Fréttablaðið - 13.01.2023, Side 26
Áherslan er ekki á
að kenna öllum
sömu aðferð heldur að
allir nemendur öðlist
skilning á því hvernig
komast má að réttri
niðurstöðu, stundum
með mismunandi
aðferðum.
Finnar hafa löngum staðið
sig einstaklega vel í sam-
ræmdum erlendum náms-
könnunum líkt og hinni
vel þekktu PISA-könnun.
Finnum er þó að mestu leyti
sama um það.
brynhildur@frettabladid.is
Áherslan í finnsku menntakerfi
er ekki á samkeppni heldur að
útskrifa hamingjusama samfélags-
þegna í góðu jafnvægi sem ná að
þroska hæfileika sína og blómstra í
lífi og starfi.
Margar þjóðir líta með forvitni
til Finnlands og velta fyrir sér hvað
þeir séu að gera rétt. Hér á eftir
fylgir ófullkomin greining á því.
Engin stöðluð próf
Flestöll menntakerfi í heimi reiða
sig á stöðluð próf til að mæla þekk-
ingu nemenda. Nema það finnska.
Stöðluð próf leiða oft til þess að
kennarar miða allt nám við þessi
próf og nemendur læra utanbókar
einhverjar staðreyndir eða aðferðir
sem þeir tengja kannski ekki við
og gleyma um leið og út úr prófinu
er komið. Finnskir grunnskóla-
nemar fá einstaklingsmiðaðar
einkunnir sem kennarinn þeirra
ákvarðar. Alhliða framfarir eru
metnar af menntamálayfirvöld-
um. Áherslan er ekki á að kenna
öllum sömu aðferð heldur að allir
nemendur öðlist skilning á því
hvernig komast má að réttri niður-
stöðu, stundum með mismunandi
aðferðum.
Virðing fyrir kennurum
Allir kennarar hafa meistaragráðu
í kennslufræði. Kennarastarfið er
mjög eftirsótt og yfirleitt komast
aðeins 10% umsækjenda í námið.
Ekki er valið í kennaranámið eftir
einkunnum heldur eftir reynslu
af starfi með börnum og áhuga á
starfinu.
Samkvæmt finnskum yfirvöld-
um er góður kennari manneskja
sem býr yfir samkennd og getu til
að hlusta á og skilja hvað börnin
þurfa. Þannig ná aðeins færustu
kennararnir með sterkustu
köllunina inn í skólana.
Vinsældir kennarastarfsins
stafa ekki aðeins af háum launum
heldur eru kennarar einnig virtir í
samfélaginu og skólastofunni. Þeir
bera svo einnig ábyrgð gagnvart
nemendunum og skólanum og það
er undir skólastjórnendum komið
að meta getu kennarans. Samband
kennara og nemenda er lykilatriði
í kennslunni.
Samvinna í stað samkeppni
Í f lestum löndum er litið á skóla-
kerfið sem eina stóra samkeppni
þar sem hinn hæfasti ber sigur
úr býtum en þannig er það ekki í
Finnlandi heldur er áherslan lögð
á samvinnu milli nemenda og
kennara þar sem hver og einn fær
að njóta sinna hæfileika.
Grundvallaratriði mennt-
unar er talið vera hamingjusamur
nemandi sem nær að tileinka sér
námsefni á jákvæðan hátt.
Síðan 1980 hafa eftirfarandi
áherslur verið í forgrunni í finnsku
menntakerfi, menntun ætti að
nýta til að jafna út félagslegt órétt-
læti, allir nemendur fá ókeypis
máltíð í skólanum og aðgang að
heilsugæslu, áhersla á sálfræði-
þjónustu í skólanum og einstakl-
ingsbundin leiðsögn.
Skólaganga hefst síðar
Skólaganga hefst í Finnlandi við
sjö ára aldurinn og þangað til fá
börn að þroska sig í leik, friði og ró.
Skólaskyldan er síðan aðeins níu
ár í Finnlandi og lýkur á sextánda
ári barnsins. Frá sálfræðilegu
sjónarmiði er þetta góð ráðstöfun.
Ef börn hefja alvöru lífsins og stífa
skólagöngu of snemma er hætta
á að þau fari að upplifa skólann á
neikvæðan hátt og slíkri þróun er
erfitt að snúa við.
Rækta styrkleika sína
Í mörgum menntakerfum heims-
ins er áherslan fyrst og fremst á
bóklegt nám og þá helst á færni í
raungreinum á samkeppnisgrund-
velli í samfellu, það er að nauðsyn-
legt er að ná settum viðmiðum til
að geta haldið áfram í námi. Það
gerir það að verkum að nemendur
sem ekki finna sig í slíku upplifa sig
sem vanhæfa og að þeir eigi ekki
kost á sambærilegum tækifærum
og þeir nemendur sem auðvelt eiga
með bóknám.
