Fréttablaðið - 13.01.2023, Side 36
Sjónvarpsseríurnar
sem munu slá
í gegn 2023
Ef fólki fannst 2022 vera stórt
sjónvarpsár þá hefur það ekki
séð sjónvarpsþáttaraðirnar
sem væntanlegar eru 2023. Úr
því verður bætt hér en það má
með sanni segja að heimsfar-
aldur sé nú löngu gleymdur
og sjónvarpsþáttaframleiðsla
komin á fullt skrið. Hér eru
nokkrar seríur sem munu slá í
gegn á árinu.
odduraevar@frettabladid.is
The Last of Us Janúar
Allt bendir til þess að þau
Pedro Pascal og Bella Ramsey
muni slá í gegn í nýrri seríu frá
HBO sem byggir á samnefnd-
um PlayStation-tölvuleikjum
úr smiðju Naughty Dog. Þau
leika Joel og Ellie, sem lifðu
af hrikalegan sveppafaraldur
sem rústað hefur heiminum
eins og við þekkjum hann.
The Continental Mitt ár 2023
Sjónvarpsþáttaröð sem mun
gerast í sama heimi og at-
burðirnir í John Wick-kvikmynd-
unum. Hér er ungum Winston
Constinental, persónu úr mynd-
unum, fylgt eftir á áttunda ára-
tugnum. Sagan segir að Keanu
Reeves muni mæta til leiks.
Poker Face Janúar
Sami maður og færði okkur
Glass Onion, Rian Johnson,
ætlar að færa okkur þessa
glæpaþætti í tíu hlutum með
Natöshu Lyonne í aðalhlut-
verki. Natasha leikur týpu
í ætt við Benoit Blanc úr
Glass Onion og þarf að leysa
alls kyns glæpi en þetta eru
fyrstu þættirnir sem Johnson
gerir.
Wolf Pack Janúar
Sarah Michelle Gellar mætir
aftur á sjónvarpsskjáinn
eftir töluvert hlé. Hún fer með
hlutverk Kristin Ramsay, konu
sem rannsakar upptök dular-
fulls elds þar sem undarleg
vera úr öðrum heimi fer á stjá.
Shrinking Janúar
Jason Segel fer með aðalhlutverkið í þessari
sjónvarpsþáttaröð frá þeim sömu og færðu
okkur Ted Lasso á Apple TV+. Segel leikur sorg-
mæddan sálfræðing sem ákveður að brjóta regl-
urnar gagnvart skjólstæðingi sínum. Svo leikur
Harrison Ford líka í þessu.
The Mandalorian 3 Mars
Mandalórinn og Baby-Yoda mæta á Disney+ í
þriðja skiptið í mars. Hvað gera þeir núna og hvert
munu þeir fara í Star Wars-heimum? Kemur í ljós
eftir nokkra mánuði.
Succession 4 Vor
Líklega er fárra sjónvarpsþátta beðið með jafn
mikilli eftirvæntingu og fjórðu seríunnar frá HBO
um fjölmiðlakóngana í Roy-fjölskyldunni. Einir
af bestu þáttunum sem eru í boði um þessar
mundir.
Gen V Síðari hluta ársins
Aðdáendur The Boys ættu að fylgjast með þess-
ari seríu sem mun gerast í sama heimi og ofur-
hetjuþættirnir vinsælu á Amazon Prime. Hér er
nokkrum ungum ofurhetjum í heimavistarskóla
fylgt eftir sem þurfa að fóta sig í blóðugum en oft
á tíðum drepfyndnum ofurhetjuheimi The Boys.
Secret Invasion Síðari hluta ársins
Marvel-aðdáendur fá nóg fyrir sinn snúð í sjón-
varpsþáttageiranum á árinu. Secret Invasion er
ein af þessum seríum en Samuel L. Jackson sem
Nick Fury þarf að taka á hinum stóra sínum gegn
furðulegri innrás Krull-geimverutegundarinnar.
Svo leikur Emilia Clarke úr Game of Thrones líka
í þáttunum.
The Idol Síðari hluta ársins
Höfundar Euphoria-þáttanna og tónlistar-
maðurinn The Weeknd stilla saman strengi sína í
þessum þáttum frá HBO sem munu fjalla um tón-
listarkonuna Jocelyn sem hrynur niður vinsælda-
lista. Í kjölfarið gengur hún til liðs við költ.
16 Lífið 13. janúar 2023 FÖSTUDAGURFréttablaðiðLíFið Fréttablaðið 13. janúar 2023 FÖSTUDAGUR