Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Side 18

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Side 18
16 þess að fá hana skyldaða til að selja eignarhlut sinn. Fallist var á með húsfélaginu að konan hefði brotið gróflega og ítrekað gegn eigendum annarra eignarhluta í húsinu með því að virða ekki skyldur sínar samkvæmt fjöleignarhúsalögum. Um þá málsástæðu konunnar að með söluskyldunni væri brotið gegn friðhelgi eignarréttar hennar, sbr. 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar, segir svo í forsendum Hæstaréttar: „Um þessa málsástæðu er að því að gæta að samkvæmt 2. og 3. málslið sama ákvæðis getur friðhelgi eignarréttar sætt þeirri takmörkun að skylda megi mann eða lögaðila til að láta af hendi eign sína ef almenningsþörf krefji, en til þess þurfi lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir. Með setningu 4. mgr. og 5. mgr. 55. gr. laga nr. 26/1994 hefur löggjafinn metið það svo að almenningsþörf geti krafist þess að eiganda hlutar í fjöleignarhúsi verði gert að láta af hendi þá eign sína með því að hún verði seld gegn vilja hans. Ganga verður út frá því að það mat hafi öðru fremur verið reist á því að stórfelld brot eiganda hlutar í fjöleignarhúsi gagnvart öðrum eigendum geti vegið að friðhelgi eignarréttinda þeirra og heimilis. Einnig er hér fullnægt áskilnaði stjórnarskrár um að lagafyrirmæli þurfi til að skerða eignarréttindi á þennan hátt.“ [áherslubreyting höfunda] Niðurstaðan varð því sú að ákvæði 5. mgr. 55. gr. laga nr. 26/1994 var talið standast skilyrði 72. gr. stjórnarskrárinnar. Í íslenskri dómaframkvæmd er ekki að finna mörg dæmi þess að ágreiningur hafi risið um hvort tilteknar framkvæmdir þjóni samfélags legum hagsmunum og hvort þeir séu slíkir að eignarnám sé réttlætanlegt. Eðli málsins samkvæmt eru skoðanir manna á því hvað þjóni samfélaginu misjafnar, en það er þó eðlismunur á framkvæmdum á borð við lagningu vega og raforkuflutningsmannvirkja annars vegar og byggingu aðstöðu til íþróttaiðkunar eða afþreyingar hins vegar. Í dönskum rétti hefur reynt á heimildir sveitarfélaga til að taka landsvæði eignar námi vegna byggingar golfvalla, en eignarnám getur átt sér stoð í þarlendum skipulagslögum sé gert ráð fyrir framkvæmdum í samþykktu deiliskipulagi. Á þetta atriði reyndi í tveimur málum sem komu fyrir dönsku stjórnsýslunefndina natur­ og miljöklagenævnet, sbr. mál KFE 1996.132 og KFE 1993.215 (NKO 3). Í málunum reyndi á lögmæti eignarnáms sveitarfélaga vegna byggingar golfvalla og var komist að ólíkum niðurstöðum. Í fyrrnefnda málinu var talið að ákvörðun um eignarnám í því skyni að bæta tveimur holum við golfvöll væri lögmæt, en í síðarnefnda málinu var talið að eignarnám væri ekki nauðsynlegt þar sem koma mætti golfvelli fyrir á öðru svæði.27 Það er athyglisvert 27 Sjá nánari umfjöllun um úrskurðina í riti Hanne Mølbeck og Jens Flensborg: Ekspropriation i praksis, bls. 59.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.