Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Side 27

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Side 27
25 Þvert á móti getur sú upptalning sem finna má í raforkulögum og auðlindalögum sætt þeirri takmörkun að gagnályktað verði þannig að eignarnám annarra réttinda sem tengjast viðkomandi fasteign sé óheimilt. Á hinn bóginn má ætla að tilgreining kolvetnislaga á fasteign sem andlagi feli í sér heimild til eignarnáms á sérhverjum réttindum sem tengjast viðkomandi fasteign í samræmi við hefðbundna skýringu á hugtakinu. Eignarnámsheimildir að gildandi rétti eru nokkuð misjafnar hvað varðar tilgreiningu á þáttum sem tengjast ákvarðanatöku. Þannig er til að mynda afar misjafnt að hve miklu leyti aðdragandi ákvörðunar um eignarnám er rakinn í viðkomandi lagaákvæði. Í ýmsum tilvikum er sérstaklega áskilið að leitast hafi verið við að ná samningum við eigandann áður en til eignarnáms kemur og má sem dæmi nefna 23. gr. raforkulaga, 50. gr. skipulagslaga og 70. gr. fjarskiptalaga.50 Þess má þó finna ýmis dæmi að ekki sé vikið að skyldu til samningaviðræðna og má í því sambandi nefna 37. gr. vegalaga. Þá er sú staða uppi hvað varðar lög nr. 66/2008 um Landeyjahöfn að sérstaklega er tiltekið í 4. mgr. 4. gr. laganna að það sé ekki skilyrði eignarnáms að áður hafi verið leitað samninga um land við landeigendur, hvort sem er vegna lands eða efnistöku. Þá er í sumum eignarnámsheimildum vikið að því að nauðsyn þurfi að vera til eignarnáms, sbr. t.d. 23. gr. raforkulaga og 70. gr. fjarskiptalaga, en í öðrum tilvikum er slíkt ekki nefnt einu orði, sbr. t.d. 27. gr. kolvetnislaga. Verður ekki séð að það hafi úrslitaþýðingu hvort vikið sé að þáttum sem þessum í eignarnámsheimild, enda gilda kröfur um almenningsþörf og meðalhóf sem leiddar verða af 72. gr. stjórnarskrárinnar fullum fetum. Hins vegar kann árétting þessa að tryggja enn betur að stjórnvöld virði þessar reglur og gangi úr skugga um að þeirra hafi verið gætt við undirbúning ákvörðunar um eignarnám. 3.5 Dæmi úr réttarframkvæmd um skýringu almennra eignarnámsheimilda Í tilviki almennra eignarnámsheimilda eiga dómstólar, eðli málsins samkvæmt, ríkt mat á því hvort að fullnægjandi lagaheimild sé til staðar og hvort það tilvik og þær aðstæður sem um er að ræða hverju sinni falli að heimildinni á því tímamarki þegar eignarnám fer fram. Vert er að líta til dóma Hæstaréttar hvað varðar skýringu á nokkrum eignarnámsheimildum. Þetta er gert í dæmaskyni til að draga fram þau álitaefni sem geta komið upp í framkvæmd. 50 Í þessari yngri löggjöf sýnist mögulega gæta áhrifa Hrd. 1998, bls. 985 (Arnarnes) hvað varðar kröfuna um að samningar hafi verið fullreyndir.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.