í þrjú ár.
Ef þú lítur til framtíðar, heldurðu
að þú eigir eftir að leggja sagn-
fræðina fyrir þig?
„Það er aldrei að vita. En jú,
eigum við ekki bara að segja
það hvort sem það verður tengt
áfram íþróttum og íþróttafrétta-
mennsku eða hvort það verður
á einhvern annan hátt. Það er
ómögulegt að segja til um,“ segir
Þorkell.
Spurður hvort eitthvað hafi
komið honum á óvart í náminu og
hann hafi vitað hvað hann væri
að fara út í segir hann: „Já og nei.
Það er eins og með allt. Það tekur
nokkrar vikur eða jafnvel mánuði
að átta sig á aðferðum, átta sig á
kennurum og átta sig á því hvað
er verið að fara fram á. En þetta er
mjög skemmtilegt og sérstaklega
upp á það að maður lærir betur að
setja hlutina í sögulegt samhengi
og þessir fræðilegu hlutir sem
maður var kannski ekki mikið
að hugsa eru áhugaverðir þegar
maður hellir sér inn í þá. Maður
þarf alveg að hafa fyrir hlutunum
í þessu námi en ef maður hefur
áhugann þá helst þetta allt í
hendur.“
Þriðja stelpan á leiðinni
Það er ekki hægt að sleppa Kela
án þess að spyrja hann út í HM
en Ísland lék sinn fyrsta leik gegn
Portúgal í gærkvöld og mætir Ung-
verjalandi á morgun.
„Auðvitað væri gaman að sjá
liðið spila um verðlaun en mér
finnst algjört lágmark að það
komist í átta liða úrslitin. Liðið er
gott, vel mannað og breiddin er
mikil,“ segir Þorkell, sem hefur um
margt annað að hugsa en HM. „Við
hjónin eigum von á okkar þriðju
stelpu um næstu mánaðamót svo
ég fer heim eftir riðlakeppnina.
Kannski nýti ég febrúar í fæðingar-
orlofinu til að skrifa ritgerðina.“ n
Sagði nánast engum frá þessu
Þorkell segir að sagnfræðinámið fari vel með vaktavinnunni en hann starfar sem íþróttafréttamaður á RÚV.
MYND/AÐSEND
Er námskeiðið þitt á Alfreð?
Skoðaðu úrval námskeiða um allt milli
himins og jarðar í appinu eða á vef Alfreðs
og finndu einmitt rétta námskeiðið fyrir þig.
Kíktu á námskeið á alfred.is
6 kynningarblað 13. janúar 2023 FÖSTUDAGURSkólar og námSkeið