Fréttablaðið - 13.01.2023, Qupperneq 23
Fyrirtækjum og einstakling-
um býðst úrval námskeiða,
markþjálfun og ráðgjöf hjá
ráðgjafarfyrirtækinu Vali og
virði.
Í boði eru vinnustofur, námskeið
og fleira. Næsta námskeið, sem er
fjármálanámskeiðið „Viltu meiri
peninga – betri fjármál“ fyrir ein-
staklinga verður haldið 23. þessa
mánaðar.
Þóra Valný Yngvadóttir er
stofnandi og eigandi Vals og
virðis. Hún starfar sem fyrirlesari,
ráðgjafi og markþjálfi og hefur
yfir 20 ára reynslu af fjármála-
ráðgjöf, vöruþróun, innleiðingu,
breytingastjórnun, tímastjórnun,
verkefnastjórnun, markþjálfun,
námskeiðum og fyrirlestrum í fjár-
málageiranum, Opna háskólanum
og víðar.
„Ég er búin að vinna í fjármála-
geiranum í 25 ár og hef verið að
vinna sem stjórnandi, bæði í
Kaupþingi og Landsbankanum.
Ég fór fljótlega að halda námskeið
og sá strax að það lá vel fyrir mér.
Ég ákvað fyrir þremur árum síðan
að einblína á að vera með nám-
skeið,“ segir Þóra Valný, sem er
viðskiptafræðingur og markþjálfi.
Einstaklingar og fyrirtæki nýta sér
þjónustu Vals og virðis. „Ég held
fjármálanámskeið sem fyrirtæki
geta keypt fyrir sitt fólk og svo er
ég líka með opin námskeið þar sem
hver og einn getur skráð sig.“
Covid setti eðlilega strik í reikn-
inginn hjá Þóru Valnýju en eftir að
faraldrinum lauk hafa umsvifin
aukist.
„Covid gerði það að verkum að ég
gat ekki farið inn í fyrirtæki og þá
var ég töluvert með fjarnámskeið
fyrir fyrirtæki og einstaklinga í
fjármálum og einnig fjarmarkþjálf-
un. Eftir að Covid kláraðist síðast-
liðið haust þá hefur eftirspurn
fyrirtækja eftir námskeiðum,
vinnustofum og fyrirlestrum inn í
fyrirtækin aukist,“ segir Þóra Valný.
Hún segist leggja áherslu á í nám-
skeiðunum að lesa ekki yfir fólki
heldur sækist hún eftir þátttöku
fólks.
„Ég vil fá fólk til að finna með
mér hvaða leið er best til að vinna
breytingarnar. Þetta snýst alltaf um
breytingar og að fara úr einhverju
núverandi ástandi í eitthvert annað
ástand. Þá þarf fólkið sem á að
framkvæma breytingarnar að vera
með í því, annars gerist ekki neitt.“
Fólk taki ábyrgð
á eigin fjármálum
Á fjármálanámskeiðinu segist Þóra
Valný leggja áherslu á að fólk eignist
meiri peninga. „Ég vil að fólk nýti
peningana sína betur. Alveg eins
og við notum 1–5 klukkustundir á
viku til að hreyfa okkur, til að hugsa
um líkamlegt heilbrigði, af hverju
ættum við þá ekki að nota einhvern
tíma í hverri viku til að skoða fjár-
málin? Einfaldasti hluturinn til að
laga er til dæmis matarinnkaupin.
Það er enn þá fólk sem fer í matar-
innkaup mörgum sinnum í viku
og er að hugsa frá degi til dags hvað
eigi að vera í matinn. Þarna er fólk
bæði að fara illa með peningana og
ekki síst tímann. Þegar vinnudegi
er lokið gæti tekið við gæðatími
með börnunum og fjölskyldunni
en í staðinn er verið að reyta hár sitt
í búðinni og reyna að ákveða hvað
eigi að vera í matinn.
Á námskeiðinu er verið að leggja
áherslu á að fólk taki ábyrgð á
sínum eigin fjármálum. Það sem
fólk á að fá á námskeiðinu er næg
þekking til að geta valið sjálft
fyrir sig í framtíðinni. Þannig að
þegar þú ert að taka ákvörðun um
peningana þína þá ertu með nægar
upplýsingar til að geta tekið upp-
lýsta ákvörðun,“ segir Þóra Valný og
bætir við:
„Það sem ég verð oft vör við
þegar fólk kemur til mín í fjármála-
ráðgjöf er að það er oft með mikinn
vanmátt gagnvart peningum. Það
leiðir af sér flótta og frestun og fólk
forðast að skoða hlutina. Undan-
tekningarlaust þegar ég vinn með
fólki í að taka á fjármálum sínum
þá segir það: „Þetta var miklu auð-
veldara og miklu minna mál heldur
en ég hélt.“ Þú þarft alltaf að vera
vakandi yfir þessu því sú tilfinning
að manni líði eins og maður vinni
myrkranna á milli og allt fuðrar
upp í loftið er rosalega slæm. Hún
er það slæm að hún fer í sjálfsmeð-
vitundina og leiðir af sér slæma
sjálfsmynd. Slæm sjálfsmynd leiðir
af sér niðurrif og niðurrifið leiðir
af sér verri líðan og vítahringur fer
í gang sem gerir það mjög erfitt að
byggja sig upp.“
Hugsa um fjármálin
eins og heilsuna
Þóra segir að eftir fjármálanám-
skeiðin sé fólk komið með þau
verkfæri sem það þarf til að hugsa
vel um fjármálin sín. „Fjármálin á
maður að hugsa um eins og heilsu
sína enda er oft talað um fjárhags-
lega heilsu. Markmiðið í minni
fjármálaráðgjöf er alltaf að fá fólk
til að sjá sjálft hvað það þarf að
gera. Þess vegna er þetta meira
fjármálamarkþjálfun heldur en
fjármálaráðgjöf.
