Fréttablaðið - 13.01.2023, Blaðsíða 20
Ingibergur Þorkelsson hefur
vakið athygli fyrir full-
yrðingar um nytsemi og
lækningar í meðferðardá-
leiðslu og Hugrænni endur-
forritun. Hann segir engan
geta metið árangurinn
betur en meðferðarþegar.
Spurður að því hvort hann geti
sýnt fram á lækningar með
dáleiðslu segir Ingibergur að
í sálfræðimeðferðum og Hug
rænni endurforritun sé lagt mat á
árangur með því að spyrja með
ferðarþegann.
„Það er enginn annar sem getur
sagt þér hvort honum líður betur
eða telji sig læknaðan. Í upphafi
meðferðar er meðferðarþeginn
beðinn um mat á líðan sinni og
aftur í lok meðferðar,“ útskýrir
hann.
Lækning
Ingibergur segir að við getum
verið sammála um að ef einhver
fær lungnabólgu og læknast af
henni sé sá hinn sami læknaður.
En hvað þá með þunglyndi og
kvíða?
„Þegar fólki líður betur og finnst
það vera laust við þunglyndið
eða kvíðann, er það þá læknað?
Hvað ef þetta kemur nú aftur? Ég
hef miðað við að fólk sé læknað
ef einkennin hverfa í nokkur ár,“
segir hann.
Getur þú nefnt dæmi um fólk
sem hefur læknast í meðferðar
dáleiðslu og Hugrænni endurfor
ritun?
„Já, það get ég. Ef ég miða við að
minnsta kosti fjögur ár þá get ég
nefnt nokkur dæmi.“
Þunglyndi
Tíminn hjá klínískum dáleiðanda
er ekki 50 mínútur eins og er hjá
sumum meðferðaraðilum. Hann
er venjulega 120–190 mínútur.
Ingibergur segir að árið 2018
hafi hann fengið til meðferðar
karlmann sem þjáðist af djúpu
þunglyndi.
„Eftir eitt skipti upplifði hann
sig læknaðan og losaði sig við
öll þunglyndislyf í samráði við
lækni. Hann kom fram í sjónvarpi
í haust, í þættinum Af brigði á Stöð
2 og lýsti reynslu sinni. Hann er
alveg laus við þunglyndið,“ segir
Ingibergur
Hvernig má það vera að þetta sé
hægt í einum meðferðartíma?
„Dáleiðendur vinna með
undirvitundinni. Þótt ástæðan
sé gleymd meðvitaða huganum
er hún geymd í undirvitundinni.
Það sem helst leiddi til bata þessa
manns var að hann fékk að vita
hvers vegna hann var þunglyndur.
Það var nóg. Hann er læknaður.“
Hvers vegna fólk læknast af sjúkdómum í
meðferðardáleiðslu og Hugrænni endurforritun
Ingibergur getur
nefnt nokkur
dæmi um sjúk-
dóma sem með-
ferðarþegar
hafa læknast af
eftir dáleiðslu.
Astmi
Ingibergur segir marga reka upp
stór augu þegar talað er um að
lækna astma með meðferðar
dáleiðslu.
„Staðreyndin er sú að ef lungun
og berkjurnar eru óskemmdar er
ástæða astma samdráttur sléttu
vöðvanna. Þeim er svo stjórnað
af undirvitundinni. Fyrir rúmum
fjórum árum kom til mín kona
sem hafði mikinn astma. Hún
átti erfitt með að vera úti þegar
hreyfði vind og henni leið mjög
illa. Henni þótti gaman að hjóla
en gat það sjaldnast. Eftir eitt
skipti í hugrænni endurforritun
upplifði hún sig læknaða. Þegar
ég spurði hana nýlega hvernig
gengi kom hún af fjöllum. Hún var
búin að gleyma að hún hafði haft
astma. Það rifjaðist upp þegar ég
spurði hana hvernig gengi með
astmann,“ segir Ingibergur.
Aðspurður hvernig þetta hafi
verið hægt svarar Ingibergur:
„Við fórum aftur í tímann
í dáleiðsluástandi þar til við
fundum engan astma. Og svo hægt
og rólega áfram að fyrsta skiptinu
sem hún fékk astmakast. Hún var
mjög ung og var á sumardvalar
heimili. Hún datt í vatnið og bar
sig illa, átti erfitt með að anda.
Starfsfólkið var mjög gott við
hana, hlúði að henni og gaf henni
kakó. Þarna lærði undirvitundin
að ef hún átti erfitt með að anda
voru allir góðir við hana. Ómeð
vitað notaði hún svo astmann
þegar hún þurfti umhyggju. Sem
fullorðin kona hafði hún ekki
hugmynd um ástæður astmans
en þegar hún fékk þessar upp
lýsingar frá undirvitundinni, við
ræddum líka við persónuþættina
og afgreiddum málið þannig að
astminn hvarf, þá læknaðist hún.“
Hvaða aðra sjúkdóma hefur þú
læknað?
„Miðað við fjögurra ára regluna
sem ég setti mér, get ég nefnt
Ég held það sé fátt
sem ekki er hægt
að bæta með þessari
meðferð. Kvíði er eitt af
því og þar hefur náðst
mjög góður árangur.
Ingibergur Þorkelsson
Eftir eitt skipti
upplifði hann sig
læknaðan og losaði sig
við öll þunglyndislyf í
samráði við lækni.
Ingibergur Þorkelsson
Næsta grunnnámskeið hefst 10. febrúar 2023
Næsta framhaldsnámskeið hefst 14. apríl 2023
d áleiðsla.is
ofnæmi, bæði kattaofnæmi og
frjóofnæmi. Kona sem leitaði
til mín átti kött en hafði hann í
þvottahúsinu þar sem hún var
með ofnæmi fyrir honum. Henni
fannst þetta óskaplega leiðinlegt.
Hún býr úti á landi og er mikið í
kringum hesta, hey og f leira. Til
þess að geta lifað með þessu tók
hún fimm tegundir af ofnæmis
lyfjum,“ svarar Ingibergur.
„Konan kom til mín í tvö skipti
og kattaofnæmið hvarf alveg
og hefur ekki komið aftur. Hún
er læknuð af því. Frjóofnæmið
minnkaði mjög mikið og núna
þarf hún aðeins að taka eina
tegund af ofnæmislyfi og þá rétt
yfir mesta frjótímann á sumrin.“
Hugræn endurforritun
Þér verður tíðrætt um Hugræna
endurforritun. Hvað er það?
„Á undanförnum tólf árum hef
ég unnið við meðferðir og notað
ýmsar meðferðir. Ég valdi svo
öflugustu meðferðirnar og samdi
nýja meðferð byggða á þeim
grunni auk nýjustu taugarann
sókna. Ég held að það sé fátt sem
er ekki hægt að bæta með þessari
meðferð. Kvíði er eitt af því og þar
hefur náðst mjög góður árangur,“
útskýrir Ingibergur.
„Þessi meðferð er meðferð
framtíðarinnar, miklu frekar
en hugvíkkandi efni sem allir
virðast vera að tala um. Hug
víkkandi efni opna aðgang að
undirvitundinni en það er erfitt
að stjórna meðferðinni. Hug
ræn endurforritun vinnur með
undirvitundina í samvinnu við
meðferðarþegann.“ n
Hugræn endurforritun er ný meðferð sem vinnur með undirmeðvitundina.
8 kynningarblað 13. janúar 2023 FÖSTUDAGURSKÓLAR OG NÁMSKEIÐ