Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Page 22

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Page 22
20 almennt varðandi kostnað við eignarnám og eignarnámsframkvæmd í heild kallar á slíkar getsakir.35 3.2 Skýrleiki eignarnámsheimilda Þessu næst er nauðsynlegt að huga að því hvaða kröfur verða gerðar til skýrleika eignarnámsheimildar að lögum. Það er grundvallaratriði að 72. gr. stjórnarskrár leggur ekki grunn að heimild löggjafans til þess að láta fara fram eignarnám.36 Slík heimild verður þvert á móti reist þegar á grundvelli 2. gr. stjórnarskrárinnar. Tilvitnuð fyrirmæli 72. gr. um lagafyrirmæli setja því hins vegar skorður hvernig slík lagaheimild er úr garði gerð. Í ljósi þessa er sú spurning áleitin hvort að krafa 72. gr. um lagafyrirmæli bæti í sjálfu sér einhverju við áskilnað hinnar almennu lögmætisreglu. Yfirleitt er þeirri spurningu svarað á þá leið að áskilnaður stjórnarskrárinnar feli í sér áréttingu á kröfu lögmætisreglunnar en ekki síður að með því að krafan um lagaáskilnað komi fram með þessum hætti þá sé útilokað að eignarnám verði reist á öðrum grundvelli en settum lögum í þrengri merkingu.37 Löggjafinn verði þannig í viðkomandi lagaheimild að taka skýra afstöðu til þeirra hagsmuna sem heimilað geti eignarnám og þeirrar almenningsþarfar sem þar búi að baki. Allt framsal á því mati sæti miklum takmörkunum.38 Þetta hefur verið orðað svo í dómaframkvæmd að löggjöfin verði að mæla fyrir um meginreglur, þar sem fram komi takmörk og umfang þeirrar réttindaskerðingar, sem talin er nauðsynleg, sbr. til dæmis Hrd. 2000, bls. 1621 (nr. 15/2000) (Stjörnugrís) þar sem vikið var að heimildum til skerðingar á friðhelgi eignarréttar og atvinnufrelsis samkvæmt 72. og 75. gr. stjórnarskrárinnar.39 35 Þess má geta að í ákvörðunum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis frá 24. febrúar 2014 sem vörðuðu beitingu eignarnáms vegna Suðurnesjalínu 2 á grundvelli 23. gr. raforkulaga var Landsneti samkvæmt ákvörðunarorði heimilað að framkvæma umrætt eignarnám vegna lagningar línunnar um land eignarnámsþola. Ekki var fjallað um kostnað í ákvörðuninni. Í ákvörðun ráðuneytisins frá 14. október 2016 þar sem eignarnám var heimilað vegna Kröflulínu 4 og 5 var ákvörðunarorðið sams konar og ekki vikið að kostnaði. 36 Ólafur Jóhannesson: Stjórnskipun Íslands, bls. 454. Sjá til hliðsjónar Gaukur Jörundsson: „Eignarnám og takmarkanir á eignarréttindum“. Tímarit lögfræðinga 1964, bls. 62-63. 37 Sjá um þetta Johs. Andenæs og Arne Fliflet: Statsforfatningen i Norge. Osló 2006, bls. 421-422 og Ólafur Jóhannesson: Stjórnskipun Íslands, bls. 454. Þessi skilningur á sér jafnframt stoð í dönskum rétti, sbr. Hanne Mølbeck og Jens Flensborg: Ekspropriation i praksis, bls. 60-61 og Max Sørensen: Statsforfatningsret. Kaupmannahöfn 1973, bls. 415. 38 Sjá Max Sörensen: Statsforfatningsret, bls. 394-404, Henrik Zahle: Dansk forfatningsret 3. Kaupmannahöfn 2000, bls. 186 og Peter Germer: Statsforfatningsret. Kaupmannahöfn 2007, bls. 290. 39 Sjá jafnframt Páll Hreinsson: „Lagaáskilnaðarregla atvinnufrelsisákvæðis stjórnar- skrárinnar“. Í ritinu Líndæla – Sigurður Líndal sjötugur, Reykjavík 2001, bls. 299-422.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.