Fólk óttast að fara í fjármála-
ráðgjöf því oft er það fyrsta sem
fjármálaráðgjafar segja er að hætta
með áskriftina að uppáhaldssjón-
varpsstöðinni þinni og hætta hinu
og þessu sem fólki finnst skemmti-
legt. Það er alls ekki málið. Það
fyrsta sem ég segi við fólk er að
byrja að spara í skemmtisjóð. Það
má og á að vera gaman. Þetta snýst
um að nota meira af peningunum í
það sem er skemmtilegt og minna
í það sem er leiðinlegt. Það sem er
langleiðinlegast að nota peninginn
í er að greiða vexti og kostnað. Ég
fer ítarlega í það á námskeiðinu
hvernig fólk getur forðast að nota
peningana í slíkt og í staðinn notað
þá í eitthvað skemmtilegt,“ segir
Þóra Valný.
Námskeið fyrir fyrirtæki
Þóra býður fyrirtækjum og stofn-
unum vinnustofu til að bæta tíma-
stjórnun með það að markmiði að
stytta vinnuvikuna.
„Það er mikið í umræðunni að
við þurfum að vinna minna og við
viljum stytta vinnutímann. Þetta
er á oddinum í öllum kjaravið-
ræðum en til að þetta sé gerlegt
þá þurfum við að skoða í hvað
við erum að nota vinnudaginn og
spyrja okkur þeirrar spurningar:
Getum við nýtt tímann betur? Þá
erum við ekki að tala um að hlaupa
hraðar eða auka álagið heldur
þvert á móti. Þetta verður aðeins
gert með samheldnu skipulagi
innan deildarinnar. Ég hef mikla
reynslu í að kenna tímastjórnun.
Ég hef kennt hana til fjölda ára og
það sem ég rak mig á er að það kom
einhver einn úr deildinni. Hann
sá ljósið og vildi gera alls konar
breytingar en hinir úr deildinni
komu ekki á námskeiðið og þá
virkaði það ekki.
Núna set ég þetta þannig upp
sem námskeið fyrir fyrirtæki til
að taka deildina sameiginlega í.
Þá vinnur hún að því saman og
sér hvar er hægt að spara tíma og
hvernig hægt er að gera hlutina
skilvirkar, þannig að allir geti verið
samstíga í því að ná þeim árangri
sem að er stefnt.“
Stytta sölutímann og auka sölu
Sölunámskeiðið hefur gefist gríðar-
lega vel fyrir fyrirtæki sem vilja
auka söluna, stytta sölutímann og
auka ánægju viðskiptavina. Þóra
segir að sölunámskeiðið nýtist best
þegar fyrirtækið tekur það fyrir
alla framlínustarfsmennina.
„Námskeiðið er sérsniðið að því
fyrirtæki sem um ræðir. Það sem
við erum að skoða á þessu nám-
skeiði er að stytta sölutímann og
auka sölu. Það hljómar auðvitað
eins og tónlist í eyrum allra sölu-
stjóra. Það sem við horfum á er
að gera vinnuna aðeins flóknari
með því að áherslan er á að spyrja
spurninga áður en farið er í að
kynna vöruna. Þannig er sölu-
ráðgjafinn að taka sér tíma til að
þarfagreina og hjálpa viðskipta-
vininum að sjá hvað það er sem
skiptir hann mestu máli í því sem
hann er að leita að,“ segir Þóra
Valný.
„Það er mikilvægt að framlínu-
hópurinn geri þetta saman og
ég leiði hópinn í gegnum það að
finna út hvaða spurningatækni
henti fyrir þeirra kúnnahóp og
þeirra tegundir af vörum. Síðan er
kynningin á vörunni sniðin eftir
því hvað viðskiptavinurinn hefur
áhuga á og verður þannig miklu
hnitmiðaðri og árangursríkari.
Með þessari aðferð er hægt að
stytta úr allt að 15 mínútna niður
í 5 mínútna söluferli og fá tvisvar
sinnum meiri árangur. Þetta er
viðskiptavinamiðuð sölutækni,“
segir Þóra Valný. n
Sjá upplýsingar um þjónustu Vals
og virðis á vefsíðunni: valogvirdi.is
Vil að fólk nýti peningana og tímann betur
Þóra segist leggja áherslu á í námskeiðunum að lesa ekki yfir fólki heldur sækist hún eftir þátttöku fólks. Mynd/silla páls
• Meiri peninga – betri fjármál
• Styttri vinnuvika – tímastjórnun
• Meiri sala og styttri sölutími – söluþjálfun
Ég vil fá fólk til að
finna með mér
hvaða leið er best til að
vinna breytingarnar.
Þetta snýst alltaf um
breytingarnar og að fara
úr einhverju núverandi
ástandi í eitthvert annað
ástand.
Þóra Valný Yngvadóttir
Viltu meiri peninga
námskeiðið hefst 23. janúar.
20% snemmaskráningar afsláttur til 18. janúar
Upplýsingar og skráning á valogvirdi.is
eða í síma 8928510
kynningarblað 11FÖSTUDAGUR 13. janúar 2023 skólar og námskeið