Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Side 7

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Side 7
5 1. INNGANGUR1 Eignarrétturinn er lýstur friðhelgur í 72. gr. stjórnarskrárinnar. Fyrsta málsgrein ákvæðisins er tvískipt. Annars vegar er því lýst yfir í fyrsta málslið að eignarrétturinn sé friðhelgur. Um þýðingu þess ákvæðis fyrir stjórnskipulega eignarréttarvernd hefur mikið verið fjallað en kemur ekki til frekari skoðunar hér.2 Hins vegar eru eignarskerðingum settar sérstakar skorður í öðrum málslið og það vald sem ella myndi leiða af 2. gr. stjórnarskrárinnar takmarkað. Í 2. málslið ákvæðisins er mælt fyrir um að engan megi skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þurfi til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir. Þessi þríþætti varnargarður endurspeglar um leið þær kröfur sem uppfylla verður telji stjórnvöld almenningsþörf knýja á um að tilteknar eignarskerðingar eigi sér stað. Stjórnarskrárfyrirmælin marka þannig skilyrði eignarnáms í þrengri merkingu að lögum. Skipta má eignarnámsferlinu í þrjú skref. Þannig er fyrsta skrefið aðdragandi að töku ákvörðunar um eignarnám og eiginleg ákvarðana- taka. Liggi slík ákvörðun fyrir er til staðar heimild til eignarnáms og ber þá næst að ákveða bætur til eignarnámsþola. Slíkt fellur í hlut matsnefndar eignarnámsbóta á grundvelli fyrirmæla í lögum nr. 11/1973 um framkvæmd eignarnáms. Að svo búnu þarf að framkvæma eignarnám eftir atvikum með umráðatöku og má finna vissa leiðsögn um hana í fyrrgreindum lögum. Það er þó ekki svo að eignarnámsferlið fari ætíð fram í þessari röð, enda eru þessir þrír þættir oftar en ekki samofnir. Sem dæmi má nefna að samningsumleitan um eignarnámið sem slíkt og um fjárhæð bóta þurfa oftar en ekki að haldast í hendur. Þess utan flækir það þessa einföldu mynd að ýmsar framkvæmdir sem leiða til eignarnáms eru þess eðlis að þörf er á umhverfismati og leyfum af ýmsum toga. Með þessari grein er ekki ætlunin að fjalla um eignarnáms ferlið í heild sinni.3 Sjónum verður beint að eignarnámsákvörð uninni sjálfri, aðdraganda hennar og þeim skilyrðum sem þurfa að vera uppfyllt svo unnt sé að taka slíka ákvörðun. Kröfur dómstóla til efnislegs mats þeirra stjórnvalda, sem fara með ákvörðunarvald um eignarnám, hafa skýrst frekar á 1 Höfundar taka fram að í greininni er m.a. fjallað um dómsmál sem þau hafa komið að sem lögmenn og dómari. Af þeirra hálfu er þess kappkostað að sú aðkoma hafi engin áhrif á þá fræðilegu nálgun sem viðhöfð var við samningu greinarinnar. 2 Sjá t.d. Björg Thorarensen: Stjórnskipunarréttur. Mannréttindi. Reykjavík 2008, bls. 446- 447 og Ólafur Jóhannesson: Stjórnskipun Íslands. Reykjavík 1978, bls. 439. 3 Í greininni verður ekki fjallað um framkvæmd eignarnáms eða ákvörðun bóta, nema að því marki sem nauðsynlegt telst til skýringa og samhengisins vegna. Ætlun höfunda er að skrifa aðrar greinar um þau viðfangsefni.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.