Í Finnlandi er lögð áhersla á að
hjálpa einstaklingnum að þroska
sína styrkleika og fallið frá því
stigveldi að ein námsfærni sé betri
en önnur. Þar hefur það líka sýnt
sig að nemendur sem fá jákvæð
viðbrögð við því sem þeir eru góðir
í öðlast sjálfstraust til að standa sig
betur í öðrum námsgreinum.
Styttri skóladagur
Í Finnlandi hefst skóladagurinn á
milli 9 og 9.45 á morgnana þar sem
rannsóknir hafa sýnt að það að
hefja skóladaga of snemma stuðlar
ekki að og vinnur jafnvel gegn
námsárangri og þroska. Skóladeg-
inum lýkur svo milli tvö og þrjú
á daginn. Kennslustundirnar eru
færri og lengri en annars staðar og
frímínúturnar líka þar sem kerfið
miðar að því að skapa umhverfi til
heildrænnar upplifunar af náminu
frekar en að troða staðreyndum í
kolla nemenda.
Samfelld leiðsögn
Áhersla er lögð á að tengsl myndist
milli kennara og nemenda og hafa
nemendur oft sama kennarann í
sex ár. Þannig nær kennarinn að
kynnast nemendunum, mynda
jafnvel persónuleg tengsl og
verður því sérfræðingur í þörfum
og getu hvers nemanda fyrir sig.
Kennarinn og nemandinn hjálpast
að við að setja einstaklingsbundin
markmið fyrir nemandann og
fagna saman þegar þau markmið
nást. Þannig myndast gagnkvæmt
traust og virðing milli kennara og
nemanda sem skilar sér í bættu
andrúmslofti í skólastofunni og
betri árangri nemendanna.
Þá er áhersla lögð á að veita
þeim nemendum sem þurfa
mikinn stuðning og sérkennarar
nánast regla frekar en undan-
tekning. „Gerum það sem þarf“ er
slagorð kennaranna og ýtt er undir
samstarf þeirra á milli þannig að
ef einhver aðferð er ekki að virka
milli kennara og nemanda getur
annar kennari komið inn í sam-
talið. Kennaravinnustofur eru
víða í finnskum skólum, þar sem
kennarar geta slakað á, undir-
búið kennslu eða átt í félagslegum
samskiptum. Lögð er áhersla á að
hlúa að kennurunum svo þeir geti
hámarkað sitt framlag í kennslu-
stofunni.
Afslappaðra andrúmsloft
Minni streita, minna aðhald og
meiri alúð er lykilatriðið í finnsku
skólakerfi. Skólarnir eru minni og
nemendur færri en víða annars
staðar. Nemendur fara yfirleitt
bara í nokkrar kennslustundir á
dag og fá rúman tíma til að borða
nestið sitt, leika sér og slaka á.
Yfir daginn eru reglulega 15–20
mínútna frímínútur sem gagnast
bæði kennurum og nemendum.
Í stað stífrar stundaskrár og skil-
greindra kennsluleiða er unnið að
verkefnum sem sameina ýmis fög í
einu. Til dæmis ef vinna á verkefni
um Egyptaland er hægt að reikna
rúmmál pýramída, teikna myndir
af sfinxum, fjalla um málfræði
egypsku og arabísku og svo fram-
vegis.
Minni heimavinna
Samkvæmt Efnahags- og fram-
farastofnun Evrópu fá finnskir
nemendur minnstu heimavinnu
í heimi sem tekur aðeins hálf-
tíma að inna af hendi. Þeir fá
svigrúm til að klára vinnudaginn
í skólanum án þess þrýstings
sem kemur af því að þurfa að ná
af bragðsárangri í öllum náms-
greinum. Þegar ekki þarf að hafa
áhyggjur af einkunnum og heima-
vinnu geta finnskir nemendur
einbeitt sér að sínu raunverulega
skólaverkefni: Að læra og þroskast
sem manneskja. n
Í finnsku leiðinni er hugað að einstaklingnum
Finnsk börn
fá máltíð í
skólanum sér
að kostnaðar-
lausu dag hvern
og er það
liður í jöfnuðar-
stefnu finnskra
menntayfir-
valda.
Frettablaðið/
Getty
Leikur og frjáls
tími er lyk-
ilatriði í finnskri
menntastefnu
og hér má sjá
börn í Turku
bregða á leik
í frímínútum.
Frettablaðið/
Getty
14 kynningarblað 13. janúar 2023 FÖSTUDAGURskólar og námskeið